Fréttablaðið - 16.11.2015, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SHAPE DELUXE
heilsurúm
m/classic botni
Shape deluxe heilsurúm:
• Lagar sig fullkom lega að líkama þínum
• 26 cm þykk heilsudýna
• 2 cm latexlag bólstrað í áklæði
• 4 cm gel memoryfoam
• 4 cm shape memoryfoam
• Non-slip efni á botni dýnunnar
• Engir rykmaurar
• 5 ára ábyrgð!
• Ofnæmisprófuð
• Burstaðir stálfætur
Stærð cm. Fullt verð Jólatilboð
100x200 129.900 103.920
120x200 164.900 131.920
140x200 184.900 147.920
160x200 209.900 167.920
180x200 234.900 187.920
Jólatilboð 20% afsláttur
NATURE’S DIAMOND
heilsurúm
25%
AFSLÁTTUR
Nature’s Diamond heilsudýna
með Classic botni og löppum
nú á jólatilboði í Dorma.
Verðdæmi:
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 204.900 kr.
Aðeins 153.675 kr.
Jólatilboð 180 x 200 cm
Aukahlutur á
mynd: rúmgafl.
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
REST heilsurúm
MEIRA Á
dorma.is
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Góðar kantstyrkingar
Aðeins 67.915 kr.
Nature’s
Rest heilsu-
dýna með
Classic botni.
Stærð: 120x200 cm.
Fullt verð: 79.900 kr.
Aðeins 19.900 kr.
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
Hafðu það
notalegt um jólin
Komdu í Dorma
Val um svart eða hvítt PU
leður eða grátt áklæði á botni.
15%
AFSLÁTTUR
af 120 x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Val um svart eða hvítt PU
leður eða grátt áklæði á botni.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
20%
AFSLÁTTUR
JÓLA-
TILBOÐ
„Fólk gerir voða oft ráð fyrir að
við hljótum að vera í samkeppni,
báðar að syngja og spilum popp
á fiðlu, en svo er nú einmitt alls
ekki,“ segir Unnur Birna Björns
dóttir, tónlistarkona með meiru,
sem tók höndum saman við fiðlu
leikarann Gretu Salome sem flest
um ætti að vera orðin kunn eftir
þátttöku sína í Eurovision árið
2012. Þá tók hún lagið Never For
get með Jónsa og lék eftirminni
lega á fiðluna á sviðinu í Azer
baísjan.
Nú hyggjast þær ferðast um
landið með bandinu Swing komp
aníinu.
Eins gott að vinna saman
„Þetta er nefnilega bráðfyndið,
hvorug okkar hefur litið þetta
sömu augum og margir virðast
gera. Ég man til dæmis eftir því að
hafa verið með félögum mínum
í Fjallabræðrum að troða upp
á sömu tónleikum og Greta, og
að loknu atriði Gretu segir einn
félaga minna við mig: „Á ég að
slíta strengina?“ í algjöru gríni
auðvitað,“ segir Unnur og skelli
hlær og heldur áfram: „Einhverju
sinni var einmitt skotið svona létt
á mig líka, þegar einn félagi minn
sagði vissara fyrir mig að halda vel
á spilunum ef ég ætlaði að halda í
við Gretu.“
Unnur bendir á að þetta sé sér
lega skondið í ljósi þess að í raun
þrífist ekki svoleiðis hugsunar
háttur innan íslensku tónlistar
senunnar. „Það er einhvern veginn
engin samkeppni hérna. Brans
inn er of lítill fyrir svona sam
keppni. Það er alltaf einhver betri
en maður sjálfur, svo það er bara
allt eins gott að vinna bara saman
í svona litlu samfélagi. Bransinn
er lítill og þar þekkjumst við öll
meira og minna, en ef ekki, þá eru
allir skyldir öllum.“
Gaman að detta í girl power
Segir Unnur Birna sérlega gaman
að fá að leiða hesta sína saman
við þá sem Greta dregur til leiks.
„Það eru ekkert margir fiðluleik
arar hérna heima sem spila popp
og bara svona alls konar tónlist.
Flestir eru í Sinfóstemningunni.
Það er heldur ekkert leiðinlegt
að detta í svona girl power stund
um,“ útskýrir hún létt í lundu.
„Svo vorum við svo heppnar að
fá með okkur Lilju Björk til að
vera rödd með okkur og hún er á
blússandi siglingu með að læra á
úkúlele,“ bendir Unnur á. Hljóð
færið úkúlele á rætur sínar að
rekja til Hawaii og er lítill fjögurra
strengja gítar.
Auk þeirra þriggja koma svo
Óskar Þormar, Leifur Gunnars
son og Gunnar Hilmarsson að
bandinu góða.
Athyglisspanið ekki langt
Unnur segir Swing kompaníið
hafa verið duglegt við að æfa sig
fyrir komandi jólatörn sem stytt
ist óðum í að skelli á og oft hafi
verið hamagangur á hóli.
„Athyglisspanið okkar flestra
nær ekkert rosalega langt svo við
erum stundum bara komin út og
suður, eða í hláturskast ef ekki er
haldið vel á spöðunum. Ef Greta
hefur ekki hemil á okkur, þá geta
æfingarnar orðið ansi tímafrekar,“
bendir Unnur á, og skýtur að, að
samstarfið sé í einu og öllu frábær
skemmtun.
Búnar að sitja sveitar
Nafn sveitarinnar má rekja til
þess að swingtónlistar verður
vart í tónleikaprógrammi hljóm
sveitarinnar. Swingtónlist eða
sveiflutónlist er mikil danstónlist
og þróaðist út frá New Orleans
djassinum. Líkt og nafnið gefur
til kynna er auðvelt að sveifla sér
við tónlistina og má telja líklegt að
það sé eitt af markmiðum sveitar
innar á komandi tónleikum.
„Við ætlum svo að swinga um
allt land í desember og stefnum á
að taka að minnsta kosti fimmtán
tónleika fyrir jól. Við Greta erum
búnar að sitja sveittar við að semja
jólatexta við swinglög, auk þess
sem við höfum notið góðs lið
sinnis í þeim efnum. En við ætlum
svo sem að bjóða upp á klassísku
jólalögin líka. Þá munum við fá
kór úr hverju bæjarfélagi fyrir sig
þar sem við höldum tónleika til að
vera með okkur, svo eflaust eiga
allir eftir að finna eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Unnur í lokin, yfir sig
spennt fyrir komandi hlátursköst
um með þessu spánnýja bandi.
gudrun@frettabladid.is
Konur eru konum bestar
„Bransinn of lítill fyrir samkeppni,“ segir Unnur Birna Björnsdóttir fiðluleikari um
samstarf tveggja vinsælustu fiðluspilandi poppsöngkvenna landsins sem munu
swinga saman fram að jólum en Greta Salome er með Unni í hljómsveitinni.
Þær Lilja, Unnur og Greta sjá um raddirnar fyrir Swing kompaní. Þær munu fara um allt land og koma við á yfir fimmtán
stöðum fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þetta er nefnilega
bráðfyndið, hvorug
oKKar hefur litið Þetta
sömu augum og margir
virðast gera. Ég man til
dæmis eftir Því að hafa
verið með fÉlögum mínum
í fjallabræðrum að troða
upp á sömu tónleiKum og
greta, og að loKnu atriði
gretu segir einn fÉlaga
minna við mig: „á Ég að slíta
strengina?“ í algjöru gríni
auðvitað.
Unnur Birna Björnsdóttir, tónlistarkona
með meiru
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r26 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð