Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 12
Hvað kom á óvart við flutningana út á
sínum tíma?
„Nú þegar ég flutti í annað skipti var
fátt sem kom mér á óvart fyrir utan hvað
það er mikill munur á Gold Coast þar sem
ég var síðast og Sydney. Eiginlega bara
eins og tvö mismunandi lönd. Það eru
margir sem tala um Ástralíu sem eitt land
en það er langt frá því!“
Hvers saknarðu helst frá Íslandi?
„Ég skildi eftir systur, mömmu, pabba
og tvær kisur og ég sakna þeirra mest.
Auðvitað vinanna líka. Fyrir utan fólk og
dýr, þá held ég að klassíski heimilis-
maturinn sé það sem ég sakna mest.“
Hvað mælir þú með fyrir ungar konur
að gera í borginni þinni?
„Þessi borg er að mestu leyti hættulaus
fyrir ungar konur. Allt ungt fólk sem ætl-
ar sér að heimsækja Sydney ætti bara að
njóta þess að vera til, fara á ströndina, á
veitingahús og bari og spóka sig um.“
Fjölskyldur ættu að
prófa brimbretti
Hvað er gaman fyrir fjölskyldufólk að
gera í borginni?
„Ég myndi segja að Sydney væri mjög
fjölskylduvæn borg. Það er fullt að gera.
Luna Park er sögufrægt tívolí við norður-
enda Harbour Bridge og það eru líka
dýragarðar (e. Animal sanctuary) þar sem
er hægt að halda á kóalabjörnum og hitta
kengúrur! Svo er líka Raging Waters-
vatnsrennibrautagarðurinn og fleira
skemmtilegt. Svo mæli ég auðvitað með
því að fara á ströndina og prófa brim-
bretti.“
Hvað ættu allir að kaupa í heimsókn til
borgarinnar?
„Ástralir eru frægir fyrir Uggs-skóna
sína sem voru einu sinni aðaltískan heima
en þeir eru notaðir sem inniskór hérna!
Svo er hellingur af fallegu handverki, ég
mæli með didgeridoo-hljóðfærinu og boo-
merangs. Ég kaupi mér alltaf segul í hvert
sinn sem ég fer á nýjan stað!“
Hvað ættu ferðamenn að varast?
„Sydney er mjög örugg borg en eins og alls staðar í heim-
inum er alltaf best að hafa varann á!“
Hvað er eftirsóknarvert við staðinn sem þú býrð á?
„Þetta er erfið spurning og gaman að velta fyrir sér hvað
er ekki eftirsóknarvert við borgina. Hér er dásamlegt veður,
yndislegt fólk og falleg náttúra. Ég hvet alla sem hafa tæki-
færi til að kíkja til Ástralíu að gera það.“
Er náttúran áhugaverð?
„Það eru þjóðgarðar allt í kringum Sydney þar sem hægt
er að fara í fjallgöngur. Strendurnar hérna eru geggjaðar og
hægt að fara á brimbretti, kafa og snorkla út um allt. Maður
þarf auðvitað að passa sig aðeins meira á dýrunum hérna en
heima! Fyrir utan ströndina mína í Coogee er lítil eyja sem
heitir Wedding Cake Island en þar eru sleggjuháfar með bæli
og gjóta ungum sínum.“
V
algerður Anna er í meistaranámi í viðskiptafræði
við Háskólann í New South Wales. Hún hafði áður
dvalið í Ástralíu, en var búin að vera heima á Ís-
landi í þrjú ár þegar hún ákvað að fara út aftur.
„Mig langaði í ný ævintýri á öðrum stað í Ástr-
alíu. Ég bjó í Ástralíu fyrir nokkrum árum
og langaði aftur í pálmatrén og hitann.
Ég bý í suðausturhluta Sydney, við
strönd sem heitir Coogee Beach. Algjörlega
geggjaður staður. Eins og lítill strandbær
inni í miðri stórborg!“
Hvað ertu að fást við þessa dagana?
„Að búa í Ástralíu er ekki bara að hanga á
ströndinni og að fá sér kokkteil. Það er
brjálað að gera í mastersnáminu en ótrúlega
skemmtilegt! Ég passa samt að njóta eins
mikið og ég get inni á milli. Fara á strönd-
ina, út á lífið og í fjallgöngur!“
Hvernig er heimilislífið?
