Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Y
ara Birkeland mun verða
fyrsta sjálfsiglandi og raf-
magnsknúna flutningaskip
sögunnar. Áætlað er að
smíði skipsins ljúki á næsta
ári og mun það fyrst um sinn sigla
með áhöfn á meðan prófanir standa
yfir, en stefnt er að því að á tveimur
árum muni áhöfnin verða óþörf.
„Yara Birkeland er að ryðja braut-
ina á sviði sjálfsiglandi skipa og í
þróun rafknúinna flutningaskipa
sem losa ekki gróðurhúsaloftteg-
undir,“ segir í svari fyrirtækisins
Yara við fyrirspurn 200 mílna um
verkefnið.
Það eru norsku fyrirtækin Yara og
Kongsberg sem standa að þróunar-
verkefninu. Talið er að skipið muni
gera allt að 40 þúsund vörubílaferðir
óþarfar og mun það draga verulega
úr kolefnislosun auk þess sem gert er
ráð fyrir að fækkun vörubíla sé til
þess fallin að auka umferðaröryggi í
þéttbýli. Þá eru rafmagnsvélar skips-
ins hljóðlátar og dregur því einnig úr
hljóðmengun.
Skipinu er ætlað að þjónusta Yara
sem í dag sendir vörur sínar í 100
vörubílaferðum á dag frá verksmiðju
sinni í Porsgrunn í Noregi til hafnar í
Brevik og Larvik.
Smíðin flókin framkvæmd
Það var í maí 2017 sem fyrirtækin tvö
tilkynntu að þau hygðust þróa sjálf-
siglandi rafknúið flutningaskip og
hlaut verkefnið styrk frá umhverf-
isstyrktarsjóði norska ríkisins,
ENOVA. Nam styrkurinn 133,6
milljónum norskra króna eða jafn-
virði 1,8 milljarða íslenskra króna. Í
september sama ár var kynnt til sög-
unnar sex metra langt líkan af skip-
inu. Hófust síðan prófanir í 80 metra
langri innanhúss-sjólaug hjá rann-
sóknarsetri SINTEF í Þrándheimi.
Bundnar voru miklar vonir við
verkefnið og var haft eftir Geir Håøy,
forstjóra Kongsberg, eftir próf-
anirnar að þær hefðu „gengið vel og
hefur verið sýnt fram á að hug-
myndin og tæknin virkar. Auk þess
er skipið mikilvægt skref fyrir sigl-
ingageirann allan.“ Var gert ráð fyrir
að skipið myndi vera tilbúið til þess
að hefja siglingar á fyrsta árshelm-
ingi 2019.
Urðu þó tafir á verkefninu og var
loks samið við skipasmíðastöðina
VARD í ágúst 2018. Nam verðmæti
samningsins 250 milljónum norskra
króna, jafnvirði 3,4 milljarða ís-
lenskra króna. Samkvæmt nýrri áætl-
un er gert ráð fyrir að skipið hefji
siglingar á næsta ári og verði að fullu
sjálfsiglandi árið 2022.
„Smíði fyrsta rafknúna og sjálfsigl-
andi skipsins er framsækið og flókið
verkefni. Eins og í öllum nýsköp-
unarverkefnum verður að gera ráð
fyrir óvæntum áskorunum og hindr-
unum, þetta hefur einnig verið tilfellið
við smíði Yara Birkeland. Tafir verk-
efnisins má fyrst og fremst rekja til
þátta er tengjast tæknilegri út-
færslu,“ segir í svari Yara. Þá segir
einnig að töluverðan tíma hafi tekið
að afla allra tilskilinna leyfa enda eru
margir aðilar sem koma að vinnunni.
Jafnframt hafi verið áskorun að halda
framgangi þessa þáttar í takt við
smíði skipsins.
„Skrokkurinn, sem smíðaður er í
Rúmeníu, mun verða afhentur í Nor-
egi í lok næsta árs. Við munum í fram-
haldinu þróa í skrefum sjálfstýringu
skipsins.“
Strandsiglingar á ný?
Það er óneitanlega hægt að ímynda
sér ýmis tækifæri sem felast í sjálf-
siglandi skipum. Má meðal annars
gera ráð fyrir því að rekstrarkostn-
aður vegna flutninga lækki þegar
launakostnaður áhafnar hverfur.
Jafnframt er ljóst að ekki verða flutn-
ingar lengur háðir vinnufyrirkomulagi
áhafna og skipulögðum ferðum, held-
ur geta skipin einfaldlega lagt af stað
þegar fullhlaðið er eða á þann stað þar
sem þörf er á þeim.
Eflaust gætu minni sjálfsiglandi
rafknúin flutningaskip sinnt strand-
siglingum hér við land í einhverjum
mæli þar sem þau gætu t.d. flutt sjáv-
arfang milli hafna með litlum tilkostn-
aði og ekki síst með tilheyrandi
sparnaði í eldsneytiskostnaði. Þá er
eflaust samfélagslegur ávinningur
fólginn í því að draga úr sliti á vegum
landsins og minnka notkun innfluttra
orkugjafa.
Sjálvirknivæðingin er
hafin á flestum sviðum
og geta leynst tækifæri í
tækni sem getur boðið
útgerðum bæði lægri
kostnað og betri lausnir
fyrir umhverfið.
