Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í
slensk sjávarútvegsfyrirtæki eru
rétt að byrja að nýta sér mögu-
leika róbótatækni. Enginn vafi
er á að þessar óþreytandi
undravélar munu smám saman
ná meiri útbreiðslu og gæti jafnvel
verið að einn daginn snerti manns-
höndinn aldrei fiskinn, allt frá því
hann kemur úr netinu og þar til hann
er kominn, snyrtur og fínn, í kassa of-
an á bretti.
Kristján Ármannsson, yfirmaður
tæknilegra lausna hjá Samey, mun
halda erindi á Sjávarútvegsráðstefn-
unni næstkomandi fimmtudag þar
sem hann fjallar um það hlutverk
sem róbótar munu leika í sjálf-
virknivæðingu sjávarútvegsins.
Samey varð 30 ára í fyrra og hefur
frá upphafi sérhæft sig í stýrilausn-
um fyrir iðnað. Fyrirtækið hefur um
20 ára reynslu af róbótalausnum og
hefur í dag sett upp hér um bil 120 ró-
bóta, en þar af er helmingurinn í
notkun hjá norskum laxeldisfyrir-
tækjum. „Eins og oft vill verða gerð-
ist það fyrir hálfgerða tilviljun að við
hófum að bjóða upp á róbóta fyrir
sjávarútveg og fiskeldi. Við vorum
fengin til að setja upp kerfi hjá lax-
eldisstöð í Færeyjum sem svo fór á
hausinn og var róbótinn þeirra seldur
notaður til Noregs. Þar reyndist
hann vel og hægt og rólega hjálpaði
orðsporið til að búa til ágætis markað
fyrir okkur þar í landi.“
Vinna sem þætti einhæf og slítandi
Róbótarnir hafa einkum verið notaðir
til að stafla kössum á bretti enda
henta þessi tæki vel til að lyfta þung-
um hlutum og síendurtaka sömu
hreyfinguna. „Hjá norskri fiskeldis-
stöð getur þetta verið óskaplegt
magn af laxi sem fer í gegnum vinnsl-
una og algengt að hver stöflunar-
róbóti raði í kringum 10.000 kössum á
dag. Myndi þurfa tölvuerðan mann-
skap til að stafla sama fjölda af köss-
um auk þess að um er að ræða lík-
amlega erfiða, einhæfa og slítandi
vinnu sem fáir eru viljugir að taka að
sér,“ útskýrir Kristján.
En það væri hægt að láta róbótana
gera fleira, og sér Kristján fyrir sér
að röð róbóta við snyrtilínu gæti t.d.
skorið orma og skemmdir úr flökum.
„Nú þegar er hægt að nýta róbóta-
arma til að raða fiskflökum og -bitum
ofan í kassa. Er þá tölvusjón notuð til
að greina stærð, þyngd og lögun
flaksins á færibandinu og tekur ró-
bótinn bitann síðan blíðlega upp og
leggur ofan í öskju eftir ákveðnum
reglum svo að bæði fari vel um hrá-
efnið og rétt magn af fiski sé í hverj-
um umbúðum.“
Lesendur ættu ekki að halda að
stór og klunnaleg krumla grípi utan
um fiskinn með tilheyrandi hnjaski.
