Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í slensk sjávarútvegsfyrirtæki eru rétt að byrja að nýta sér mögu- leika róbótatækni. Enginn vafi er á að þessar óþreytandi undravélar munu smám saman ná meiri útbreiðslu og gæti jafnvel verið að einn daginn snerti manns- höndinn aldrei fiskinn, allt frá því hann kemur úr netinu og þar til hann er kominn, snyrtur og fínn, í kassa of- an á bretti. Kristján Ármannsson, yfirmaður tæknilegra lausna hjá Samey, mun halda erindi á Sjávarútvegsráðstefn- unni næstkomandi fimmtudag þar sem hann fjallar um það hlutverk sem róbótar munu leika í sjálf- virknivæðingu sjávarútvegsins. Samey varð 30 ára í fyrra og hefur frá upphafi sérhæft sig í stýrilausn- um fyrir iðnað. Fyrirtækið hefur um 20 ára reynslu af róbótalausnum og hefur í dag sett upp hér um bil 120 ró- bóta, en þar af er helmingurinn í notkun hjá norskum laxeldisfyrir- tækjum. „Eins og oft vill verða gerð- ist það fyrir hálfgerða tilviljun að við hófum að bjóða upp á róbóta fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Við vorum fengin til að setja upp kerfi hjá lax- eldisstöð í Færeyjum sem svo fór á hausinn og var róbótinn þeirra seldur notaður til Noregs. Þar reyndist hann vel og hægt og rólega hjálpaði orðsporið til að búa til ágætis markað fyrir okkur þar í landi.“ Vinna sem þætti einhæf og slítandi Róbótarnir hafa einkum verið notaðir til að stafla kössum á bretti enda henta þessi tæki vel til að lyfta þung- um hlutum og síendurtaka sömu hreyfinguna. „Hjá norskri fiskeldis- stöð getur þetta verið óskaplegt magn af laxi sem fer í gegnum vinnsl- una og algengt að hver stöflunar- róbóti raði í kringum 10.000 kössum á dag. Myndi þurfa tölvuerðan mann- skap til að stafla sama fjölda af köss- um auk þess að um er að ræða lík- amlega erfiða, einhæfa og slítandi vinnu sem fáir eru viljugir að taka að sér,“ útskýrir Kristján. En það væri hægt að láta róbótana gera fleira, og sér Kristján fyrir sér að röð róbóta við snyrtilínu gæti t.d. skorið orma og skemmdir úr flökum. „Nú þegar er hægt að nýta róbóta- arma til að raða fiskflökum og -bitum ofan í kassa. Er þá tölvusjón notuð til að greina stærð, þyngd og lögun flaksins á færibandinu og tekur ró- bótinn bitann síðan blíðlega upp og leggur ofan í öskju eftir ákveðnum reglum svo að bæði fari vel um hrá- efnið og rétt magn af fiski sé í hverj- um umbúðum.“ Lesendur ættu ekki að halda að stór og klunnaleg krumla grípi utan um fiskinn með tilheyrandi hnjaski. Samey hannar griparma sem fara vel með hráefnið og geta meðhöndlað fiskinn af meiri nákvæmni og var- færni en mannshöndin. „Einn helsti kostur róbóta er endurtekningar- nákvæmnin. Róbóti getur gert hlut- ina nákvæmlega eins í hvert sinn, eins oft og þess er óskað, sem hjálpar framleiðendum við að tryggja jöfn gæði. Þá getur líka átt þátt í að lengja hillulíf vörunnar að mannshöndin komist sem minnst, og jafnvel aldrei, í snertingu við fiskinn enda alltaf ein- hver hætta á að örverur berist í bita eða flak við hverja snertingu.