Brautin - 03.11.1988, Blaðsíða 2
B R
A
U
T
BRAUTIN
Útgefandi: Alþýðuflokksfélögin í Vm.
Ritnefnd:
Þorbjörn Pálsson (ábm.)
Guðm. Þ.B. Ólafsson Elín Alma Arthúrsdóttir
Magnús H. Magnússon Stefán Jónsson
Tölvusetning og offset: Eyrún h.f. Vm.
Staða fiskvinnslunnar erfið:
Rekstrargrund-
völlinn vantar
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur
með þjóðmálaumræðunni, að erfiðleikar blasa víðs-
vegar við í athafnalífinu hér á landi.
Hvert stórfyrirtækið á fætur öðru er lýst gjaldþrota
og öðrum veitt greiðslustöðvun.
Fólki er sagt upp í hópum, ýmist vegna lokunar eða
endurskipulagningar. Virðist skórinn víða kreppa að,
hvort heldur er í iðnaði, þjónustugreinum, búskap, að
ekki sé talað um í sjávarútvegi.
Undirstöðuatvinnugreinum
verður að skapa
rekstrargrundvöll
Helsta útflutningsatvinnugrein íslendinga, sjávar-
útvegurinn, á nú í verulegum erfiðleikum. Fiskvinnslan
er rekin með tapi og svo hefur verið í langan tíma.
Fyrirtækin sem lengst hafa þrjóskast við að halda
rekstrinum áfram eru með slíkum taprekstri að éta upp
eignir sínar og eru með skuldahalann á eftir sér.
Fiskvinnslufyrirtækjum hefur verið lokað víðs vegar
um landið og er Ijóst, að í þeim bæjarfélögum þar sem
það hefur átt sér stað, eru erfiðir tímar framundan.
Það er nánast furðulegt að þessari helstu útflutnings-
grein okkar skuli ekki vera skapaður sá rekstrar-
grundvöllur sem hún þarf og á skilið til þess að geta
haldið starfsemi sinni og þjóðarbúinu á floti.
Því, ef það er einhver sem veit það ekki, þá stendur
þjóðfélag okkar og fellur með sjávarútveginum, þó að
svo sé ekki að sjá, að allir skilji það.
Hvort menn stofna einn sjóðinn til eða frá, þá er það
ekki sú lausn sem þarf. Fjármagnskostnaðurinn er
nogur.
Það er rekstrargrundvöllur sem þarf og að fisk-
vinnslan fái greitt fyrir framleiðslu sína það sem fyrir
hana fæst, í réttu gengi. Guðm> Þ>B> ólafsson
ATVINNA
Oskum eftir að ráða járniðnaðarmenn til
starfa strax.
Viljum einnig taka nema í plötusmíði,
rennismíði og vélvirkjun.
Símar 11490,
11491,
11492
og 11767.
Vinnuhópur um bætt skipulag skólatannlækninga:
*
Obreytt ástand óviðunandi
Undanfarin ár hefur umræða
um greiðslur bæjarsjóðs vegna
skólatannlækninga skotið upp
kollinum, nokkuð reglulega.
Ástæðan fyrir umræðunni
hefur ávallt verið sú, að þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir bæjar-
yfirvalda virðist illa ganga að
láta fjárhagsáætlun standast
vegna skólatannlækninga.
Það fyrirkomulag sem við-
gengist hefur undanfarin ár.
hefur verið með þeim hætti að
bæjaryfirvöld eiga engan kost á
að vera með puttana í, hver
framgangur mála er, þrátt fyrir
að bæjarsjóði beri að greiða
helming af kostnaði við skóla-
tannlækningar. í framhaldi af
umræðum um skólatannlækn-
ingar hefur Bæjarráð Vest-
mannaeyja samþykkt að það
telji afar brýnt að sveitar-
stjórnir séu í aðstöðu til að
fylgjast með og hafa áhrif á
ráðstöfun fjárframlaga sinna til
skólatannlækninga.
í framhaldi af því hefur
bæjarráð samþykkt að skipa
vinnuhóp, sem í eiga sæti full-
trúar frá heilsugæslustöð, tann-
læknum, skólum, dagvistar-
stofnunum og sjúkrasamlagi, til
þess að gera tillögur um bætt
skipulag skólatannlækninga.
Vonandi er að starf hópsins I breyting verði frá núverandi
takist vel þannig að veruleg | ástandi. GÞBÓ
SPARNAÐUR
í REYND!
Vörur á tilboðsverði
í HVERRI VIKU
I verslunum okkar í Bárustíg
og Goðahrauni er vöruúrvalið
geysigott og verðið rómað.
Það borgar sig að versla við
Vetraráætlun 1988-1989
Frá Þorlákshöfn:
12:30
14:00
18:00
Frá Vestmannaeyjum:
Mánudaga-föstudaga....07:30
Laugardaga .............10:00
Sunnudaga ............. 14:00
Allar nánari upplýsingar eru veittar:
VESTMANNAEYJUM: REYKJAVÍK:
Básaskersbryggju Köllunarklettsvegi
Símar 98-11792 og 98-11433 Sími 91-686464
H
Heriól$ur h$
Þjóðvegurinn milli lands og Eyja
2