Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
amtök fyrirtækja í sjávar-
útvegi voru stofnuð 31.
október 2014 með samein-
ingu Landssambands ís-
lenskra útgerðarmanna og
Samtaka fiskvinnslustöðva.
Jens Garðar Helgason, fyrsti for-
maður SFS, segir sameininguna hafa
átt mikilvægan þátt í þróun íslensks
sjávarútvegs.
„Það var mikið heillaskref fyrir ís-
lenskan sjávarútveg þegar Samtök
fiskvinnslustöðva og Landssamband
íslenskra útgerðarmanna samein-
uðust undir einu merki. Við stofnun
SFS var líka ákveðið að sölufyrirtæki
og fiskeldisfyrirtæki gætu einnig
verið félagar í nýjum samtökum.
Starf samtakanna hefur frá upphafi
gengið vel og SFS er sá vettvangur
sjávarútvegsins þar sem félagsmenn
koma saman og reyna að sameinast
um stefnu í þeim málum sem varða
greinina miklu,“ segir Jens.
Heildarhagsmunir
Formaðurinn telur sameininguna
auk aðkomu fleiri fyrirtækja hafa
haft þann kost að hægt var að mynda
heildstæða stefnu fyrir samverkandi
þætti í greininni. „Það segir sig sjálft
að þegar öll virðiskeðjan í íslenskum
sjávarútvegi er komin undir einn
hatt þá heyrast raddir og sjónarmið
allra. Í framhaldi af því er hægt að
móta og leggja fram áherslur fyrir
greinina sem endurspegla sjónarmið
hennar og heildarhagsmuni. Með
fjöldanum er líka hægt að byggja
upp öflugri samtök sem hafa tæki-
færi til að veita víðtækari og betri
þjónustu við félagsmenn um allt
land.
Það sem hefur áunnist í starfi SFS
undanfarin 5 ár er að samtökin hafa
lagt mikla áherslu á að fræða og upp-
lýsa landsmenn um íslenskan sjávar-
útveg. Íslenskur sjávarútvegur er
leiðandi á heimsvísu í svo mörgum
skilningi og árangur okkar er eftir-
tektarverður um allan heim. Því er
það svo mikilvægt að upplýsa fólk á
hverjum tíma um það öfluga starf og
nýsköpun sem á sér stað í greininni,“
útskýrir Jens. Hann bendir einnig á
að það sé líka hlutverk SFS að
bregðast við þegar erfið mál koma
upp. „Eins og lokun Rússlandsmark-
aðar, sem kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Sjómannaverkfallið
var greininni erfitt en lauk á end-
anum með samningi.“
Þá sé einnig unnið mikilvægt starf
á alþjóðavettvangi, hvort sem um er
að ræða samninga um deilistofna eða
hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd á
vettvangi alþjóðastofnana, að sögn
formannsins.
Mikilvægt að nálgast
alla af virðingu
„Hjá samtökunum vinnur öflugur
hópur fólks, undir stjórn Heiðrúnar
Lindar Marteinsdóttur, sem á stóran
þátt í því að hafa eflt og styrkt starf
samtakanna,“ segir Jens og bendir á
starfsmenn SFS séu nú fimmtán og
eru þeir sérfræðingar á ýmsum svið-
um svo sem líffræði, viðskiptafræði,
hagfræði, tölvunarfræði, verkfræði
og lögfræði.
Spurður hvernig það hafi verið að
leiða samtökin þegar litið er til þess
hve umdeildur sjávarútvegurinn hef-
ur verið í íslenskri þjóðfélags-
umræðu, svarar Jens að það hafi
bæði verið „gríðarlega gefandi og
skemmtilegt að fá að starfa fyrir
SFS undanfarin ár. Í greininni starf-
ar frábært fólk sem hefur mikinn
metnað fyrir hönd sinna fyrirtækja
og samfélaga og það er virkilega
ánægjulegt að fá að vera málsvari
þeirra.“
Þá krefst formennska í samtök-
unum mikilla samskipta við fjöl-
breyttan hóp í samfélaginu, að mati
formannsins. „Oft þegar mikið er í
húfi og skiptar skoðanir eru á við-
komandi málefni. Í mínum huga er
það mikilvægast að nálgast alla um-
ræðu af virðingu, með rökum og af
yfirvegun. Kurteisi og almenn virð-
ing fyrir fólki kostar ekki neitt og er
líklegri til árangurs.“
Kjarasamningar framundan
Hann segir ljóst að samtökin eigi er-
indi við framtíðina enda séu sífellt ný
verkefni sem krefjast úrlausnar.
„Það er nú þannig að þegar ein báran
rís, er önnur vís. Þannig er það í
sjónum og þannig er það líka á vett-
vangi SFS. Við eins og aðrar at-
vinnugreinar verðum að takast á við
breytingar því alltaf koma ný og ný
verkefni, ekki vandamál, heldur
verkefni sem við reynum að leysa
eftir bestu getu með hagsmuni heild-
arinnar að leiðarljósi. Þá á ég ekki
bara við hagsmuni okkar félags-
manna, heldur samfélagsins í heild.
Sjávarútvegur er leiðandi atvinnu-
grein á Íslandi þegar kemur að inn-
leiðingu fjórðu iðnbyltingarinnar
svokölluðu og það kallar á aukna
fræðslu og upplýsingagjöf til al-
mennings og stjórnvalda.
Framundan eru nýir kjarasamn-
ingar við sjómenn, áframhaldandi
vinna við að styðja stjórnvöld við að
ná strandveiðiþjóðunum að samn-
ingaborðinu um deilistofnana og al-
menn og dagleg þjónusta við fé-
lagsmenn okkar. Við þekkjum það í
sjávarútvegi að engir tveir dagar eru
eins og það munu alltaf koma ný og
ný verkefni inn á okkar borð,“ bætir
hann við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jens Garðar Helgason, formaður SFS, segir samtökin ekki hafa nein vandamál að kljást við heldur verkefni. Þá sé starfi samtakanna aldrei lokið þar sem sífellt koma ný verkefni sem taka við af öðrum.
Gefandi og skemmtilegt að leiða SFS
Fimm ár eru liðin frá því
að Samtök fyrirtækja í
sjávarútvegi voru stofn-
uð. Þegar litið er til baka
telur formaður samtak-
anna að mikill árangur
hafi náðst eftir að kraft-
ar fjölbreyttra fyrirtækja
fóru að vinna saman.
Tilgangur samtakanna er, sam-
kvæmt samþykktum þess, að
gæta hagsmuna íslenskra fyrir-
tækja í sjávarútvegi með því að:
Stuðla að hagkvæmni íslensks
sjávarútvegs og íslenskra sjávar-
útvegsfyrirtækja
Styðja við nýsköpun og mennt-
un tengda sjávarútvegi
Efla skilning og ímynd
Stuðla að upplýstri umræðu
um íslenskan sjávarútveg
Taka þátt í alþjóðasamstarfi og
gæta hagsmuna íslensks sjávar-
útvegs á erlendum vettvangi
Vera í forsvari gagnvart stjórn-
völdum í málum er snerta hags-
muni og réttindi félagsmanna
Gera kjarasamninga fyrir hönd
félagsmanna
Vinna að eflingu hafrannsókna
og sjálfbærri nýtingu auðlinda
hafsins og efla ímynd og styrkja
samkeppnisstöðu íslensks sjávar-
útvegs á erlendum mörkuðum
Stuðla að
upplýstri
umræðu
Morgunblaðið/Golli
Sjómannaverkfallið var greininni erfitt, að sögn formannsins. Tókst þó að lokum að leysa deiluna.