Fréttablaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 12
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900 Falleg glös gleðja augað Á síðustu tveimur mánuðum hafa hryðjuverkasam-tökin sem kenna sig við íslamskt ríki, Daish, lýst ábyrgð á nokkrum stórum hryðjuverkaárásum. Þetta eru sprengjutilræði í Ankara, Beirút, fjöldamorð í Túnis, tortíming rússneskrar farþegaþotu og nú síðast fjöldamorð í París. Eru þá ótalin öll ódæðisverk þeirra í Sýrlandi og Írak. Þótt tala fallinna í árásunum sé skelfileg er hún dropi í haf mannfallsins í styrjöldum sem geisað hafa í Miðausturlöndum og hafa með beinum og óbeinum hætti leitt til þessara hryðjuverkaárása. Innrásin í Írak 2003 er einhver stærstu mistök í sögu vestrænnar utanríkisstefnu. Upplausnin sem af því leiddi gat af sér þessi illræmdu hryðjuverkasamtök og ýtti undir borgarastríðið í Sýrlandi. Út úr því öngstræti átaka ólíkra vígahópa verður ekki komist nema með pólitískum leiðum. Öll stórveldi á svæðinu verða tafar- laust að hætta að hugsa fyrst og fremst um að ná fram eigin markmiðum og láta af því að vígbúa stríðandi fylkingar. Hryðjuverkaárásirnar í París mega ekki verða til þess að stríðshrjáð og landflótta fólk verði fyrir aðkasti í Evrópu eða að stjórnvöld noti þau sem átyllu til að skjóta sér undan sammannlegri ábyrgð sinni á að hjálpa fólki í neyð. Samfélög Vestur-Evrópu verða jafnframt að vera meðvituð um þá hættu sem það hefur í för með sér ef einstakir þjóðfélagshópar eru jaðarsettir og eiga minni möguleika en aðrir, t.d. til menntunar og atvinnu, vegna fordóma og bágrar félagslegrar stöðu. Raddir þeirra sem nota hryðjuverk og ótta til að réttlæta aðskilnað og sundurgreiningu hópa sem búa saman í samfélagi mega ekki verða ofan á. Með því að taka undir slíkan málflutning er í raun verið að fallast á sjónarmið ofstækismanna, hvaða nöfnum sem þeir nefnast. Sigurinn í baráttu gegn hryðjuverkum vinnst ekki með hernaði. Hann vinnst ekki heldur með víg- væðingu lögreglunnar, víðtækum njósnum um borgar- ana eða hertu landamæraeftirliti. Hann vinnst með því að styrkja menntakerfi, heilbrigðiskerfi og velferðarkerfi og tryggja öllum þjóðfélagshópum þátttöku í lýðræðis- legu samfélagi. Þorum að velja frið Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs Sigurinn í baráttu gegn hryðju- verkum vinnst ekki með hernaði. Frá degi til dags Blessunarlega þekkja margir Íslend-ingar þau miklu lífsgæði sem felast í því að alast upp í nábýli við eldri kyn-slóðir. Eiga vísan gæskufullan faðm ömmu og afa, læra af þeim um lífið og liðna tíð og deila með þeim sorgum og gleði frá unga aldri og oft langt inn á fullorðins- árin. Eitt það mikilvægasta sem þetta kennir þeim sem njóta er að bera virðingu fyrir fólki óháð aldri. Og hver sá sem ber yfir virðingu fyrir eldra fólki hlýtur að sjá að öll eigum við rétt á að lifa með reisn og við sómasamleg kjör. