Fréttablaðið - 23.11.2015, Síða 8
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Farþegaspá 2016
Á fljúgandi
ferð
Morgunfundur Isavia um farþegaspá Keflavíkurflugvallar
og framkvæmdir 2016 verður haldinn í Þingsölum á Hotel
Reykjavik Natura miðvikudaginn 25. nóvember kl. 8.30–10.00.
Dagskrá:
Farþegaspá Keflavíkurflugvallar 2016
— Grétar Már Garðarsson,
verkefnastjóri á viðskiptaþróunarsviði Isavia
Uppbygging og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
— Guðmundur Daði Rúnarsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Vaxandi öldi – áskoranir og tækifæri
— Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Húsið opnað kl. 8.15. Boðið verður upp á kaffi og léan morgunverð.
Nánari upplýsingar og skráning
á www.isavia.is/morgunfundur
Byggðamál Heiða Kristín Helga-
dóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar,
hefur lagt fram fyrirspurn til forsætis-
ráðherra um sértækar byggðaaðgerð-
ir til bjargar byggð í Grímsey. Ríkis-
stjórnin samþykkti á fundi sínum
í vikunni að ráðast í margvíslegar
aðgerðir til þess að bjarga byggðinni
í eynni. Fyrirspurn Heiðu Kristínar
er tvíþætt. Annars vegar vill hún vita
hversu miklum fjárhæðum verður
varið til þessara aðgerða og hvort
forsætisráðuneytið hafi upplýsingar
um að svipaðar aðgerðir hafi borið
árangur og snúið við fólksfækkun.
Fréttablaðið hefur áður greint frá
því að tillögur nefndar um fram-
tíð byggðar í Grímsey voru metnar
um hálfur milljarður árlega í formi
aukinna samgangna við eyjuna
og sértækan byggðakvóta sem kæmi
í hlut Grímseyjar.
„Það sem skiptir mestu máli er að
fjármunum úr sameiginlegum sjóði
okkar allra sé sem best varið og að
svona aðgerðir skili árangri. Mér
finnst rétt að spyrja hversu miklir fjár-
munir fara í þessa sértæku aðgerð til
að styrkja byggð í Grímsey og hvert sé
markmiðið. Ef fjármunirnir hlaupa á
hundruðum milljóna þá þarf það að
liggja fyrir,“ segir Heiða Kristín. „Það
er mín tilfinning að íslensk byggða-
stefna sé tilviljanakennd og ekki nægi-
lega markviss. Það er öllum til góða
að horfast í augu við það. Ég hefði
viljað sjá fjármagni varið til sóknar-
áætlana landshlutanna í stað þess að
skera niður nærri allt fé til þeirra.“ - sa
Vill vita hvað kosti að bjarga Grímsey
Það sem skiptir
mestu máli er að
fjármunum úr sameigin-
legum sjóði
okkar allra sé
sem best
varið.
Heiða Kristín
Helgadóttir
Belgía Charles Michel, forsætisráð-
herra Belgíu, segir að hættuástand,
sem lýst var yfir í Brussel á laugar-
daginn, haldi áfram í dag.
Lestarstöðvar, skólar og háskólar
voru ekki opnaðar í Brussel í morgun.
„Hættuástandi vegna hryðjuverka
linnir ekki fyrr en Salah Abdeslam
hefur verið handsamaður,“ sagði Jan
Jambon, innanríkisráðherra Belga,
við flæmska fjölmiðla í gær.
Þá upplýsti Jambon að leitin næði
til fleiri grunaðra hryðjuverkamanna.
Tyrkneska lögreglan handtók á
laugardag þrjá menn grunaða um að
hafa lagt á ráðin um hryðjuverk. Einn
þeirra er belgískur ríkisborgari.
Leitin að Salah Abdeslam, meint-
um geranda í árásunum í París, hélt
áfram um helgina í Brussel án árang-
urs. Mohamed Abdelslam hefur í fjöl-
miðlum biðlað til Salah bróður síns
að gefa sig fram. Frekar vilji hann sjá
bróður sinn í fangelsi en í grafreit.
Vinir Salah sögðu ABC fréttastof-
unni að hann hefði haft samband
við þá. Þeir segja Salah hafa klæðst
sprengjuvesti í París en fengið bak-
þanka með að sprengja sig í loft
upp. Liðsmenn Íslamska ríkisins séu
ósáttir við það. Mikill viðbúnaður er
í Brussel, hermenn og brynvagnar
á götum úti. Um þúsund hermenn
vakta verslanir, veitingastaði, ríkis-
stofnanir og stofnanir Evrópusam-
bandsins. stefanrafn@frettabladid.is
Brussel í herkví
Forsætisráðherra Belgíu sagði í gær að hættustig héldi
áfram í dag. Grunaðra hryðjuverkamanna er leitað.
Hermenn vakta verslunarmiðstöðina Galerie de la Reine í Brussel. FRéttaBlaðið/EPa
Sorglegt að sjá borgina
í þessu ástandi
„Ég vona að þetta
ástand líði fljótt
hjá,“ segir Maite
Morren, fulltrúi
í hverfisstjórn
Ixelle-hverfis
nærri miðborg
Brussel, í samtali
við Fréttablaðið. Hún er sorgmædd
yfir því að sjá borgina sína, sem
gjarnan iðar af lífi, í þessu ástandi.
„Flestir sem ég þekki eru
samt mjög yfirvegaðir.“ Hún segir
fáa á ferli úti á götu. Margar versl-
anir og samkomustaðir hafi lokað
og nú eru borgaryfirvöld að ákveða
hvort skólum verði lokað í dag.
„Ég ætlaði að sækja viðburð á
laugardaginn fyrir unga listamenn
en honum var frestað. Þá ætlaði ég í
partí sama kvöld en því var aflýst.“
Óhuggulega hljóðlátt
„Stemningin var
mjög sérstök
í gær. Það er
erfitt að lýsa
því án þess að
undirstrika það
fyrst hversu
lífleg Brussel er
almennt á laugar-
dögum,“ segir Vilhjálmur Ólafsson,
íbúi í Brussel.
„Í gær var eins og miðbærinn
hefði verið rýmdur. Það var erfitt
fyrir okkur að sjá þetta. Það voru
fáir á ferli þar sem allt er venjulega
iðandi af lífi.“ Þeir sem hafi verið á
ferli hafi verið á hraðferð og borgin
verið óhuggulega hljóðlát.
Vilhjálmur segir borgarlífið þó
hafa tekið ögn við sér á sunnudag.
„Ég var aldrei raunverulega hræddur
um líf mitt en ég, eins og allir aðrir
Brusselbúar, hafði varann á.“
2 3 . n ó v e m B e r 2 0 1 5 m á n U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð