Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is M argir bíða spenntir eftir að sjá hver hreppir Hvatningarverðlaun Sjávarútvegsráðstefn- unnar og TM í næstu viku. Þrjú stórmerkileg fyrirtæki hafa verið tilnefnd og er dómnefndin ekki öfundsverð af því hlutskipti að þurfa að gera upp á milli þeirra. Hólmfríður Sveinsdóttir, verk- efnastjóri hjá Genís á Siglufirði, er formaður valnefndarinnar sem til- nefndi þessi þrjú félög úr stórum hópi tillagna sem bárust úr ýmsum áttum. „Verðlaunin eru veitt ungum fyrirtækjum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum fyrir nýbreytni og þróunarverkefni sem þykja hafa skarað fram úr og skapa væntingar um mikilvægt framlag í framtíðinni sem treysta mun stoðir íslensks sjáv- arútvegs,“ útskýrir Hólmfríður en fyrirtækin þrjú sem koma til greina í ár eru Sjávarklasinn, Codland og Niceland Seafood. „Þau eiga það öll sameiginlegt að vera afurðir stefnu- mörkunar í sjávarútvegi þar sem sjálfbærni, verðmætasköpun og auk- in framlegð hafa verið sett sem markmið og hugvit og markaðs- þekking notuð til að drífa þróun þeirra áfram. Nú þegar hægir á hag- vexti er líklegt og mikilvægt að fyrir- tæki af þessum toga stuðli að bata í íslensku hagkerfi á næstu árum.“ Hugsað í lausnum Starfsemi fyrirtækjanna er mjög ólík en öll hafa þau vakið verðskuldaða at- hygli fyrir öflugt starf og áhugaverð- ar lausnir. „Niceland Seafood varð fyrsta fyrirtækið til að selja ferskan íslenskan fisk með rekjanleikalausn sem leyfir neytendum að sjá ferðalag fisksins allt frá því hann var veiddur og þar til hann var afhentur í verslun eða á veitingahúsi. Kóði sem fylgir fiskinum er skannaður inn í Nicel- and-snjallsímaforrit sem sýnir upp- runa fisksins á myndrænan hátt og gefur neytanda jafnframt aðgang að eftirlitsgögnum og vottunum, veitir upplýsingar um næringargildi og býður upp á fjölda uppskrifta,“ segir Hólmfríður en Niceland Seafood hef- ur sótt af krafti inn á Bandaríkja- markað og umsvif fyrirtækisins vaxið hratt. „Þau hafa náð að svara kalli neytenda eftir betri og ítarlegri upp- lýsingum um uppruna og eiginleika matvöru, og kröfu markaðarins um sjálfbæra nýtingu sjávarstofna. Um leið felst í nálgun Niceland mikilvægt tækifæri til að aðgreina sérstöðu og verðmæti villts fisks.“ Hjá Codland hefur áherslan verið á að fullnýta þorskinn og leita leiða til að framleiða hágæðavöru úr hliðaraf- urðum sem verða til við veiðar og vinnslu. „Þau eru að vinna með hluti eins og hausinn og hrygginn, slóg, roð og bein og eru að þróa aðferðir til að skapa sem mest verðmæti úr þessum afurðum,“ útskýrir Hólm- fríður. Afraksturinn af starfi Cod- land er m.a. kalk- og kollagen- fæðubótarefni, hágæðalýsi og nær- ingarríkt mjöl til að nota sem dýrafóður eða sem lífrænan áburð. Að sögn Hólmfríðar hefur starf Codlands sýnt að fullnýting tegunda eins og þorsksins er möguleg, og þarf ekki að vera svo flókið eða kostn- aðarsamt að breyta vinnu- og vinnsluferlum þannig að ekkert fari til spillis. „Hliðarafurðirnar hafa líka að geyma verðmæt næringarefni sem eru líkamanum nauðsynleg og eiga fullt erindi við markaðinn.“ Starfsemi Sjávarklasans þarf svo varla að kynna fyrir lesendum. Frá stofnun árið 2011 hefur Sjávarklasinn verið duglegur að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og í Húsi Sjáv- arklasans tókst að skapa umgjörð ut- an um frjótt starf einyrkja og smáfyr- irtækja sem finna þar bæði hvatningu, stuðning og samstarfs- tækifæri. „Bæði hefur Sjávarklasinn eflt nýsköpunarstarf með ýmsu hætti og líka átt ríkan þátt í að bæta sam- starf fyrirtækja, menntastofnana og rannsóknarstofnana. Framtakið hef- ur vakið athygli erlendis og m.a. orðið fyrirmynd sambærilegra verkefna í Bandaríkjunum.