Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 27

Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Meistarakeppni karla KR – Stjarnan....................................... 77:89 Meistarakeppni kvenna Valur – Keflavík.................................. 105:81 Þýskaland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Alba Berlín – Würzburg ..................... 92:81  Martin Hermannsson skoraði 9 stig fyrir Alba Berlín, tók 3 fráköst og gaf 10 stoð- sendingar. KÖRFUBOLTI Bandaríkin Chicago Red Stars – Utah Royals.......... 2:1  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan tímann með Utah og lagði upp markið. Reign – Portland Thorns........................ 2:0  Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með Portland Thorns. Grikkland Aris Saloniki – Larissa............................ 2:3  Ögmundur Kristinsson lék í marki Lar- issa. AEK Aþena – PAOK ............................... 2:2  Sverrir Ingi Ingason var ónotaður vara- maður hjá PAOK. Danmörk SönderjyskE – Bröndby.......................... 2:1  Eggert Gunnþór var ekki í leikmanna- hópi SönderjyskE en Ísak Óli Ólafsson var ónotaður varamaður.  Hjörtur Hermannsson var ónotaður varamaður hjá Bröndby. AGF – Nordsjælland ............................... 3:1  Jón Dagur Þorsteinsson var ónotaður varamaður hjá AGF. Midtjylland – OB...................................... 0:1  Mikael Anderson lék allan tímann með Midtjylland. Kolding – BSF.......................................... 2:0  Kristrún Rut Antonsdóttir lék allan tím- ann með BSF. Svíþjóð Elfsborg – AIK......................................... 1:1  Kolbeinn Sigþórsson lék allan tímann með AIK. Eskilstuna – Malmö ................................. 0:1  Arnór Ingvi Traustason fór af velli á 72. mínútu í liði Malmö. Falkenberg – Norrköping...................... 0:2  Guðmundur lék í 89 mínútur í liði Norr- köping og lagði upp fyrra markið en Ísak Bergmann Jóhannesson var ónotaður vara- maður. Kungsbacka – Rosengård....................... 1:2  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan tím- ann með Rosengård. Kristianstad – Piteå ................................ 1:1  Sif Atladóttir og Svava Rós Guðmunds- dóttir léku allan tímann með Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Limhamn Bunkeflo – Växjö ................... 1:1  Andrea Thorisson var ekki í leikmanna- hópi Bunkeflo.  EM 2020 Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Frammistaðan var allt önnur og betri að þessu sinni. Ég er afar stolt- ur yfir hvernig leikmenn svörðu fyr- ir sig. Þær eiga skilið mikið hrós fyr- ir að sýna virkilega úr hverju þær eru gerðar og með því að ná að rífa sig upp eftir leikinn í Króatíu,“ sagði Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, eftir sjö marka tap íslenska landsliðsins fyrir heims,- og Evrópumeisturum Frakka, 23:17, í undankeppni Evr- ópumótsins í Schenker-höllinni á Ás- völlum í gærdag. Staðan í hálfleik var 13:10, Frökkum í vil. Eftir 21 marks tap fyrir Króatíu, 29:8, á miðvikudaginn vissu áhorf- endur ekki hverju þeir máttu búast við af íslenska landsliðinu gegn stjörnum prýddu landsliði Frakka í gær. Byrjunin var erfið. Aðeins eitt mark gegn fjórum fyrstu tíu mín- úturnar. En í stað þess að brotna þá efldust leikmenn íslenska liðsins þannig að þeir áttu í fullu tré við heimsmeistarana þar til á síðustu tíu til fimmtán mínútur leiksins. Forskot Frakka var eitt til þrjú mörk í fyrri hálfleik. Upphafskafli síðari hálfleiks var afar góður. Á honum jafnaði íslenska liði metin, 13:13. Frakkar náðu í framhaldinu fimm marka forskoti sem íslenska liðið svaraði vel. Á síðustu tíu til tólf mínútum leiksins kom munurinn á liðunum vel í ljós. Íslenska liðinu gekk illa að opna vörn Frakka og skoraði liðið aðeins tvö mörk síðasta stundarfjórðunginn. Munurinn jókst og leiðir skildi. Varnarleikur íslenska landsliðsins var frábær í gær. Ester Óskars- dóttir og Steinunn Björnsdóttir voru þar fremstar meðal jafninga. Íris Björk Símonadóttir átti framúrskar- andi leik í markinu, varði 13 skot, þar af þrjú vítaköst. Sóknarleik- urinn var upp og ofan enda ekki nein lömb að leika við í frönsku vörninni. Íslensku leikmennirnir og þjálf- aranir eiga sem fyrr mikið verk fyrir höndum að snúa sóknarleiknum til betra horfs. „Við verðum að gera betur í nokkrum þáttum leiksins til þess að eiga möguleika á að nálgast bestu liðin í Evrópu. Viljinn og áhuginn er fyrir hendi til að taka framfaraskref. Til þess verður hlaupageta og styrk- urinn til dæmis að vera meiri en nú er raun á. Það er kominn tími til þess að vinna með markvissari hætti í þessum atriðum,“ sagði Arnar Pét- ursson landsliðsþjálfari. Héldu heimsmeisturunum við efnið allan tímann  Allt annað að sjá til íslenska liðsins gegn Frökkum en á móti Króötum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Áfangi Karen Knútsdóttir varð í gær níunda landsliðkona Íslands til þess að leika 100 A-landsleiki. Hún varð markahæst í íslenska liðinu með sex mörk. Hér sækir hún að Grace Deuna og Pauline Coatanea. Ásvellir, undankeppni EM kvenna, sunnudaginn 29. september 2019. Gangur leiksins: 0:3, 3:4, 4:6, 6:8, 8:10, 10:13, 12:13, 13:16, 15:18, 16:20, 16:22, 17:23. Mörk Íslands: Karen Knútsdóttir 6/5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Thea Imani Sturludóttir 3, Rut Jóns- dóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 1, Helena Rut Örvarsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 13/3. Ísland – Frakkland 17:23 Utan vallar: 0 mínútur. Mörk Frakklands: Gnonsiane Niombla 5/1, Graze Deuna 4, Camille Saurina 3, Pauline Coatanea 2, Oceane Ugolin 2, Estelle Minko 2, Astridi N’Gouan 1, Chloe Bouquet 1, Manon Houette 1, Beatrice Edwige 1, Blandine Dancette 1. Varin skot: Catherine Gabriel 8/1, Amadine Leynaud 7. Utan vallar: 0 mínútur. Áhorfendur: 600. Hinn 23 ára gamli Christian Coleman frá Bandaríkj- unum varð heimsmeistari í 100 metra hlaupi á heims- meistaramótinu í frjálsum íþróttum í Doha í Katar. Cole- man kom í mark á besta tíma ársins, 9,76 sekúndum. Landi hans, hinn 37 ára gamli Justin Gatlin, sem átti titil að verja, varð annar á 9,89 sekúndum og Kanadamað- urinn Andre De Grasse hreppti bronsverðlaunin en tími hans var 9,90 sekúndur. „Þetta er ótrúlegur tími og ég bætti minn besta árang- ur. Ég held að ég geti enn bætt mig og náð betri tíma,“ sagði Coleman eftir hlaupið en hann er einnig ríkjandi heimsmeistari innanhúss í greininni. Jamaíkamaðurinn Usain Bolt á heimsmetið í 100 metra hlaupi en það er 9,59 sekúndur, sem hann setti á HM í Berlín árið 2009. Bolt á einnig heims- metið í 200 m hlaupi, 19,19 sekúndur, en hann lagði hlaupaskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið í London fyrir tveimur árum. gummih@mbl.is Coleman vann gullið Christian Coleman Shelly-Ann Fraser-Pryce frá Ja- maíka kom fyrst í mark í 100 metra hlaupi kvenna í gær á heimsmeist- aramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Doho í Katar. Fraser-Pryce hljóp á tímanum 10,71 sekúnda og var tólf hundraðs- hlutum úr sekúndu á undan Dinu Asher-Smith frá Bretlandi sem var önnur. Marie-Josee Ta Lou frá Fíla- breinsströndinni fékk brons. Þetta voru áttundu gull- verðlaunin sem Fraser-Pryce vinn- ur á heimsmeistaramóti en hún verður 33 ára gömul í desember. bjarnih@mbl.is Áttundu gull- verðlaun Pryce AFP Fljótust Shelly-Ann Fraser-Price fagnar með syni sínum Zyon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.