Morgunblaðið - 15.10.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 15.10.2019, Síða 12
Logi Bergmann Eiðsson logi@mbl.is E inu sinni átti ég sportbíla. Það var gaman. Það er eitt- hvað við að aka um á bíl sem bregst við um leið, svínliggur í öllum beygjum og getur gert nánast hvað sem er. Það er svo notalegt að vita að það er nóg til í vélinni. Svo eignast maður börn og enn fleiri börn og sameinaður í sekt- arkennd og samviskubiti, með slettu af skynsemi, skiptir maður á tveggja sæta sportbíl og sjö sæta strumpa- strætó og telur sér trú um að það sé nú bara nokkuð fínn bíll. En draum- urinn fer ekki neitt. Það var því ekki erfitt að selja mér að fá að prófa Ferrari 488GTB Novi- tec. Það er klárlega nokkuð sem maður þarf að gera áður en maður deyr. Já og sennilega sem oftast. Baldur Björnsson er eigandinn. Hann sækir mig og þegar ég geri mig líklegan til að fara farþega- megin veifar hann lyklunum og rétt- ir mér. Maður verður ósjálfrátt feiminn. Já og pínu stressaður. Hræddur við að skemma eitthvað og gera ein- hverja vitleysu. Missa stjórn á öllum þessum hestöflum. Sem er reyndar ekki galið því nóg er af þeim. Baldur segir mér að þetta sé fyrsti bíllinn frá Ferrari í 20 ár með túrbínu. Það róar mig ekkert sérstaklega mikið. Bílinn er 756 hestöfl. 756! Hámarks- hraðinn er 342 km. Þetta eru tölur sem tekur smá stund að melta. Lagst í ökumannssætið Bara að setjast inn í svona öku- tæki er kúnst. Þegar maður er 193 sentimetrar er það pínu aðgerð en lærist fljótt. Maður meira leggst inn í bílinn en sest. Hann liggur alveg niðri við götu og eitt það fyrsta sem maður lærir er að fara varlega í hraðahindranir. Það er svolítið af þeim í Vesturbænum og því förum við varlega af stað. Það er reyndar hægt að hækka hann aðeins en í þessari stillingu verður nándin við götuna og upplifunin jafnvel enn sterkari. Það er merkilegt að aka framhjá Melaskóla. Strákar í frímínútum hlaupa með bílnum. Algjörlega trylltir af spenningi enda er varla hægt að kalla þetta venjulegan bíl. Þeir eru bara tveir á Íslandi og hinn er gamli bíllinn hans Baldurs. Smám saman nær maður tökum á þessu og það hjálpar að bíllinn vill allt fyrir þig gera. Aksturstölvan er hér til að þjóna og skila hámarks- ánægju af akstrinum. Það er hægt að stilla hana í að leiðrétta alls konar vitleysur eða leyfa aflinu bara að fljóta hindrunarlaust. Ég vel fyrri kostinn. Baldur situr rólegur með mér. Reyndar gerist það annað slagið að hann setur bremsufótinn aðeins nið- ur en virðist merkilega slakur með ökumann sem er eins og lítið barn í dótabúð. Að njóta gæðanna Ég spyr hann um kraftinn. Hvort hann sé bara ekki of mikill fyrir göt- urnar á Íslandi. Hann hefur greini- lega fengið þessa spurningu áður: „Maður getur átt frábærar græjur án þess að vera alltaf að spila allt í botni. Stundum er bara gott að njóta gæðanna.“ Það er alls ekki galið svar því í tónlist væri þessi bíll hinn hreini tónn rokksins. Hljóðið er eins og klassísk íslensk húsmóðir á árum áð- ur sem segir: „Það er nóg til. Og meira frammi.“ Svo er meira að segja hægt að opna svo það heyrist meira í vélinni. Það kom mér á óvart hversu gaman það er. Maður tengist vélinni betur og verður nánast eins og ein heild með bílnum. Önnur spurning sem Baldur hefur örugglega oft svarað er hvort svona tæki sé ekki hræðilega dýrt. „Ég á fyrir þessu,“ segir hann rólegur. Sem er býsna gott svar og í því felst ákveðin nálgun á að gera það sem maður vill. Rauður Ferrari segir það reyndar líka nokkuð ákveðið. Annað sem vekur athygli er hve bíllinn er einfaldur. Hann er ekki með hinum hefðbundna stokk sem maður á venjast. Það er ekki gert ráð fyrir glasahöldurum, klinkhólfi, geymsluboxi og öllu hinu sem við sjáum í venjulegum bílum. Í þessum bíl ertu til að keyra. Ekki til að ferðast með fullt af drasli. Það er Morgunblaðið/Eggert Drengur í dótabúð Baldur og Logi á góðri stundu. Bíllinn vakti mikla hrifningu hjá ung- viðinu þegar honum var ekið fram hjá grunnskóla. Ferrari 488 sportbíllinn er draumabíll margra, og öku- tæki í algjörum sérflokki. 12 | MORGUNBLAÐIÐ Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.