“ Ekki fer milli mála að róbótar geta verið vinnusparandi, en getur verið að á móti komi að þeir kalli á mikið viðhald eða geri þrif í fiskvinnslum flóknari? Samey notast við róbóta frá japanska framleiðandanum Fanuc og segir Kristján að um sé að ræða tæki sem eru þekkt fyrir góða endingu og litla viðhaldsþörf. „Kaupendur gera mjög ríkar kröfur um rekstraröryggi og hafa litla þolinmæði fyrir því ef ró- bótar bila ótt og títt. Nú er tæknin orðin svo góð að bilanir eru mjög sjaldgæfar og þarf ekki að smyrja ró- bóta frá Fanuc nema einu sinni á ári.“ Aðspurður hvernig þrifunum er háttað segir Kristján að til séu sér- útbúnir rótbótaarmar sem hafa verið hannaðir gagngert fyrir matvæla- framleiðslu. Eru þeir þá þannig smíð- aðir að vél- og rafmagnsbúnaður þol- ir auðveldlega þvotta- og hreinlætis- kröfur. „En þegar komið er að róbótum sem stafla kössum þá erum við komin úr matvælaframleiðslu- umhverfinu enda búið að pakka fisk- inum vandlega í umbúðir, og ekki jafn strangar reglur um hreinlæti við stöflun og flutninga.“ Merkilegt nokk eru róbótarnir sjálfir ekki svo dýrir, enda fjölda- framleiddir – og vitaskuld eru róbót- ar notaðir við framleiðsluna hjá Fa- nuc. „Sem dæmi má áætla að einfaldur staflari kosti á bilinu 15-20 milljónir króna en þar af kostar ró- bótinn sjálfur aðeins þriðjung upp- hæðarinnar. Afgangurinn kemur til af því að smíða þarf undirstöðu og gripverkfæri, smíða öryggisbúnað og girðingar í kringum vinnusvæði ró- bótans, og vitaskuld forrita tækið til að leysa vel af hendi það verkefni sem því er falið. Á þessu verðbili sést vel að róbóti þarf ekki að spara mörg ársverk til að fjárfestingin sé fljótt búin að borga sig.“ Munum starfa við hlið róbótanna En hvað með að nota róbóta um borð í skipum? „Þar eru aðstæður vissu- lega erfiðar, en það truflar ekki ró- bótann þó að skipið vaggi og ekkert mál fyrir hann að takast á við þá krafta sem myndast við hreyfingu skipsins. Vandinn liggur mun frekar í því að oft er lítið plás til að koma ró- bóta fyrir, sérstaklega á eldri skip- um, og þá myndi þurfa að ganga mjög vel frá róbótaarmi sem væri t.d. stað- settur uppi á dekki til að hjálpa til við meðferð veiðarfæra, enda myndi armurinn þurfa að vera undir berum himni og þola það að sjór gangi yfir skipið.“ Næsta skref í róbótavæðingunni mun síðan felast í róbótum sem ekki þarf að hafa lokaða inni í örygigsbúri heldur geta unnið með fólki. Tæknin kallast á ensku „collaborative ro- bots“, sem þýða mætti sem sam- vinnuróbóta. „Þeir hreyfa sig hægar svo að ef armur róbótans rekst utan í starfsmann veldur höggið ekki meiðslum. Með þessari gerð róbóta geta fólk og vélar unnið hlið við hlið og t.d. hægt að sjá fyrir sér fisk- vinnslulínu þar sem róbótinn léttir snyrtifólki vinnuna.“ Morgunblaðið/Hari Kristján Ármannsson hjá Samey segir að næsta stóra skrefið í róbotavæðingu verði svokallaðir samvinnuróbótar sem geta unnið innan um fólk og þurfa ekki að vera geymdir innan öryggisgirðingar. Róbótinn kann að handleika fiskinn Róbótar sem stafla þungum fiskkössum á bretti eru þegar komnir í notkun en í framtíðinni gætu róbótar séð um velflest störf í fiskvinnslum svo mannshöndin þurfi hvergi að koma nærri. Óþreytandi japansk-íslenskir róbótar raða þungum kössum snyrtilega á bretti hjá fiskvinnslu á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.