Morgunblaðið - 30.09.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hóf í gær fjögurra daga
ráðstefnu í Manchester með flokks-
félögum sínum í Íhaldsflokknum, og
lofaði um leið að
klára útgöngu
Bretlands úr
Evrópusamband-
inu fyrir fullt og
allt.
Þrátt fyrir
fjölda hindrana
sem orðið hafa á
vegferð Johnsons
undanfarnar vik-
ur, þar á meðal
tapað mál fyrir hæstarétti Bret-
lands í síðustu viku, ítrekaði hann í
gær að hann hygðist taka Bretland
út úr sambandinu, hvort sem það
yrði með eða án samnings við
stjórnvöld í Brussel.
Muni fylkja sér um brexit
„Það sem við þurfum að gera er
að halda áfram. Og í því felst að
ljúka brexit hinn 31. október,“ sagði
forsætisráðherrann í samtali við
BBC í gær.
Einörð afstaða Johnsons hefur
komið honum á skjön við meirihluta
neðri deildar breska þingsins, sem
hefur samþykkt lög til að fyrir-
byggja að Bretland gangi úr ESB
án samnings.
En afstaðan á sér góðan hljóm-
grunn á meðal flokksmanna í
Íhaldsflokknum, sem kusu enda
Johnson sem leiðtoga sinn í júlímán-
uði.
Á ráðstefnunni mun fólk fylkja
sér um Johnson og sömuleiðis um
brexit, spáir Tim Bale, prófessor í
stjórnmálafræði við Queen Mary-
háskólann í Lundúnum, í samtali við
fréttaveitu AFP.
Hótað kosningu um vantraust
Stjórnarandstöðuflokkar gætu þó
hleypt ráðstefnunni í uppnám en
þingmenn úr þeirra röðum hafa
neitað að samþykkja að hlé sé gert á
þingstörfum vegna hennar. Hafa
flokkarnir hótað aðgerðum, meðal
annars kosningu um vantraustsyfir-
lýsingu, sem neyða myndi ráðherra
Íhaldsflokksins til að skunda aftur á
þing.
Ekki þykir bæta úr skák að sam-
kvæmt auglýstri dagskrá mun
Johnson slíta ráðstefnunni með
ræðu á miðvikudag, á sama tíma og
hann ætti annars að svara spurn-
ingum þingmanna í neðri deildinni.
Johnson stefnir
flokknum saman
Þingið gæti sett strik í reikninginn
Boris Johnson
Staða Sebastians Kurz á hátindi austurrískra stjórnmála
var staðfest í annað sinn í gær, þó ótrúlegt megi virðast
miðað við að hann er aðeins 33 ára að aldri. Kurz tók við
embætti ráðherra aðlögunarmála árið 2011, þá 24 ára.
Tveimur árum síðar varð hann utanríkisráðherra Aust-
urríkis og gegndi því embætti allt fram í desember árið
2017, er hann varð kanslari eftir kosningasigur þar sem
hann hafði einna helst lagt áherslu á innflytjendamál, þá
31 árs.
Hann hefur af sumum verið sakaður um að stjórna
Þjóðarflokknum með harðri hendi og mörgum þótti hann fullþögull á með-
an rasísk ummæli flokksmanna Frelsisflokksins komust ítrekað í hámæli á
meðan samstarf flokkanna varði.
Ungstirnið skín enn skært
VARÐ KANSLARI AUSTURRÍKIS 31 ÁRS
Sebastian Kurz
FRÉTTASKÝRING
Skúli Halldórsson
skrifar frá Vín
Íhaldssami flokkurinn ÖVP, Þjóðar-
flokkurinn, hlaut flest þingsæti allra
flokka í kosningum sem fram fóru í
Austurríki í gær. Um 37% greiddra
atkvæða komu í hlut flokksins og jók
hann fylgi sitt um sex prósentustig á
milli kosninga.
Fyrrverandi samstarfsflokkur
Þjóðarflokksins, hinn þjóðernismið-
aði Frelsisflokkur, tapaði mestu
fylgi en hann féll um tíu prósentustig
frá síðustu kosningum, niður í um
16% fylgi.