Samey hannar griparma sem fara vel
með hráefnið og geta meðhöndlað
fiskinn af meiri nákvæmni og var-
færni en mannshöndin. „Einn helsti
kostur róbóta er endurtekningar-
nákvæmnin. Róbóti getur gert hlut-
ina nákvæmlega eins í hvert sinn,
eins oft og þess er óskað, sem hjálpar
framleiðendum við að tryggja jöfn
gæði. Þá getur líka átt þátt í að lengja
hillulíf vörunnar að mannshöndin
komist sem minnst, og jafnvel aldrei,
í snertingu við fiskinn enda alltaf ein-
hver hætta á að örverur berist í bita
eða flak við hverja snertingu.“
Ekki fer milli mála að róbótar geta
verið vinnusparandi, en getur verið
að á móti komi að þeir kalli á mikið
viðhald eða geri þrif í fiskvinnslum
flóknari? Samey notast við róbóta frá
japanska framleiðandanum Fanuc og
segir Kristján að um sé að ræða tæki
sem eru þekkt fyrir góða endingu og
litla viðhaldsþörf. „Kaupendur gera
mjög ríkar kröfur um rekstraröryggi
og hafa litla þolinmæði fyrir því ef ró-
bótar bila ótt og títt. Nú er tæknin
orðin svo góð að bilanir eru mjög
sjaldgæfar og þarf ekki að smyrja ró-
bóta frá Fanuc nema einu sinni á ári.“
Aðspurður hvernig þrifunum er
háttað segir Kristján að til séu sér-
útbúnir rótbótaarmar sem hafa verið
hannaðir gagngert fyrir matvæla-
framleiðslu. Eru þeir þá þannig smíð-
aðir að vél- og rafmagnsbúnaður þol-
ir auðveldlega þvotta- og hreinlætis-
kröfur. „En þegar komið er að
róbótum sem stafla kössum þá erum
við komin úr matvælaframleiðslu-
umhverfinu enda búið að pakka fisk-
inum vandlega í umbúðir, og ekki
jafn strangar reglur um hreinlæti við
stöflun og flutninga.“
Merkilegt nokk eru róbótarnir
sjálfir ekki svo dýrir, enda fjölda-
framleiddir – og vitaskuld eru róbót-
ar notaðir við framleiðsluna hjá Fa-
nuc. „Sem dæmi má áætla að
einfaldur staflari kosti á bilinu 15-20
milljónir króna en þar af kostar ró-
bótinn sjálfur aðeins þriðjung upp-
hæðarinnar. Afgangurinn kemur til
af því að smíða þarf undirstöðu og
gripverkfæri, smíða öryggisbúnað og
girðingar í kringum vinnusvæði ró-
bótans, og vitaskuld forrita tækið til
að leysa vel af hendi það verkefni sem
því er falið. Á þessu verðbili sést vel
að róbóti þarf ekki að spara mörg
ársverk til að fjárfestingin sé fljótt
búin að borga sig.“
Munum starfa við hlið róbótanna
En hvað með að nota róbóta um borð
í skipum? „Þar eru aðstæður vissu-
lega erfiðar, en það truflar ekki ró-
bótann þó að skipið vaggi og ekkert
mál fyrir hann að takast á við þá
krafta sem myndast við hreyfingu
skipsins. Vandinn liggur mun frekar í
því að oft er lítið plás til að koma ró-
bóta fyrir, sérstaklega á eldri skip-
um, og þá myndi þurfa að ganga mjög
vel frá róbótaarmi sem væri t.d. stað-
settur uppi á dekki til að hjálpa til við
meðferð veiðarfæra, enda myndi
armurinn þurfa að vera undir berum
himni og þola það að sjór gangi yfir
skipið.“
Næsta skref í róbótavæðingunni
mun síðan felast í róbótum sem ekki
þarf að hafa lokaða inni í örygigsbúri
heldur geta unnið með fólki. Tæknin
kallast á ensku „collaborative ro-
bots“, sem þýða mætti sem sam-
vinnuróbóta. „Þeir hreyfa sig hægar
svo að ef armur róbótans rekst utan í
starfsmann veldur höggið ekki
meiðslum. Með þessari gerð róbóta
geta fólk og vélar unnið hlið við hlið
og t.d. hægt að sjá fyrir sér fisk-
vinnslulínu þar sem róbótinn léttir
snyrtifólki vinnuna.“
Morgunblaðið/Hari
Kristján Ármannsson hjá Samey segir að næsta stóra skrefið í róbotavæðingu verði svokallaðir samvinnuróbótar sem geta unnið innan um fólk og þurfa ekki að vera geymdir innan öryggisgirðingar.
Róbótinn kann að handleika fiskinn
Róbótar sem stafla þungum fiskkössum á bretti
eru þegar komnir í notkun en í framtíðinni gætu
róbótar séð um velflest störf í fiskvinnslum svo
mannshöndin þurfi hvergi að koma nærri.
Óþreytandi japansk-íslenskir róbótar raða þungum kössum snyrtilega á bretti hjá fiskvinnslu á Akureyri.