Umhverfið - 24.05.1979, Síða 1
UMHVERFIÐ
Útgefandi Kiwanisklúbburinn Búrfell, Selfossi Ábyrgðarm. Hjörtur Þórarinsson, Þóristúni 13, sími 1122 Setning og prentun: Prentsmiðja Suðurlands hf.
1. tölublað Fimmtudagur 24. maí 1979 1. árg.
Hreinsunarherferð
Síðastliðin fþrjú ár hefur Land-
vernd hvatt til hreinsunarherferða
um allt land. Nú þegar vorið er
komið vill Landvernd enn einu
sinni hvetja aðildarfélög sín, svo
og önnur félög til þátttöku í
hreinsunarvikunni 1979.
Markmiðið er, að aðildarfélög
Landverndar á hverjum stað vinni
saman að hreinsunarverkefnum og
beiti sér fyrir almennri þátttöku
í þeim ef með þarf. Mikilvægt er
að fá umráðamenn atvinnufyrir-
tækja til virkrar þátttöku í þessu
starfi, með því að hreinsa til á
sínum athafna- og umráðasvæðum.
Landvernd hefur haft spurnir af
því að margar sveitarstjórnir hafa
kosið hreinsunarnefndir til að ann-
ast þessi verk og því er sjálfsagt að
haft verði samband við þær. En ef
þær eru ekki fyrir hendi þá er
nauðsynlegt að hafa gott samstarf
við sveitarstjórnir eða heilbrigðis-
nefnir um skipulag og framkvæmd
verksins. Einnig þarf að hafa sam-
band við heilbrigðisnefndir vegna
frágangs á sorpi eða rusli, þannig
að því verði komið fyrir á varan-
legum stað, en nái ekki að fjúka
og spilla umhverfi að nýju.
Par sem það hentar ekki að
hreinsunarherferðin sé samtímis
alls staðar á landinu, leggur Land-
vernd tii, að hún verði á tímabil-
inu síðast í maí og fyrripart júní-
mánaðar. Nú eru aðstæður mjög
breytilegar og verður heimafólk
því sjálft að meta hvaða verkefni
verða tekin fyrir, enda ekki hægt
að gefa neinar allsherjar ábending-
ar í því efni, en nauðsynlegt er að
skipuleggja þetta starf þannig að
sem bestur árangur náist.
í þéttbýli og nágrenni þess eru
þó ákveðin svæði, sem sérstök
ástæða er til að hreinsa og má þar
nefna nágrenni sorphauga, næsta
umhverfi verkstæða og vinnslu-
stöðva (fis'kvinnslu og sláturhúsa),
fjörur og önnur opin svæði. I
sveitum eru algeng verkefni að
Hvað er
Kiwanis?
Kiwanishreyfingin er alþjóðleg
samtök þjónustuklúbba í 36 lönd-
um með yfir 300.000 félaga. Merk-
ing orðins Kiwanis er sjálfstilfinn-
ing og að kynna sig. Fyrir félögum
í þessari hreyfíngu vakir að láta
gott af sér leiða og bæta samfélag-
ið og umhverfið á einn og annan
hátt. Félagar eru úr hinum ýmsu
stéttum og starfsgreinum þjóðfé-
lagsins. Fundir eru hálfsmánaðar-
lega og hjá sumum vikulega yfir
vetrarmánuðina. Á þessum fund-
um hittast menn og kynnast sjón-
armiðum hvers annars. Mjög oft
og jafnvel á annan hvern fund eru
ræðumenn utan klúbbsins, sem
kynna ný viðhorf, miðla fróðleik
og vekja menn til umhugsunar á
einstökum málum samtíðarinnar.
Utan funda eru svo hin ýmsu þjón-
ustustörf fyrir almenning unnin.
Árin 1974 og 1977 var höfð
landssöfnun með sölu á K-lykli
undir kjörorðinu: Gleymið ekki
geðsjúkum. Öllum ágóða af þess-
ari söfnun var varið til aðstoðar
geðsjúkum. Svo fleiri dæmi séu
nefnd má geta þess að klúbbarnir
söfnuðu miklu fé til hjálpar bæði
eftir Vestmannaeyjagosið og snjó-
flóðin í Neskaupstað.
Markmið hreyfingarinnar hafa
verið túlkuð þannig hjá einum
kiwanismanninum:
Mannleg kjör og mannsins sál er meira virði
en verðmæti, sem verða unnin
úr veraldlegum toga spunnin.
Eins og þú vilt aðrir gjöri eða breyti
áttu að gera einatt hér,
æðsta markmið þetta er.
í viðskiptum og víðar er nú váleg hegðun.
En blessaður góði beittu þér
fyrir bættum siðum þar og hér.
Gakktu á undan, gerðu rétt með góðu fasi.
Efldu það á ýmsan hátt,
að allir lifi í góðri sátt.
Vita skaltu að varanlegu vinaböndin
etu undirstaða okkar hags
og ekki síður bræðraiags.
hreinsa meðfram vegum, ám og
vötnum, fjarlægja ónýtar vélar,
girðingar, áburðarpoka og margs
konar drasl sem ti'l fellur árlega.
Hreint land — fagurt land er
kjörorð hreinsunarvikunnar og
Landvernd væntir þess að allir
landsmenn geri þetta kjörorð að
sínu og þá má vænta þess að ár-
angur hreinsunarviku 1979 verði
góður. Með bestu kveðju,
Haukur Hafstað,
framkv.stjóri.
