Fréttablaðið - 16.11.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 16.11.2015, Blaðsíða 44
Áreiðanleg, traust og afkastamikil arskiptanet og upplýsingakerfi fyrir fyrirtæki Stórhöfða 23 | sími 415 1500 www.simafelagid.is | simafelagid@simafelagid.is „Það er rosa spes, sýnir manni hvað máttur internetsins getur verið mikill,“ segir tónlistarmað­ urinn Þórður Ingi Jónsson, betur þekktur sem Lord Pusswhip, um þá staðreynd að bandarísk kona fékk sér húðflúr með listamanns­ nafninu hans. Hin bandaríska Kitty Bailey lét flúra orðin: „Lord Pusswhip is Wack“ á fótlegg sinn, sem er titill nýútkominnar plötu Þórðar. „Hún hafði samband við mig í gegnum netið í sumar því hún sagðist tengja svo mikið við tón­ listina. Síðan sendi hún mér skila­ boð um daginn og sagðist ætla að fá sér Lord Pusswhip tattú. Það kom mér vægast sagt á óvart,“ útskýrir Þórður. Hann segir þó fleiri tilviljanir tengjast þessari sögu. „Já, ég hafði ákveðið að fá mér mitt fyrsta tattú og það var nánast alveg eins.“ Þórður er ánægður með við­ brögðin við plötunni sem kom út í lok síðasta mánaðar. „Þau hafa verið mjög góð, bæði á Íslandi og í útlöndum. En þetta var allt svo mikið brölt og stúss að mig langar bara að fara að einbeita mér að næsta verkefni.“ Þórður er nú búsettur í Berlín og segir hann tónlistina hafa haft áhrif á það. „Já, ég flutti hingað út af tónlistarsenunni án efa. Ég mun spila í London 28. og 29. nóvember á opnunarkvöldi plötuútgáfunnar Cosmic Seagull Records, sem gaf plötuna mína út." kjartanatli@365.is Bandarísk kona með Lord Pusswhip flúr Aðdáandi rapplistamannsins Lord Pusswhip tengdi svo mikið við tónlistina hans að hún fékk sér húðflúr á fótlegginn með nafni hans. Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur staðið í ströngu undan­ farna mánuði en sveitin er á tón­ leikaferð um heiminn, til að fylgja plötunni Beneath the Skin eftir. Sveitin er um þessar mundir á ferðalagi um Evrópu og kemur fram á tónleikum í Köln í Þýska­ landi í kvöld. Hún heldur svo af stað til Bretlands þar sem hún kemur fram á tíu tónleikum á Bret­ landseyjum en uppselt er á þá alla. U n d a n f a r n a r vi ku r h e f u r hljómsveitin Mammút verið með sveitinni á tónleikaferðalaginu en Mammút er á leið á heim eftir tónleikana í kvöld. Of Monsters and Men er enn að bóka tónleika í tónleikaferðina sína sem nær í það minnsta fram í júní. Á næsta ári er sveitin meðal annars á leið til Suður­Afríku og það í fyrsta sinn. Hún kemur fram í Höfðaborg þann 30. mars og Jóhannesarborg 2. apríl. Áður en sveitin heldur til Suður­Afríku kemur hún meðal annars fram víðsvegar í Suður­Ameríku. Fyrir skömmu lauk sveitin við tónleikaferð sína um Bandaríkin en lokahnykkurinn var spila­ mennska í spjallþætti Ellenar DeGeneres. Þá kemur tónlist sveitarinnar enn og aftur við sögu í sjónvarpi því hún á lag í nýrri stiklu fyrir bandaríska sjónvarpsþáttinn Marvel’s Jessica Jones fyrir Net­ flix. Lagið Thousand Eyes hljómar í stiklunni, fyrir hefur sveitin átt lög í kvikmyndum á borð við The Secret Life of Walter Mitty og The Hunger Games: Catching Fire. – glp Á leið til S-Afríku og uppselt í Bretlandi Þórður Ingi Jónsson, eða Lord Pusswhip. Mynd/AnnAMAggý Hér má sjá flúrið. Hljómsveitin Of Monsters and Men er á tónleikaferð um Evrópu um þessar mundir. nOrdIcPHOtOs/gEtty Hún HAfði SAmBAnd við mig í gegnum netið í SumAr því Hún SAgðiSt tengjA Svo mikið við tónLiStinA. SíðAn Sendi Hún mér SkiLABoð um dAginn og SAgðiSt ætLA Að fÁ Sér Lord PuSSwHiP tAttú. nóg að gera 19 tónleikar á dagskrá hjá Of Monsters and Men fram að jólum. 12 tónleikar eru nú þegar bókaðir eftir áramót fram að Secret Solstice. 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r24 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Lífið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.