Morgunblaðið - 19.11.2019, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
legur á að líta. Útsýni um aftur-
glugga í skotti var hins vegar ekk-
ert frábært.
Fleiri hlutir sem heilluðu voru
aðgengilegt og laglegt viðmót upp-
lýsingakerfisins, lipur og með-
færileg gírstöng, og pláss var sér-
staklega gott í hólfi milli framsæta.
Hólfið er reyndar svo djúpt að það
er auðvelt að týna hlutum þar ofan
í ef maður gætir ekki að sér! Þá er
hanskahólfið sömuleiðis rúmgott,
en hurðin er svo stór og opnast svo
vel að gæta verður að því að hlutir
velti ekki út úr hólfinu og niður á
gólf þegar opnað er upp á gátt.
Fremst fyrir framan gírstöngina er
gott pláss fyrir farsíma sem hægt
er að hlaða þar þráðlaust. Er það
mikill kostur fyrir nútímamanninn.
Innbyggð aksursmyndavél
Bíllinn sem ég prófaði var með
innbyggðri akstursmyndavél sem
tekur upp og geymir upptökur af
akstri, en þetta er hugsað til ör-
yggis ef maður lendir í óhappi, að
eiga þá myndband af atvikinu.
Hægt er að vinna með þetta á fleiri
en einn veg í gegnum smáforrit
sem hægt er að hlaða niður í sím-
ann.
Pláss í aftursætum er viðunandi
fyrir fætur og gott fyrir höfuð. Það
er auk þess afar góður kostur í
þessum bíl, eins og reyndar í fleiri
Citroën-bílum, að hægt er að færa
til hvert og eitt aftursætanna, fram
og til baka, og halla þeim aftur
hverju fyrir sig. Enn fremur leggj-
ast þau mjög flöt niður sem hjálpar
töluvert til við flutninga, en ég
hreifst af góðu plássi í skotti á
þessum bíl. Inn í það er hægt að
stafla mörgum töskum, pökkum og
pinklum, eða skutla þar inn reið-
hjóli með sæmilega góðu móti. Þá
er ónefndur sá bráðskemmtilegi
fídus að geta sveiflað fæti undir
afturstuðaranum og opnað þannig
afturhlerann, sem er einkar hent-
ugt þegar fangið er fullt, eða þegar
maður nennir einfaldlega ekki að
taka hendurnar upp úr vösunum á
köldum degi.
Sprækur í sportstillingu
Eins og sagði hér að framan er
C5 Aircross kvikur í hreyfingum,
og þá sérstaklega var hann spræk-
ur í sportstillingunni.
Ég er enn að læra að nota og
treysta bakkmyndavélum svo vel
sé. Í Citroën er boðið þar upp á
mismunandi sjónarhorn sem eiga
að hjálpa, 180 gráðu sýn, að-
dráttarsýn, sjálfvirka sýn og staðl-
aða sýn.
Hvað öryggiskerfið varðar þá
gefur bíllinn manni vinalega áminn-
ingu þegar farið er yfir löglegan
hámarkshraða með því að láta um-
ferðarmerkin í mælaborðinu verða
bleikrauð.
Sem jepplingur er Aircross ekki
dýr í samanburði við aðra sam-
bærilega bíla á markaðnum, og
hægt að fá hann undir fjórum millj-
ónum, þó að sá sem hér sé skrifað
um hafi verið ögn betur búinn og
dýrari eftir því.
Hér er á ferðinni praktískur fjöl-
skyldubíll sem hentar hvort sem er
til flutninga á fólki eða farmi, nema
hvort tveggja sé.
2,0 lítra dísilvél er í bílnum og skaffar hún ökumanni 180 hestöfl. Bíllinn sker sig úr fjöldanum og sómir sér vel í íslenskum aðstæðum. Frakkarnir þora að vera frumlegir.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Ifor Willams Kerrur
í öllum stærðum og útfærslum
» 2,0 dísilvél
» 180 hestöfl / 300Nm
» 8 þrepa sjálfskipting
» 4,1 l í blönduðum akstri
» 0-100 km / klst. 8,2 sek.
» Hámarkshr.: 215 km / klst.
» Framhjóladrifinn
» Á 18 álfelgum
» Eigin þyngd: 1.612 kg
» Farangursr.: allt að 720 l
» Mengunargildi: 108 g/km
» Umboð: Brimborg
» Verð frá 4.530.000 kr.
Citroën C5
Aircross