„Ég datt í lukkupottinn á því sviði – þar
sem ég bý með þremur yndislegum stelpum.
Ein þeirra er frá Noregi og önnur frá Sví-
þjóð. Við búum í lítilli íbúð og erum góðar
saman. Þrjár af okkur eru í námi við UNSW
og ein er að vinna.“
Hvað er skemmtilegast að gera í borginni
þinni?
„Þú getur gert bókstaflega allt í Sydney. Það er orka
í þessari borg sem er óviðjafnanleg! Hér er allt milli
himins og jarðar. Geggjaðir veitingastaðar, barir,
útsýnispallar, strendur og almenningsgarðar.
Það fer allt eftir hvernig stuði þú ert í þann dag-
inn!“
Frábærir veitingastaðir út um allt
Áttu þér uppáhaldsveitingahús?
„Við vinkonurnar erum afar hrifnar af Sushi
Train sem er ódýr sushi-staður með belti sem
gengur í gegnum allan staðinn. Svo er staður sem
heitir The Grounds sem er alltaf að skipta um þema.
Við kíktum þangað um daginn og þá var þemað nammi-
land og núna er þemað „Malificent“ út af bíómyndinni sem
var að koma út. En það eru frábærir veitingastaðir út um
allt!“
Áttu þér uppáhaldsverslun?
„Nei, reyndar ekki! Það eru litlar sérvöruverslanir út um
allt og oft markaðir í mismunandi hverfum sem er ótrúlega
skemmtilegt að kíkja á. Svo er Westfield-mollið og Queen
Victoria Building í miðbænum með öllum lúxusversl-
ununum.“
Myndi eyða draumadeginum í snorkl
Hvernig myndir þú eyða draumadeginum í borginni?
„Ég er algjör heimalningur þannig að fara á ströndina í
Coogee eða að snorkla í Gordons
Bay sem er við hliðina á Coogee er
algjör draumadagur. Það er líka
geggjað fara í „picnic“ í Hyde Park, kíkja
í Royal Botanical Gardens eða fá sér drykk á
Opera Bar í Circular Quay hjá óperuhúsinu og Harbour
Bridge. Ef maður er í stuði fyrir göngu er snilld að ganga
meðfram öllum ströndunum frá Coogee til Bondi Beach eða
frá Spit Bridge til Manly. Það er endalaust að gera og mjög
erfitt að láta sér leiðast!“
Hvað einkennir matargerðina á þínu svæði?
„Ástralir elska Vegemite sem er söltuð smyrja ofan á
brauð, hakkfylltar bökur (e meat pies), Tim Tams-súkkulaði
kex, hamborgara með rauðbeðum og svo elska Ástralir að
grilla, sem við vinkonurnar tökum fullan þátt í með vikuleg-
um grillveislum. Ég get ekki sagt að ég sé mikill aðdáandi
ástralskrar matargerðar en maður verður að smakka!“
Valgerður Anna Einarsdóttir er búsett í
Sydney í Ástralíu og segir borgina dásam-
lega. Hún mælir með ströndinni, fallegum
verslunum og grænum svæðum þar sem
allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Valgerður á fallegum
degi í Ástralíu.
Dreymir þig um flug-
drekahlaup á strönd-
inni? Þá gæti Sydney
verið eitthvað fyrir þig.
„Þú getur gert bókstaflega allt í Sydney“
Valgerður Anna Einarsdóttir er mikið fyrir
ströndina og mæli með Sydney fyrir alla sem
kunna að meta gott veður og að fara á brim-
bretti svo dæmi séu tekin.
Fyrir þá sem vilja vera í
náttúrunni nálægt strönd
í góðu veðri er Ástralía
málið að mati Valgerðar.
Það ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi í
Sydney að mati Valgerðar.
Ljósmyndir/Aðsend
Blómamarkaður
í Sydney er
ævintýri líkastur.
Valgerður Anna gefur sér tíma til að
njóta lífsins, þótt hún sé í ströngu
námi um þessar mundir.
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019