Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
F
rá Kia er að koma á götuna
nýr sportjeppi sem bætist í
Ceed-fjölskylduna en til að-
greiningar hefur hann hlot-
ið nafnið XCeed. Er þetta jafnframt
fimmti jeppi Kia, því fyrir voru þar
á stalli Niro, Stonic, Sportage og
Sorrento.
Sumum gæti þótt honum ofaukið,
en nafngiftin XCeed kann þó að vísa
annað og gefa til kynna að þarna sé
á ferð aukin og ýkt útgáfa af stall-
baknum Ceed. Er sportjeppinn átta
sentimetrum lengri og einnig
breiðari og hærri en yngri bróð-
irinn. Nýi bíllinn sker sig líka frá
honum að fegurð og mjóslegnum lín-
um. Hefur hann ekki alveg nákvæm-
lega sama erfðaefnið og Ceed en er
einkar aðlaðandi og spennandi bíll.
XCeed er sportlegur og tígulegur,
glæsilegur bíll. Má ímynda sér að
hann muni berjast um hylli bílkaup-
enda við módel eins og Peugeot
3008, BMW X2, VW T-Roc, Toyota
C-HR og – vegna hágæðabúnaðar –
jafnvel við Mercedes-Benz GLA
líka. Er ráðist á garðinn þar sem
hann er ekki lægstur.
Þetta er ekki til marks um hroka
bílsmiða því við hönnun XCeed hef-
ur verið vandað til verka. Ekki síst í
innra rýminu, en vönduð efni þekja
það nánast að öllu leyti og frágang-
ur allur óaðfinnanlegur.
Samhliða þessu hefur Kia lagt
áherslu á búnaðarnýjungar. Með
nýjustu tækni í þágu aksturs bílsins
og með stafrænum hátæknilausnum
í mælaborði. Þar leikur rúmlega 10
tommu skjár aðalhlutverk, en hann
er bæði mjög læsilegur og einfaldur
í notkun.
Með augun á veginum
Fulltrúar Kia sögðu á blaða-
mannafundi við reynsluakstur bíls-
ins, að hér væri á ferð endurhönnun
frá grunni og frágangur og fyr-
irkomulag innviða sömuleiðis.
Hægt er að fá XCeed með
neyðarbremsum sem greina t.d.
gangandi fólk og hjólreiðamenn á
ferð. Þá er í boði búnaður er lesið
getur umferðarmerki og brugðist
við þeim. Þar með er hann að hálfu
leyti fær til sjálfaksturs. Þessi tækni
er fyrst um sinn takmörkuð við dýr-
ari útgáfur með sjálfskiptum gír-
kassa.
Það sýndi sig að stjórn- og far-
þegaklefi býður upp á heilmikið og
hefðbundið pláss, eða svipað og í
Ceed-módelinu. Þar er allt vel útlít-
andi. Farangursgeymslan er aftur á
móti um 30 lítrum stærri í XCeed,
svo sem við var að búast af bíl sem
fellur í flokk jeppa.
Hvað vélbúnað varðar er von á
tvinnbíl í janúar eða febrúar næst-
komandi og mun Askja, sem fer með
umboð fyrir Kia-bíla á Íslandi,
leggja mikla áherslu á hann í sölu.
Drægi hans á rafmagni eingöngu
verður um 50 km sem dugar vel til
hvers kyns erindisferða innanbæjar.
Að öðru leyti verða bæði dísil- og
bensínvélar í boði í XCeed, fjögurra
strokka, 160 hestöfl að hámarki,
sumar með forþjöppu og tvöfaldri
kúplingu, allt eftir módelútfærslu.
Ég ók aðallega bílum með stærstu
vélinni, 1,4 lítra.
Allar útgáfur XCeed verða með
útvarpi, skriðstilli, rafdrifnum rúð-
um allan hringinn, lykillausum að-
gangi, birtunemandi díóðuhöf-
uðljósum, þokuljósum að framan og
rafstilltum og upphituðum baksýnis-
speglum.
Ánægjulegur á hraðbraut
Við reynsluakstur XCeed í Suður-
Frakklandi prófaði ég einungis
bensínbíla bæði með sjálfvirkum
gírkassa sem og handskiptum. Sá
síðarnefndi kom sér vel í umferð-
arþungum borgum eins og Marseille
en sjálfskiptingin var fyrirtak á
hraðbrautunum. Slagkraftur hennar
hefði mátt vera ögn meiri á litlum
hraða, eins og hún vissi þá ekki al-
veg í hvaða gír hún vildi vera. Þetta
er þó smekksatriði og dregur ekkert
úr ágæti XCeed.
Í langakstri var XCeed yfirlæt-
islaus og aksturstölvan sýndi átta
lítra bensínnotkun á hundraðið við
hámarkshraða, 130 km/klst. Það var
í raun einstök ánægja að aka bílnum
á hraðbrautunum, þökk sé einkar
skilvirkum undirvagni. XCeed var
lipur og kvikur og einstaklega stöð-
ugur og rásfastur í hröðum beygj-
um. Ég þurfti að venjast akreina-
nemanum sem lét mann ekki í friði
seildist bíllinn upp á hvítu línurnar.
Væri ekki skipt ákveðið og hratt um
akreinar var eins og tæknibúnaður
þessi reyndi að kippa manni til
baka! Sérkennileg tilfinning fylgdi
því.
Kia bindur miklar vonir við
XCeed-bílinn en kóreski bílsmið-
urinn hefur notið velgengni og aukið
sölu sína í Evrópu 11 ár í röð. Er
það kraftbirtingarform um ágæti
bílanna sem frá honum hafa komið.
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Heillandi og tælandi
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Á nýju ári byrjar tvinnútgáfa af XCeed að renna af færiböndunum. Drægi hans á rafmagni verður um 50 km.
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Farangursgeymslan í XCeed er 426 lítra sem er ágætt miðað við stærð.
Ljósmynd/Kia
Rúmlega 10 tommu voldugur snertiskjár er aðgerðaborð bílstjóra XCeed.
Kia XCeed sýndi sínar bestu hliðar í akstri
jafnt í borg og sveitum í Suður-Frakklandi.
Stafrænar lausnir einkenna mælaborðið.
» 1,4 l bensínvél
» 140 hö / 242 Nm
» Sjálfskiptur DCT-7
» 6l/100 km
» 0-100 km/klst. á 9,4 sek.
» Hámarkshraði: 200 km/klst.
» Framhjóladrifinn
» Dekk: 235/45 R18
» Þyngd: 1.270 kg
» Farangursrými: 426 lítrar
» Koltvísýringslosun: 37 g/km
» Umboð: Askja
» Verð frá 4.000.000 kr.
Kia XCeed
Ceed-fjölskyldan samankomin.
Fjærst er Ceed, þá langbakurinn,
GT og næst er svo Xceed.