Morgunblaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 12
Logi Bergmann Eiðsson
logi@mbl.is
E
inu sinni átti ég sportbíla.
Það var gaman. Það er eitt-
hvað við að aka um á bíl
sem bregst við um leið,
svínliggur í öllum beygjum og getur
gert nánast hvað sem er. Það er svo
notalegt að vita að það er nóg til í
vélinni.
Svo eignast maður börn og enn
fleiri börn og sameinaður í sekt-
arkennd og samviskubiti, með slettu
af skynsemi, skiptir maður á tveggja
sæta sportbíl og sjö sæta strumpa-
strætó og telur sér trú um að það sé
nú bara nokkuð fínn bíll. En draum-
urinn fer ekki neitt.
Það var því ekki erfitt að selja mér
að fá að prófa Ferrari 488GTB Novi-
tec. Það er klárlega nokkuð sem
maður þarf að gera áður en maður
deyr. Já og sennilega sem oftast.
Baldur Björnsson er eigandinn.
Hann sækir mig og þegar ég geri
mig líklegan til að fara farþega-
megin veifar hann lyklunum og rétt-
ir mér.
Maður verður ósjálfrátt feiminn.
Já og pínu stressaður. Hræddur við
að skemma eitthvað og gera ein-
hverja vitleysu. Missa stjórn á öllum
þessum hestöflum. Sem er reyndar
ekki galið því nóg er af þeim. Baldur
segir mér að þetta sé fyrsti bíllinn
frá Ferrari í 20 ár með túrbínu. Það
róar mig ekkert sérstaklega mikið.
Bílinn er 756 hestöfl. 756! Hámarks-
hraðinn er 342 km. Þetta eru tölur
sem tekur smá stund að melta.
Lagst í ökumannssætið
Bara að setjast inn í svona öku-
tæki er kúnst. Þegar maður er 193
sentimetrar er það pínu aðgerð en
lærist fljótt. Maður meira leggst inn
í bílinn en sest. Hann liggur alveg
niðri við götu og eitt það fyrsta sem
maður lærir er að fara varlega í
hraðahindranir. Það er svolítið af
þeim í Vesturbænum og því förum
við varlega af stað. Það er reyndar
hægt að hækka hann aðeins en í
þessari stillingu verður nándin við
götuna og upplifunin jafnvel enn
sterkari.
Það er merkilegt að aka framhjá
Melaskóla. Strákar í frímínútum
hlaupa með bílnum. Algjörlega
trylltir af spenningi enda er varla
hægt að kalla þetta venjulegan bíl.
Þeir eru bara tveir á Íslandi og hinn
er gamli bíllinn hans Baldurs.
Smám saman nær maður tökum á
þessu og það hjálpar að bíllinn vill
allt fyrir þig gera. Aksturstölvan er
hér til að þjóna og skila hámarks-
ánægju af akstrinum. Það er hægt
að stilla hana í að leiðrétta alls konar
vitleysur eða leyfa aflinu bara að
fljóta hindrunarlaust. Ég vel fyrri
kostinn.
Baldur situr rólegur með mér.
Reyndar gerist það annað slagið að
hann setur bremsufótinn aðeins nið-
ur en virðist merkilega slakur með
ökumann sem er eins og lítið barn í
dótabúð.
Að njóta gæðanna
Ég spyr hann um kraftinn. Hvort
hann sé bara ekki of mikill fyrir göt-
urnar á Íslandi. Hann hefur greini-
lega fengið þessa spurningu áður:
„Maður getur átt frábærar græjur
án þess að vera alltaf að spila allt í
botni. Stundum er bara gott að njóta
gæðanna.“
Það er alls ekki galið svar því í
tónlist væri þessi bíll hinn hreini
tónn rokksins. Hljóðið er eins og
klassísk íslensk húsmóðir á árum áð-
ur sem segir: „Það er nóg til. Og
meira frammi.“ Svo er meira að
segja hægt að opna svo það heyrist
meira í vélinni. Það kom mér á óvart
hversu gaman það er. Maður tengist
vélinni betur og verður nánast eins
og ein heild með bílnum.
Önnur spurning sem Baldur hefur
örugglega oft svarað er hvort svona
tæki sé ekki hræðilega dýrt. „Ég á
fyrir þessu,“ segir hann rólegur.
Sem er býsna gott svar og í því felst
ákveðin nálgun á að gera það sem
maður vill. Rauður Ferrari segir það
reyndar líka nokkuð ákveðið.
Annað sem vekur athygli er hve
bíllinn er einfaldur. Hann er ekki
með hinum hefðbundna stokk sem
maður á venjast. Það er ekki gert
ráð fyrir glasahöldurum, klinkhólfi,
geymsluboxi og öllu hinu sem við
sjáum í venjulegum bílum. Í þessum
bíl ertu til að keyra. Ekki til að
ferðast með fullt af drasli. Það er
Morgunblaðið/Eggert
Drengur í dótabúð
Baldur og Logi á góðri
stundu. Bíllinn vakti
mikla hrifningu hjá ung-
viðinu þegar honum var
ekið fram hjá grunnskóla.
Ferrari 488 sportbíllinn er
draumabíll margra, og öku-
tæki í algjörum sérflokki.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið: VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla