Morgunblaðið - 31.10.2019, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Forskot íslensks sjávar-
útvegs mun ekki vara að ei-
lífu og greinin þarf stöðugt
að vera á tánum.
10
31.10.2019
31 | 10 | 2019
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Blaðamenn
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Auglýsingar
Bjarni Ólafur Guðmundsson
bog@mbl.is
Forsíðumyndina tók Kristinn
Magnússon
Prentun
Landsprent ehf.
Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin í tíunda sinn dagana 7. og 8.
nóvember. Eins og undanfarin ár má reikna með fjölda gesta í Hörpu
og ljóst að von er á mjög áhugaverðum viðburði með fjölda fræðandi
málstofa um það nýjasta og besta í íslenskum sjávarútvegi og
tengdri starfsemi.
Það ætti að fylla lesendur bjartsýni að renna yfir dagskrárrit ráð-
stefnunnar, sem fylgir þessu sérblaði 200 mílna, því þar má sjá svart
á hvítu hvað landið á margt snjallt fólk og metnaðarfull fyrirtæki
sem vinna hörðum höndum að því að íslenskar sjávarafurðir sigri
heiminn.
Hvert sem litið er er verið að þróa nýja tækni, leita nýrra lausna,
gera vöruna betri, veiðarnar umhverfisvænni og nota úthugsað
markaðsstarf til að ná sem hæstu verði fyrir íslenskan fisk.
Það er líka eins gott, því eins og margir viðmælendur í þessu blaði
nefna skyldi ekki vanmeta getu samkeppnisþjóða Íslands til að nú-
tímavæða fiskveiðar sínar. Greinin hefur ágætisforskot í dag, en það
á eftir að minnka nema nýsköpun sé sinnt af metnaði. Þetta hefst
allt með fiskinum, en svo tekur hugvitið við. ai@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Þetta hefst allt með fiskinum, og hugvitinu
Miklu skiptir fyrir framtíð grein-
arinnar að takist að vekja og við-
halda áhuga unga fólksins á störf-
um tengdum sjávarútvegi.
6
Jens Garðar Helgason skoðar hvað
hefur áunnist og hvaða áskoranir
eru fram undan á fimm ára afmæli
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
8
Einn góðan veðurdag verða
kannski bara róbótar að störfum í
fiskvinnslum. Þeir ráða vel við slít-
andi og tilbreytingarlaus verk.
16
Það hefur reynst íslenskum sjávar-
útvegi mikið gæfuspor að sýna
metnað á sviði nýsköpunar, rann-
sókna og vöruþróunar. Enn eru
mörg tækifæri vannýtt.
18