Morgunblaðið - 15.10.2019, Qupperneq 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
F
jórtán milljónir eintaka af
BMW 3 hafa selst í heim-
inum frá því að bíllinn kom
fyrst á markaðinn árið 1975,
sem gerir hann að einum söluhæsta
bíl í heimi frá upphafi. Ekki er þó út-
lit fyrir að mikið bætist við þessa tölu
hér á landi nú í vetur, því samkvæmt
upplýsingum sem fengust hjá BL,
umboðsaðila BMW, eru aðeins sára-
fáir bílar af sjöundu kynslóð, þessari
allra nýjustu, fluttir til landsins.
Ástæðan er líklega að mestu sú að
Íslendingar hafa að töluverðu leyti
snúið baki við stallbökum (e. sedan) –
millistórum fólksbílum með skotti –
sem í gegnum áratugina hafa reynd-
ar verið mjög vinsælir hér á landi. Í
dag virðist sem flestir velji fremur
jepplinga, enda henta þeir bæði
barnafólki, sem og eldra fólki sem á
erfitt með að setjast í og standa upp
úr lágum bílum.
En ég ákvað láta þessar pælingar
ekki skemma fyrir mér þann lúxus
að fá að hafa BMW 3 Series Sedan í
nokkra daga og aka honum um borg
og bý.
Flottur framendi
BMW 3 er auðþekkjanlegur útlits.
Framendinn er flottur með áberandi
krómi og plastristum, ásamt lag-
legum leysiljósum. Að aftan eru tvö
vígaleg púströr sem enn frekar
ramma inn sportútlit bílsins. Há-
karlsugginn á toppi bílsins er á sín-
um stað og er eitt af einkenn-
ismerkjum hans.
Þessi bíll hefur aðeins breyst frá
sjöttu kynslóð. Hann er t.d. 76 milli-
metrum lengri og 60 millimetrum
breiðari, sem hvort tveggja hjálpar
til við að gefa honum veglegri holn-
ingu. Þá er þyngdarpunkturinn 10
millimetrum lægri, sem aftur hjálpar
enn til við að gera hann stöðugan í
beygjum.
Áður en við ræðum innra byrði
bílsins er rétt að kíkja í skottið. Þar
var gaman að sjá ágætar hirslur
bæði vinstra og hægra megin fremst
í skottinu. Sjálfur er ég nefnilega
mjög hrifinn af því að geta komið dóti
kirfilega fyrir þannig að það hendist
ekki út og suður á meðan á akstri
stendur en í heildina litið er skottið
af viðunandi stærð, a.m.k. bjóst ég
ekki við meira rými.
Eftir að ég lokaði skottinu
smeygði ég mér inn í aftursætið og
undi mér ágætlega þar um stund.
Pláss fyrir fætur prýðilegt og sömu-
leiðis fær meðalmaðurinn gott höfuð-
pláss.
En þá er komið að aðalmálinu,
ökumannssætinu og þeim stoðtækj-
um sem þar er að finna, en þau eru
ekki af verri endanum í þessari nýj-
ustu útgáfu af BMW 3, sem er hlað-
inn tækninýjungum. Margt af því
hefur maður reyndar séð í öðrum bíl-
um, en þó ekki allt.
Það sem var glænýtt fyrir þeim
sem hér hamrar á lyklaborðið var
stjórnun útvarpsstöðvanna í bílnum.
Hægt er að stjórna þeim með hefð-
bundnum hætti í stýrinu, eða af
stjórnborðinu fyrir miðju bílsins, eða
hjá gírstönginni, en þessi nýja virkni
sem ég lýsi hér á eftir fannst mér
skemmtileg. Til að hækka í útvarp-
inu getur maður veifað hendinni með
bendandi vísifingri í hringi til hægri,
en ef maður vill lækka snýr maður
fingrinum í hringi til vinstri. Til að
skipta um stöð, annaðhvort að fara
upp stöðvalistann eða niður hann,
setur maður höndina eins og maður
sé að húkka far úti á þjóðvegi og
hreyfir svo þumalinn til hægri til að
fara niður listann en til vinstri ef
maður vill fara upp hann.
Stundum þarf ekki mikið til að
kæta mann.
Veglýsing í framrúðunni
Ég hef, í þó nokkrum af þeim bíl-
um sem ég hef reynsluekið síðustu
misserin, fengið að aka með svokall-
aðan framrúðuskjá (e. head-up
display), þar sem upplýsingar koma í
framrúðuna beint fyrir framan öku-
mann. En hér er búið að bæta um
betur og þegar kveikt er á leið-
sögukerfinu kemur það við hlið
Morgunblaðið/Hari
Eins og hendi væri veifað
Nýjasta kynslóð BMW 3 er hlaðin tækninýj-
ungum. Meðal annars er hægt að sleppa stýr-
inu og láta bílinn sjálfan um að stýra sér, og
nota handabendingar til að hækka í útvarpinu. » 2,0 lítra díselvél
» 190 hestöfl / 400 Nm8
þrepa sjálfskipting
» 4,2-4,5 l/100 km í
blönduðum akstri
» 0-100 km/klst. á 6,8 sek.
Hámarkshr. 221 km/klst
» Drif á öllum hjólum
» 19" álfelgur
» Eigin þyngd: 1.643 kg.
» Farangursrými: 470 lítrar
» Sótspor: 120 g/km
» Umboð: BL.
» Verð frá: 6.490.000 kr.
BMW 320
Xdrive G20
Hlutföllin í framsvipnum eru eins og best verður á kosið.
Það fer bílnum óneitanlega vel að vera á 19 tommu felgum.