Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 28

Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 28
rétta skrifstofur hugbúnaðarfyrirtækisins Userlike í Köln í Þýskalandi. Svo höfum við innréttað bæði hús og íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og á Suð-Austurlandi, sem og að vinna mikið með eigendum hótela og gistihúsa á Suður- og Suð- Austurlandi. Síðan erum við í alls konar ráðgjöf og smærri verkefnum í bland. Ég hlakka því bara til vetrarins.“ Fimm góð heimilisráð fyrir haustið frá Grafít: 1. Rétt lýsing skiptir máli. Það er aldrei nóg af lömpum, dim- merum og kertum. 2. Náttúrulegur efniviður í húsgögnum gerir heimilið hlýlegt. Púðar, teppi og gardínur líka og bæta auk þess hljóðvistina. 3. Litir vetrarins eru mjúkir náttúrulitir sem poppaðir eru upp með sterkum tónum. 4. Góður ilmur á spreybrúsa eða góð ilmkerti gefa heimilinu ákveðinn ferskleika þegar ilms sumargróðursins nýtur ekki lengur við. 5. Plöntur auka loftgæðin, sem ekki veitir af þegar fólk fer að verja meiri tíma innandyra á haustin. Hansa-hillur skapa hlýleika en í þær er hægt að raða endalaust. „Screen-gardínur eru frábærar til að vernda húsgögn og viðargólf gegn upplitun frá sólinni en beinir vængir án kappa eru líka góðir með þeim. Síðir vængir gefa kósí stemningu og bæta hljóðvistina til muna. Tekkskrifborð fer vel við Eames-stól og gamla ritvél. Það getur verið flókið að raða í svona eldhúshillur en hér má sjá hvað það er fallegt að blanda saman bókum, ljós- myndum og plöntum. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.