Sjálfsiglandi rafskip framtíðarinnar
Teikning/Yara
Ljósmynd/Yara
Líkan skipsins gat sannað að hugmyndin og tæknin væri eitthvað sem raunverulega væri hægt að framkvæma.
Það er spurning hvort
gámahleðslan verði einnig
sjálfvirk í framtíðinni.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
H
rafn Sigurðsson, vélfræð-
ingur og einn þriggja
eigenda Aflhluta ehf.,
segir að nú styttist í að
til Íslands komi stærsti
vertíðarbátur sem smíðaður hefur
verið úr trefjaplasti fyrir íslenska
útgerð. Um er að ræða Bárð SH-81
sem er í eigu útgerðarmannsins
Péturs Péturssonar á Arnarstapa.
Aflhlutir eiga milligöngu um smíði
og sölu bátsins og selur að auki
mestallan búnað í hann, en fyrir-
tækið tók við umboði fyrir dönsku
skipasmíðastöðina Bredgaard Boats
árið 2016. Hrafn segir Bredgaard
Boats bjóða upp á valkosti sem ekki
hafi sést á Íslandi áður.
Mikil endurnýjun hefur átt sér
stað á undanförnum árum í tog-
araflota og uppsjávarskipum Íslend-
inga og telur Hrafn að nú sé „komið
að þessum hefðbundnu vertíð-
arbátum sem hafa setið eftir. Við
sjáum að þessir bátar eru flestir
komnir til ára sinna og þarfnast
endurnýjunar. Viðhaldskostnaður
og óhagkvæmni í rekstri eru tölu-
verð miðað við þann búnað sem í
boði er í dag.“ Þá sé til að mynda
eldsneytisnotkun aðalvélar Bárðar
með því minnsta sem gerist í þess-
um vélaflokki. Jafnframt uppfyllir
hún þær ströngu mengunarkröfur
sem gerðar eru í dag, að sögn
Hrafns.
Tölvustýrð voð með snertiskjá
Helgi Axel Svavarsson, vélfræð-
ingur og rafiðnfræðingur sem einn-
ig er einn eigenda Aflhluta, telur að
Bárður verði „einn fullkomnasti
bátur af þessari stærð þegar hann
kemur til landsins. Við erum með
puttana í mörgu í tæknibúnaðinum í
þessum bát og erum líka að sinna
eftirliti með smíðinni.“ Hann vekur
sérstaka athygli á hliðarskrúfum
bátsins sem hann segir hafa reynst
gríðarlega vel fyrir smærri gerð af
bátum.
Hrafn fullyrðir að í nýjum Bárði
sé stjórnbúnaðurinn fyrir snuðvoð-
ina með því fullkomnasta sem þekk-
ist auk þess sem öll stjórnun á voð-
inni sé tölvustýrð með snertiskjá.
„Þessi búnaður kemur frá AS-Scan í
Danmörku. Allt vökvakerfið í bátinn
er einnig lagt af sérfræðingum AS-
Scan. Vökvadælur og lokar koma
frá Landvélum. Það er víða komið
við í þessu og þetta verður gríð-
arlega öflugur bátur í alla staði og
vandaður.“
Nýr kafli í sögu trefjabáta
„Þegar menn átta sig á öllum kost-
um þessa báts og gæðum búnaðar-
ins, erum við bjartsýnir á að þeir
flykkist um borð í hann til að
skoða,“ segir Björn Jóhann Björns-
son, þriðji eigandi Aflhluta. Hann
telur fleiri eiga eftir að leita að bát-
um sem eru búnir sambærilegum
nýjungum ef þeir kynnast þeim.
„Ég er viss um að með þessum nýja
Bárði hefjist nýr kafli í smíði plast-
báta fyrir íslenskar útgerðir. Vinn-
an er einstaklega vönduð og verðið
mjög gott og höfum við mikla trú á
því að fleiri fylgi í kjölfarið.
Nú er verið að sjósetja nýjan bát
hjá Bredgaard Boats fyrir græn-
lenskan viðskiptavin. Sá bátur er
mjög glæsilegur á allan hátt. Þessi
bátur er 15 metra langur og 6,7
metra breiður. Þarna sjáum við
mikla möguleika á bátum fyrir línu-
bátana í krókaaflamarkinu,“ segir
Björn sem bendir á að Aflhlutir eru
með annan bát í smíðum fyrir
Grænlendinga.
„Einn fullkomnasti bátur af þessari stærð“
Eigendur Aflhluta hafa
haft milligöngu og
umsjón með smíði nýs
Bárðar SH. Þeir telja
nýjungar bátsins draga
bæði úr viðhaldskostn-
aði og óhagkvæmni
smærri og eldri báta.
Bárður verður stærsti vertíðarbátur úr trefjaplasti smíðaður fyrir íslenskan aðila.
Aðalvél frá MAN með 900
hestöfl.
TWIN DISC MGX niður-
færslugír.
Skrúfubúnaðurinn kemur frá
Teignbridge.
Tvær ljósavélar frá Zenoro í
Hollandi
Hliðarskrúfurnar bæði að
framan og aftan frá ABT Track
í Bandaríkjunum.
Krani frá GUERRA á Spáni.
Bárður SH vel búinn
Björn og Hrafn eru sannfærðir um
að Bárður muni vekja athygli.