Fréttablaðið - 23.11.2015, Síða 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
Gréta Þorsteinsdóttir
Brimhólabraut 19, Vestmannaeyjum,
lést laugardaginn 14. nóvember sl. á Landspítalanum
Fossvogi. Útförin fer fram frá Landakirkju
þann 28. nóvember nk. kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lovísa Gísladóttir
Steinunn Gísladóttir
Konráð Gíslason
Merkisatburðir
1648 Krýning Friðriks 3. fer fram í Danmörku.
1654 Blaise Pascal lendir í slysi sem leiðir til þess að hann fær
opinberun og gerist trúaður.
1688 1.500 fylgjendur Gamla siðar brenna sig lifandi til að komast
hjá handtöku þegar her Rússakeisara sest um klaustur þeirra við
Onegavatn.
1700 Giovanni Francesco Albani verður Klemens 11. páfi.
1838 Hólavallagarður við Suðurgötu er vígður.
1916 Karlakór KFUM er stofnaður. Síðar er nafni hans breytt í
Karlakórinn Fóstbræður.
1939 Suðaustur af Íslandi er háð fyrsta sjóorrustan í heimsstyrj-
öldinni síðari, er þýsku herskipin Gneisenau og Scharnhorst sökkva
breska skipinu HMS Rawalpindi. 270 menn farast en 23 er bjargað.
1947 Tyrone Power kvikmyndaleikari kemur við á Íslandi.
1990 Örn og Örlygur gefa út Íslensku alfræðiorðabókina.
2010 Norðurkóreski herinn gerir stórskotaárás á suðurkóresku
eyjuna Yeonpyeong.
Þennan dag fyrir 23 árum
fæddist bandaríska tónlistar-
og leikkonan Miley Cyrus í
Nashville í Tennesseefylki
Bandaríkjanna. Við fæðingu
hlaut hún nafnið Destiny
Hope Cyrus en breytti síðar
eiginnafni sínu í Miley. Faðir
hennar er bandaríski kántrí-
söngvarinn Billie Ray Cyrus,
móðir hennar heitir Leticia
Cyrus og guðmóðir engin
önnur en kántrístjarnan Dolly
Parton.
Miley öðlaðist frægð þegar
hún lék hlutverk Hönnuh
Montana í samnefndum
sjónvarpsþáttum. Í kjölfarið
lék hún í kvikmyndum sem
byggðar voru á þáttunum auk
kvikmynda á borð við LOL,
So Undercover og The Night
Before.
Þá hefur Miley átt farsælan
tónlistarferil. Hún hefur gefið
út plöturnar Breakout, Can't
Be Tamed og Bangerz. Sú
síðastnefnda hefur hingað til
selst í rúmlega milljón ein-
tökum í Bandaríkjunum.
Undanfarið hefur ungstirn-
ið verið kynnir á tónlistarverð-
launahátíð sjónvarpsstöðvar-
innar MTV og gefið út plötuna
Miley Cyrus & Her Dead Petz
ókeypis á netinu.
Þ etta g e r ð i st :
2 3 . n óv e m b e r 1 9 9 2
Miley Cyrus fæðist
„vikan hefur það að markmiði að
lágmarka sóun og draga úr myndun
úrgangs. við vitum það að neysla
almennings hefur áhrif á það hversu
mikill úrgangur verður til þannig að
allt sem eykur nýtingu og dregur úr
sóun hefur góð áhrif í för með sér, bæði
fjárhagsleg og umhverfisleg,“ segir
eygerður margrétardóttir, deildar-
stjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði
reykjavíkurborgar.
nýtnivikan verður haldin í reykja-
vík fjórða árið í röð í þessari viku. Þema
vikunnar í ár er afefnisvæðing og ber
titilinn „að gera meira fyrir minna“
en afefnavæðing gengur út á að sinna
þörfum neytenda með lágmarks nýt-
ingu auðlinda. nýtnivikan er hluti af
umhverfis- og auðlindastefnu reykja-
víkurborgar.
„nýtnivikan kemur inn sem gott
verkefni sem hentar vel stefnu reykja-
víkurborgar í umhverfismálum.“
vikan er samevrópskt verk-
efni og er henni ætlað að vekja fólk
til umhugsunar um nauðsyn þess að
draga úr magni úrgangs. Fólk er hvatt
til að samnýta hluti og stuðla að því að
hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að
enda sem úrgangur. vikan er haldin
árlega með ýmsum atburðum sem eiga
að stuðla að vitundarvakningu íbúa
um sjálfbæra auðlinda- og úrgangs-
stjórnun.
Fjölmargir viðburðir verða í nýtni-
vikunni í ár. reykjavíkurborg hefur
til að mynda efnt til samkeppni um
besta nýtniráðið en leikurinn verður
á Facebook -síðu reykjavíkurborgar.
„við finnum að það er mikill áhugi
þarna úti fyrir þessari hugmyndafræði.
Það er gott að nýtnivikan kemur þegar
við erum að renna í þennan tíma þar
sem neyslan er mest á árinu í kring um
hátíðarnar.“
einnig verður fatasóunarráðstefna
vakanda og rauða krossins haldin í
ráðhúsi reykjavíkur laugardaginn
28. nóvember klukkan 13.00. Þá
verða niðurstöður forrannsóknar á
matarsóun heimila í reykjavík sem
Landvernd hefur unnið í samstarfi við
borgina kynntar á föstudag í borgar-
túni í hádeginu.
borgarbókasafn reykjavíkur mun
standa fyrir skiptibókamarkaðinum
græn bók – góð bók auk þess sem
fjöldinn allur af öðrum viðburðum
skreytir vikuna.
thorgnyr@frettabladid.is
Góð áminning
fyrir hátíðarnar
Nýtnivika er nú haldin í Reykjavík fjórða árið í röð. Þema vikunnar í ár er afefnisvæðing.
Fjöldinn allur af viðburðum verður víða um borgina.
Í nytjavikunni er fólk meðal annars hvatt til að endurnýta gömul föt. Fréttablaðið/Vilhelm
2 3 . n ó v e M b e r 2 0 1 5 M Á n U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót