Morgunblaðið - 19.11.2019, Síða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
M
ikið vatn hefur til sjáv-
ar runnið síðan André
Citroën kynnti sinn
fyrsta bíl til sögunnar
í júlí árið 1919, hinn svokallaða A
Type Citroën. Útlit þess bíls er
fremur kunnuglegt fyrir ökutæki
þess tíma, en er leið á öldina fóru
Citroën-bílar að marka sér skýra
sérstöðu útlitslega séð, eins og
með tilkomu hinna goðsagna-
kenndu Citroën-bragga, sem smíð-
aðir voru á tímabilinu 1948 til
1990. Auk þess er óhætt að segja,
miðað við þá frönsku bíla sem ég
hef sjálfur persónulega reynslu af,
að einkenni Citroën-bifreiðar er að
aksturinn er lipur og mjúkur og
stýrið létt. Sú tilfinning virðist
loða við franska bíla almennt.
Það mætti lýsa útliti sumra
Citroën-bíla sem sérviskulegu, og
það á einnig við um Citroën C5
Aircross. Í honum eru t.d. litlar
holur eða hólf sem ekki þjóna
neinum sérstökum tilgangi, nema
þá því að vekja athygli og eftirtekt
á vegum úti, eða í borgarumferð-
inni, og spila með heildarútlitinu.
Í hönnuninni er gætt að sam-
ræmi í útliti inni og úti, auk þess
sem í C5 er vitnað skemmtilega til
annarra Citroën-tegunda eins og
Citroën Cactus. Innra byrði aftur-
hurða minnir þannig á hið ein-
kennandi og upphleypta „Cactus
hliðarmynstur“. C5 Aircross er sem
sagt þónokkuð fyrir augað. Sá bíll
sem ég fékk í hendur var dökk-
grár, og liturinn sómdi sér vel með
rauða skreytilitnum á hlið, á fram-
hlið og í burðarbogum á toppi. Aft-
urgluggar eru skyggðir, sem gerir
einnig mikið fyrir útlitið og stílinn,
að ónefndum framljósabúnaðinum,
sem er einkar nútímalegur og fal-
Praktískur og
mikið fyrir augað
Citroën C5 Aircross er
m.a. búinn upptöku-
búnaði sem fylgist
með akstrinum og get-
ur það komið í góðar
þarfir ef óhapp hendir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Citroen C5 Aircross er lipur í hreyf-
ingum, meðfærilegur og léttur í stýri.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
HANN ER KOMINN! 2020 GMC DENALI
Fyrsta sending í Evrópu af 2020 GMC var að lenda hjá okkur. Magnaðar breytingar, t.d.
10 gíra skipting og auto track millikassi. Hægt er að skoða og prufukeyra nú þegar.
Formleg frumsýning verður auglýst innan skamms.
2020 GMC DENALI