Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 4
Þ
að sem heillaði mig fyrst og fremst
við þessa íbúð var hversu björt hún
er og með grænu útsýni. Ég sé Há-
teigskirkju í austurátt og svo sé ég
líka Hallgrímskirkju speglast í
svalahandriðinu. Þótt íbúðin sé ný þá er hverfið
mjög grænt og gróið og ég nýt þess að horfa á
gróðurinn.“ Edda keypti íbúðina fyrir tveimur
árum og er sérlega ánægð með bakgarðinn.
„Garðurinn er ofan á bílakjallara og þar var
plantað mörgum berjarunnum sem hafa sprott-
ið mjög vel. Börnin eru alltaf þarna úti að leika
og að tína ber, það er mjög skemmtilegt.“
Smáhlutir frá ferðalögum
Aðspurð út í sinn uppáhaldsstað í íbúðinni
segir hún að þeir séu tveir. Á morgnana er það
eyjan í eldhúsinu þar sem hún nýtur fyrsta
kaffibollans en á kvöldin er það græni sófinn.
„Þetta er einingasófi úr Ikea sem ég er búin að
eiga í fjögur ár. Hann er alveg ofboðslega þægi-
legur og gott að setjast niður í hann eftir vinnu.
Það sem er líka svo gott við hann er að það er
hægt að skipta um áklæði á honum. Núna er
áklæðið grænt en ég á annað til skiptanna,“
segir Edda og bætir við að hún og Ívar sonur
hennar skipti sófanum bróðurlega á milli sín;
hann fái stærri hlutann en hún eina hornein-
ingu. Fyrir framan sófann er sjónvarpsskenkur
sem hýsir ekki bara sjónvarpið heldur líka alls
konar smáhluti sem Edda hefur sankað að sér á
ferðalögum sínum eins og pólskan fugl og eft-
irlíkingu af Empire State-byggingunni. Eins er
nokkuð um hluti frá Svíþjóð í íbúðinni en Edda
bjó þar í fjögur ár og starfaði og stundaði nám í
sjálfbærri borgarhönnun í LTH-arkitektaskól-
anum í Lundi. „Mér finnst gaman að hafa
skemmtilega hluti í kringum mig, eitthvað sem
mér þykir vænt um.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Situr uppi með bílastæði
Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður Reykjavíkurborgar býr í lítilli íbúð í Þverholti ásamt 12 ára syni sínum. Hún heillaðist af grænu útsýni úr
gluggum íbúðarinnar en þrátt fyrir að íbúðin sé ný þá er hverfið gróið, sem er partur af sjarmanum við það byggja upp í eldri hverfum.
Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com
Með íbúð Eddu fylgir stæði í bílakjallara sem henni finnst vera algjör tímaskekkja. Bílastæði
með nýjum íbúðum ættu að vera val. Sjálf fer hún allra sinna ferða hjólandi eða gangandi.
Íbúð Eddu er björt og
með útsýni yfir grænt
og gróið hverfi.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019