Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is G reinilegt er að íslenskur sjávarútvegur horfir í vaxandi mæli til Austur- Asíu. Þannig hefur auk- inn kraftur verið lagður í sölu íslensks fisks í Kína, og hrognaviðskipti við Japan ganga ágætlega, að ógleymdum sæbjúg- unum sem kaupendur í þessum heimshluta hafa mikinn áhuga á. En Asía er framandi markaðs- svæði sem Íslendingar hafa tak- markaða reynslu af, og þeir sem hafa freistað þess að ná þar fótfestu hafa oft komist fljótt að því að við- skipti og markaðssetning ganga öðruvísi fyrir sig hinum megin á hnettinum. Íslensk-danska markaðsfyrir- tækið Bing Bang hefur hjálpað ís- lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að sækja inn á Kínamarkað með góðum árangri. Teitur Jónasson er framkvæmdastjóri Bing Bang og segir hann að tilviljun hafi ráðið því að fyrirtækið sérhæfði sig í mark- aðssetningu á kínverskum sam- félagsmiðlum. „Við höfðum sinnt ýmsum verkefnum á sviði efn- ismarkaðssetningar (e. content marketing) og samfélagsmiðla, og fengum síðan inn á okkar borð að útbúa efni fyrir sókn Blámars inn í Kína. Í gegnum þá vinnu sáum við fljótlega hversu stór og mikilvægur Kínamarkaður er. Bæði eru Kín- verjar áhugasamir um norrænar vörur og gríðarlegur vöxtur í kom- um kínverskra ferðamanna til Norður-Evrópu. Við urðum þess líka áskynja að fleiri íslensk og dönsk fyrirtæki höfðu komið auga á tækifærin í Kína.“ Varð Teiti og meðeigendum hans fljótlega ljóst að þörf væri á fólki með góða þekkingu á staðháttum og réð Bing Bang til sín flinka Kín- verja, þar af einn sem gekk til liðs við stofnendahóp stofunnar. „Það kom sér vel fyrir okkur að vera með bækistöðvar fyrirtækisins í Dan- mörku enda er hér hægt að finna meiri þekkingu á Kínamarkaði og koma á samböndum við rétta fólk- ið,“ útskýrir Teitur í símtali við blaðamann en tvö ár eru síðan Kína- ævintýri fyrirtækisins hófst. Allt annað internet Í hvaða stellingar þurfa fyrirtæki svo að setja sig ef þau vilja láta að sér kveða á risamarkaði eins og Kína? Teitur segir umhverfið á margan hátt frábrugðið því sem vestræn fyrirtæki eigi að venjast, en kannski sé stærsti munurinn fólginn í því hvernig Kínverjar nota netið. „Internetið í Kína er allt öðruvísi en annars staðar í heim- inum og þeir miðlar sem við þekkj- um best, s.s. Google, Facebook, In- stagram og Snapchat, eru einfaldlega ekki til í Kína. Þá hefur kínverska internetið mótast í kring- um þá staðreynd að tölvueign í Kína hefur verið mun minni en á Vestur- löndum og árið 2000 var t.d. aðeins um 1% kínverskra heimila með einkatölvu en hlutfallið var um 50% í Bandaríkjunum. Í kringum 2010 verður hins vegar sprenging í út- breiðslu snjallsíma og er það í gegn- um þá sem kínverskur almenningur tengist netinu.“ Þó stjórnvöld í Kína hafi lokað fyrir aðgang að mörgum vinsælustu leitarvélum og samfélagsmiðlum Vesturlanda þá urðu í staðinn til keimlík kínversk forrit og vefsíður með svipaða virkni, en þó aðlagaðar að kínverskum veruleika. „Þar för- um við að sjá netupplifun sem er allt öðruvísi en okkar og einkennist af mjög fjölhæfum snjallforritum fyrir- tækja eins og Alibaba og Tencent sem eru í grunninn samskiptaforrit og samfélagsmiðlar, en líka sölu- tæki.