Fengi samninga fyrir aðstoð
Formaður Þjóðarflokksins, Seb-
astian Kurz, ákvað í maí að boða til
kosninga eftir að formaður Frelsis-
flokksins og varakanslarinn Heinz-
Christian Strache sagði af sér vegna
mikils hneykslismáls. Fjölmiðlar
höfðu þá birt myndskeið þar sem
Strache ræddi við konu sem þóttist
vera frænka rússnesks auðkýfings.
Sagðist hún vera að leita að fjár-
festingartækifærum í Austurríki og
bauðst til að kaupa helmingshlut í
dagblaðinu Kronen Zeitung til að
breyta ritstjórnarstefnu þess og sjá
til þess að blaðið styddi Frelsisflokk-
inn. Strache tók vel í boðið og sagðist
meðal annars myndu sjá til þess að
fyrirtæki hennar fengi samninga um
opinberar framkvæmdir.
Eftir að upp komst um þetta sagði
Strache af sér embætti eins og áður
sagði, en enn fremur var Herbert
Hickl innanríkisráðherra rekinn sem
svo leiddi til þess að aðrir ráðherrar
Frelsisflokksins sögðu af sér emb-
ættum sínum. Endi var svo bundinn
á valdatíma stjórnarinnar þegar
samþykkt var vantraustsyfirlýsing í
þinginu á hendur Kurz í lok maí.
Harðar viðræður fram undan
Nú er hann líklegur til að taka að
nýju við embætti kanslara, en fram
undan eru þó harðar stjórnarmynd-
unarviðræður sem búist er við að
taki margar vikur og jafnvel mánuði.
Græningjar þóttu ásamt Þjóðar-
flokknum bera sigur úr býtum í gær
með um 14% atkvæða – mesta fylgi í
áratugalangri sögu flokksins – en
fram hafði komið í könnunum að
loftslagsmál voru efst í huga margra
kjósenda. Sósíaldemókratar horfðu á
sama tíma fram á verstu niðurstöðu í
sögu flokks síns, með um 22%
greiddra atkvæða.
Þrátt fyrir góðan kosningasigur
þykir Kurz vera í erfiðri stöðu hvað
stjórnarmyndun varðar. Eins og
sagði í leiðara dagblaðsins Die
Presse á laugardag; „jafnvel með
góðan plús á sunnudag, þá er erf-
iðara fyrir hann en árið 2017“ að
mynda hæfa stjórn.
Fylgisaukning Græningja þýðir
að flokkarnir tveir geta gengið til
samstarfs, en leiðtogi þeirra Werner
Kogler sagði í gærkvöldi að „rót-
tækra breytinga“ væri þörf ætti það
að ganga eftir. Kurz gæti því þurft
að hverfa frá baráttu gegn straumi
innflytjenda og yfir í baráttu gegn
loftslagsbreytingum, til að halda
áfram í embætti kanslara.
Allt frá lokum síðari heimsstyrj-
aldar hafa ýmist Sósíaldemókratar
eða Þjóðarflokkurinn haldið um
stjórnartaumana í Austurríki, þar af
samtals um 44 ár í sameiningu.
Nær orðlaus eftir úrslitin
Í höfuðstöðvum Þjóðarflokksins í
gærkvöldi tjáði Kurz sigurreifum
stuðningsmönnum sínum að úrslitin
hefðu gert hann nær orðlausan. Lét
hann enda fátt uppi um hvert hann
horfir nú þegar mynda skal ríkis-
stjórn.
„Þetta er mikil ábyrgð. Við tökum
við þessu trausti með auðmýkt og
virðingu, og við lofum því að við
munum gera okkar besta til að virða
þetta traust,“ sagði formaðurinn.
Formaður Frelsisflokksins, flug-
vélaverkfræðingurinn Norbert
Hofer, sem tók við af Strache, sagð-
ist í gær telja að flokkurinn myndi
ekki taka þátt í komandi viðræðum.
„Við erum að búa okkur undir
stjórnarandstöðu.“
Kurz eygir kanslarastól að nýju
Þingkosningar í Austurríki eftir að hneyksli sprengdi tveggja flokka ríkisstjórn í maí Erfiðar
stjórnarmyndunarviðræður fram undan Loftslagsmál gætu hrundið innflytjendamálum úr deiglunni
AFP
Á sviði Sebastian Kurz, formaður Þjóðarflokksins, sagðist nær orðlaus eftir að úrslit kosninganna urðu ljós í gær.
AFP
Ánægður Leiðtogi Græningja gat
brosað sínu breiðasta í gærkvöldi.