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, var í viðtali hér á síðum blaðsins síðastliðinn föstudag og greindi frá fjár- hagsstöðu, efnum og aðstæðum fjölmargra eldri borgara á Íslandi. Þórunn bendir á að fjöldi eldri borgara býr við algjörlega óviðunandi kjör og að almannatrygginga- og lífeyrissjóðskerfinu er stillt þannig upp að fólk fái ekki nema 200 þúsund á einstakling í sambúð og 225 þúsund fyrir ein- hleypa. Með þessa upphæð er ætlast til að fólk greiði fyrir húsnæði og allt sem því fylgir, fæði og klæði, læknis- og lyfjakostnað og almennar sam- göngur svo brýnustu nauðsynjar séu tilgreindar. Þá standa eftir afmælis- og jólagjafir, að halda hátíð eða einfaldlega að eiga þess kost að gleðja aðra. Það sér hver heilvita manneskja sem lifir í íslensku samfélagi í dag að þetta dæmi gengur ekki upp. Efnahagslegar aðstæður fjölmargra eldri borgara eru einfaldlega til háborinnar skammar fyrir ráðamenn þjóðarinnar og samfélagið í heild. Og þessi smánarblettur er ekkert nýtt eða sjálf- sprottið fyrirbæri, eins og myglusveppur sem hefur náð sér á strik í rakri kjallaraholu, heldur þvert á móti afleiðing forgangsröðunar og með- vitaðra ákvarðana. Síðasta ríkisstjórn lét það vera með sínum fyrstu verkum að skerða kjör lífeyrisþega, sem voru nú ekki upp á marga fiska fyrir í svokölluðu góðæri, til þess að bjarga þjóðinni frá þroti eftir að bankarnir hrundu. Eldri borgarar og öryrkjar voru sendir heim með reikninginn úr partíinu sem þeim var aldrei boðið til. Ekki stóð svo á loforðunum um bót og betrun hjá ríkisstjórninni sem tók við, sem boðar nú hlálega prósentuhækkun sem mun í raun engu breyta um aðstæður þessa fólks. Alþingi Íslendinga og ríkisstjórnir fyrr og nú skulda eldri borgurum í landinu bæði afsökunar- beiðni og leiðréttingu. Og hafi þetta ágæta fólk einhvern tímann notið þess að fá tilsögn um lífið frá ömmu og afa eða öðru eldra fólki, beri fyrir því virðingu og til þess hlýhug, þá verður þess vart lengi að bíða að hver einasti ný-launaleiðrétti ráðamaður láti raunverulega til sín taka í þessum efnum. Svona ef ömmur þeirra og afar hafa kennt þeim að skammast sín. Smánarblettur Alþingi Íslendinga og ríkisstjórnir fyrr og nú skulda eldri borgurum í landinu bæði afsökunar- beiðni og leiðréttingu. Allir búnir að gleyma Stoltenberg? Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði meðal annars í útvarpsviðtali í gær að: „Hvort sem að frjálslyndum öflum svo­ kölluðum líkar það betur eða ver, þá er það núna orðið viðfangsefni kjörinna fulltrúa víða í Evrópu, að koma í veg fyrir að venjulegt fólk sé drepið.“ Hugsanlega er hann með þessu genginn í raðir stjórnmálamanna á borð við Hol­ lande og Cameron sem boða lítið annað en vopnaskak. Orð Jens Stoltenberg eftir árás öfgamanns á þjóð hans virðast fallin í gleymsku: „Svarið við árásunum er meira lýðræði og opnara sam­ félag.“  Að hætti kerlinga 8. áratugarins Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar grein í Moggann um atriði Hagaskóla í Skrekk. Hún segir það flott en þó sé það „gegnsýrt af staðal­ ímyndum kvenréttindabaráttu 8. áratugarins“. Sigríði finnst ekki mikið koma til skilaboða stúlkn­ anna og segir að textinn virðist frekar hafa oltið upp úr kerlingum á hennar aldri en 15 ára stúlkum. Atriði stúlknanna var vafalaust innblásið af umræðu um bága meðferð kynferðisbrota á landinu undanfarnar vikur. Sigríði má mis­ líka boðskapur grunnskólanem­ anna en vonandi er hún sammála því að jafnréttisbaráttan á langt í land innan réttarkerfisins. stefanrafn@frettabladid.is 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.