“ WeChat fyrst á dagskrá Teitur tekur forritið WeChat sem dæmi og segir það eiga að vera upp- hafspunktinn í öllu markaðsstarfi í Kína. „WeChat er svokallað ofur- snjallforrit og lætur nærri að réttara væri að kalla það stýrikerfi því WeChat er komið með sína eigin for- ritabúð svipað og Apple App Store og Google Play, en forritin þar virka bara inni í WeChat og geta gert nán- ast allt það sem venjuleg snjallforrit geta gert,“ segir hann. „Það er flókið að útskýra WeChat fyrir þeim sem aldrei hafa notað það, en sennilega er mikilvægara fyrir seljendur að vera með sitt svæði á WeChat en það er að vera með tölvupóst og vef- síðu. WeChat er samskiptaforrit sem má líka nota sem vefverslun, og sem greiðsluforrit. Þar getur fólk greitt alla sína reikninga, og jafnvel komið sér upp sínum eigin lífeyrr- issjóði, og kæmi mér ekki á óvart ef bráðum verður hægt að nota WeC- hat sem skilríki.“ Kalla allan hvítfisk þorsk Hvað snertir sölu á íslenskum fiski hafa Teitur og félagar m.a. rekið sig á að kínverskir neytendur eiga ekki auðvelt með að gera greinarmun á þeim tegundum sem íslensk sjávar- útvegsfyrirtæki hafa upp á að bjóða, né átta þeir sig á þeim miklu gæðum sem íslenskar sjávarafurðir geta státað af. „Við uppgötvuðum til dæmis að það eru ekki til góðar þýð- ingar til að aðskilja fisktegundir á borð við karfa, þorsk og ýsu, heldur nota Kínverjar orðið yfir „þorsk“ sem samheiti yfir hvítan fisk.“ Eins segir Teitur að það sé væn- legra til árangurs að starfa náið með verslunum og heildsölum í Kína, og hjálpa þeim að ná til sinna við- skiptavina, frekar en að ætla að skapa eftirspurn eftir íslensku sjáv- arfangi hjá grasrótinni. „Vitaskuld þarf að hafa sýnileika á helstu net- miðlum, og koma vörunni þar á framfæri með úthugsuðum hætti, en það munar samt mest um að skilja millimarkaðinn og veita milliliðunum það markaðsefni og verkfæri sem þeir þurfa til að auðvelda þeim að selja vöruna. Ef þess háttar sam- starf gengur vel, og milliliðurinn sér að það er að auka söluna og færa honum ágætis sölutekjur, þá fyrst byrja að skapast forsendur til að semja um hærra verð.“ Snúi bökum saman Kínverskur neytendamarkaður er risavaxinn og segir Teitur að þar sé eftir miklu að slægjast. Þó meðal- laun í landinu séu ekki há þá má finna svæði þar sem fólk er mjög vel statt fjárhagslega og góð markaðs- tækifæri fyrir hágæða matvöru. En um leið er Kína mjög stór biti, og grunar Teit að það væri íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum fyrir bestu að snúa bökum saman við það að koma íslenskum fiski betur á fram- færi við kínverskan almenning. „Hún kviknar eðlilega, þessi klass- íska spurning: Á ég að gera það? Enginn vill taka það á sig að kosta miklu til í markaðsstarf á þessu svæði til þess eins að aðrir fylgi á eftir þegar búið er að ryðja brautina, og hirði ágóðann af fjárfestingunni.“ Kína kallar á sérstök vinnubrögð Kínverskur neytenda- markaður er risastór og verðmætur, en þar gilda ekki sömu lögmál og á Vesturlöndum. Fyrsta skrefið ætti alltaf að vera að skapa sýnileika í forritinu WeChat. Teitur ásamt samstarfskonum sínum Xi Chen (t.v.) og Jiaqian Chen (f.m.) að prófa WeChat forritið Bing Bang Selfie Tour of Reykjavik. Skjáskot af svæði Blámars á We- Chat. Efri myndin sýnir fróðleik um helstu fisktegundir fyrirtækisins og sú neðri grein um þorsk. AFP Kona kaupir í matinn í verslun í Tíanjin. Markaðurinn er risastór og margir Kínverjar með góðan kaupmátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.