“ Eigum takmarkaða auðlind Gaman hefur verið að fylgjast með metnaði íslenskra sjávrútvegsfyr- irtækja og -frumkvöðla undanfarinn áratug og margir hafa náð undra- verðum árangri á skömmum tíma. Hólmfríður segir hægt að rekja þetta blómlega nýsköpunarstarf allt aftur til þess tíma þegar kvótakerfið var sett á: „Það varð til þess að þvinga fyrirtækin inn í þessa hugsun, enda varð öllum ljóst að við erum að vinna með takmarkaða auðlind. Þetta hefur síðan reynst lykillinn að árangri greinarinnar og í dag er sjávarútveg- urinn sennilega sú atvinnugrein á Ís- landi sem hefur hvað mesta forystu í alþjóðlegri samkeppni.“ Hólmfríður segir mikilvægt að hafa það hugfast að forskot íslensks sjávarútvegs vari ekki að eilífu og nauðsynlegt að slá hvergi af í þróun- ar- og rannsóknarstarfi. Víða séu tækifæri til að gera betur, nýta nýj- ustu tækni til að spara handtök og auka gæði, eða búa til verðmæta vöru úr hráefni sem í dag fer í súginn. Hún segir jafnvel vert að skoða hvort skylda eigi útgerðir til að koma með allar hliðarafurðir í land, svipað og þær eru í dag skyldugar til að landa þeirri fisklifur sem fellur til þegar afl- inn er slægður. „Sem dæmi um áhugaverða og vannýtta hliðarafurð eru fiskmagar, en það er stór mark- aður fyrir þá víða í Asíu, og hráefni sem við eigum alveg eftir að reyna að skapa verðmæti úr.“ Í öðrum tilvikum þarf að gera breytingar á regluverki í takt við tækniframfarir. „Líftæknifyrirtæki hafa þróað betri aðferðir til að vinna og hreinsa lýsi en reglugerðirnar taka mið af eldri tækni og leyfa ekki að lýsi sem unnið er úr slógi sé notað til manneldis.“ Missi ekki dampinn Þá hefur Hólmfríður áhyggjur af að það geti dregið þróttinn úr nýsköp- uninni ef þrengir að hjá sjávar- útvegsfyrirtækjunum sem mörg hafa haft beina aðkomu að stofnun efni- legra sprota. Virðist sem að á sumum stöðum sé komið annað hljóð í strokk- inn nú en fyrr á þessum áratug þegar rekstrarskilyrði sjávarútvegsins voru betri og meira svigrúm í rekstrinum. „Það er breytilegt eftir útgerð- arfélögum hversu reiðubúin þau eru að beina kröftum sínum og fjármagni í nýsköpun og þróun, en þau sem hafa sýnt hvað mestan metnað sjá góðan árangur af starfinu. Er skemmst að minnast þess að af þeim fyrirækjum sem hlotið hafa Nýsköpunarverðlaun Íslands frá árinu 2012 eru átta tengd sjávarútvegi.“ Eitt og annað mætti laga til að örva nýsköpun enn frekar og nefnir Hólm- fríður að þrátt fyrir jákvæðar breyt- ingar á skattalögum, sem létta byrðar fyrirtækja sem verja miklu fjármagni til rannsókna og þróunar, séu fyrir- tækin oft á tíðum ekki að nýta sér all- ar heimildir laganna þar sem þau telja það of flókið. „Og þrátt fyrir áherslu núverandi ríkisstjórnar á ný- sköpun er verið að draga úr fjáfram- lögum ríkisins til Tækniþróunarsjóðs sem gerir þekkingarvinnu á fyrstu stigum nýsköpunar erfitt fyrir.“ Þessu til viðbótar þarf mikið fjár- magn og þolinmótt til að nýta ný tækifæri á sviði líftækni, hvað þá ef möguleikar koma í ljós á fæðubótar- efna- eða lyfjamarkaði. „Þar dugar ekkert minna en vandaðar og um- fangsmiklar rannsóknir sem eru kostnaðarsamar og taka tíma. Þannig fjárfestingu fylgir alltaf áhætta sem erfitt hefur verið að fá íslenskt fjár- magn í, en gangi allt að óskum tekst að búa til verðmæta vöru.“ Morgunblaðið/Hari „Það er breytilegt eftir útgerðarfélögum hversu reiðubúin þau eru að beina kröftum sínum og fjármagni í nýsköpun og þróun, en þau sem hafa sýnt hvað mestan metnað sjá góðan árangur af starfinu,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir um greinina. Niceland Seafood gerir neytendum mögulegt að skoða allt ferðalag fisksins frá veiðum yfir í kæliborð verslunar. Morgunblaðið/Ófeigur Víða eru tækifæri til að gera enn betur Sjávarklasinn, Codland og Niceland Seafood hafa náð eftirtektar- verðum árangri með ný- sköpunarstarfi sínu. Codland setti m.a. á markað drykk með kollageni sem gerir húð og liðum gott.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.