Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 30
Þ að er verið að byggja íbúðir sem er ekki þörf fyrir á meðan það eru ekki til eignir sem markaðurinn kallar eft- ir. Þetta þarf að spila saman,“ seg- ir Tryggvi Gunnarsson, fasteigna- sali hjá Eignaveri á Akureyri, sem sestur er niður ásamt fasteignasal- anum Friðriki Sigþórssyni hjá Fasteignasölu Akureyrar til þess að ræða fasteignamarkaðinn á Akureyri. Töluvert hefur verið byggt á Akureyri að undanförnu en að þeirra sögn er eftirspurn eftir nýju húsnæði þó alls ekki fullnægt. „Það vantar minni ein- býlishús með bílskúr og eins meira af tveggja til þriggja herbergja íbúðum,“ segir Friðrik. „Ég skil ekki út af hverju fasteignasalar, sem vita hvað fólk vill, koma ekki að skipulagningu hverfa. Við búum hér öll í einu stóru samfélagi og við viljum að allir hafi góða bú- setu. Ég er ekki að tala um að fasteignasalar séu í einhverjum launuðum störfum hjá bænum heldur að þeir séu bara kallaðir til í undirbúningsferlinu. Því hver þekkir þarfir og óskir bæjarbúa betur heldur en fasteignasalar? Við erum alla daga í beinu sam- bandi við fólk sem er að leita sér að húsnæði og vitum því hvað vantar á markaðinn,“ segir Tryggvi. Hann segir að það hafi verið nokkuð um það að byggingaraðilar leiti álits hjá fasteignasölum varð- andi það hverskonar eignir þeir eigi að byggja og það hafi reynst vel. Hinsvegar séu byggingaraðilar bundnir af skipulagi bæjarins og geti því heldur ekki alltaf byggt það sem vantar. „Þess vegna finnst mér að bæj- aryfirvöld ættu að taka upp tóliðMorgunblaðið/Sigurður Bogi Töluvert hefur ver- ið byggt á Akureyri að undanförnu. Góð sala en engin læti Meiri samvinna ætti að vera á milli byggingaraðila, bæjaryfir- valda og fasteignasala þegar byggingarsvæði eru skipulögð. Þetta er skoðun tveggja fasteignasala á Akureyri, þeirra Frið- riks Sigþórssonar og Tryggva Gunnarssonar. Þeir væru til í að sjá fleiri eignir byggðar samkvæmt eftirspurn íbúa og finnst að kalla ætti fasteignasala að skipulagsvinnu. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 IGUALA bekkur. 120x38xH45 cm. 29.900 kr. 23.920 kr BIZERTE hliðarborð. 2 í setti. 19.990 kr. 15.992 kr ZABAR hliðarborð. D46xH52cm6.990 kr. 5.592 kr KALMAR stóll. 71x68.5xH95 cm. 69.900 kr. 55.920 kr KALMAR skemill. 29.900 kr. 23.920 kr AUCKLAND spegill. 200x100c 29.900 kr. 23.920 kr www.pier.is H Ú S G A G N A D A G A R 20 % A F S L Á T T U R * Þetta tilboð gildir til 11. sept *Gildir ekki með öðrum tilboðum. SELFOSS LAU 10-18 SUN 12-18 - VIRKIR DAGAR 11- 18:30 KORPUTORG LAU OG SUN 12-18 - VIRKIR DAGAR 11- 18:30 MANHATTAN sófi. 220x90 H77 189.900 kr. 151.920 kr 20% 20% 20%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.