Fegrum landið — ræktum skóg.
Skipuleggjum þjódgard
í Þórsmðrk
Hjörtur Þórarinsson.
Eyjafjallasveit í Rangárþingi er
gróðursæl, fögur og búsældarleg
byggð. Par er snjólétt með afbrigð-
um og þar vorar mörgum vikum
fyrr en í nokkurri annarri sveit í
landi okkar. Ferðamannastraumur
um byggðir Eyjafjalla er afar mik-
ill á sumri hverju, enda í alfara-
leið. Munu til dæmis fáir staðir
svo fjölsóttir sem Gljúfrabúi og
Seljalandsfoss hjá Hamragörðum,
Skógar með byggðasafni sínu,
Skógafoss og Seljavallalaug, svo að
eitthvað sé nefnt.
En það eru ekki aðeins einstaka
perlur í rífci náttúrunnar undir
Eyjafjöllum, sem hrífa auga og
gleðja sái, heldur má segja að fjöU-
in, jökullinn, byggðin, hellarnir,
fossarnir, ströndin og hafið hjálp-
ist allt að og leggist á eitt um að
skapa þarna lifandi fjölbreytni en
þó svo samræmda heild að segja
má að nálgist fullkomnun, ef svo
er hægt að tala um náttúru lands-
ins á nokkrum stað.
Hvergi eru þó náttúrutöfrar
landsins þar eystra svo miklir og
margslungnir sem í Pórsmörk.
Petta undraland liggur vel geymt
í góðu skjóli háfjalla og jökla norð-
an Eyjafjalla fyrir botni Markar-
fljótsdalsins mikla. Pórsmörk og
Goðaland sunnan Krossár eru tví-
mælalaust eftirsóttustu ferða-
mannastaðir landsins og allir, sem
einu sinni hafa komið á þessar
slóðir, þrá það hvað heitast að fara
þangað aftur.
Nokkrum erfiðleikum er það
bundið að komast í Mörkina vegna
vatnsfalla og hafa af því hlotist
hrakningar og slysfarir. Pá hefur
umgengni ferðamanna ekki alltaf
verið svo góð sem skyldi og skortir
mjög á allt skipulag ferðamála og
eftirlit í þessum tmaðsreit. Pessi
tvö atriði kalla á aðgerðir af opin-
herri hálfu. Tryggja þarf að fólk
komist í Mörkina, án þess að
leggja sig í lífshættu, og vernda
þarf landið fyrir átroðningi og
spjöllum af slæmri umgengni.
Hyggilegast tel ég vera að loka
landinu fyrir innan Hvanná sem
allra mesta fyrir bifreiðaumferð og
er það raunar frumskilyrði fyrir
því að þessi jarðneska paradís geti
orðið það griðland sem vera þarf
og vera ætti.
Að öllu athuguðu mun Pórs-
mörk það landsvæði sem frá nátt-
úrunnar hendi er best fallið til að
vera þjóðgarður. Við þurfum í
vaxandi mæli á slíkum stöðum að
halda og þess vegna er sjálfsagt að
vinna að því að skipuleggja Mörk-
ina til almenningsnota og almenn-
ingsheilla. Heiti ég á opinbera að-
ila, frjáls félagasamtök og ein-
staklinga að leggja því málefni lið
eftir því sem kostur er. Pað sem
gera þarf í Þórsmörk tel ég vera
í fáum orðum sagt þetta:
1. Friða Pórsmörk og Goðaland
sem mest fyrir bifreiðaumferð
2. Setja ökufærar brýr á Jökulsá,
Steinsholtsá og Hvanná, en að-
eins göngubrú á Krossá.
3. Koma upp þjónustumiðstöð og
vörslu.
4. Merkja gönguleiðir, tjaldstæði
og bílastæði.
5. Hefta uppblástur og landeyð-
ingu og stuðla að stóraukinni
gróðurvernd.
Vera má að ýmislegt fleira þurfi
að taka til athugunar og vinna að
í Pórsmörk og á Goðalandi. En
hvað sem því líður, þá er það höf-
uðatriðið að friða landið sem mest
og opna það jafnframt til almenn-
ingsnota. Vona ég að í því efni
geti flestir verið á einu máli og að
ekki dragist alltof lengi að þarna
verði skipulagður þjóðgarður til
heilla fyrir land og lýð.
Jón R. Hjálmarsson.
Umhverfið
blað Kiwanismanna á Suðurlandi
til hvatningar í umhverfisvernd,
hreinsun umhverfis og snyrtingar.
Umhverfismálin eru ein af
mörgum málum, sem kiwanis-
menn láta sér annt um. Hér á
landi eru margir þjónustuklúbbar,
sem láta sér ekki á sama standa,
hvernig gengið er um lóðir, lönd
og víðavang. Pá er uppgræðsla
lands, hindrun uppblásturs annar
þáttur í þessu máli og ekki minna
virði. Skammt er síðan eldgosið
varð í Vestmannaeyjum. Þar hef-
ur mannshöndin og hugvitið gert
stórátak, átak sem lengi mun í
minnum haft. Petta stórátak gerði
heilt byggðarlag byggilegt á ný.
Miðaldra fólk man Heklugosið
1947, ösku- og vikurfallið mikla.
Pá kom til aðstoðar mannshöndin
og dró úr eyðingarmættinum og
hindrað var að blómleg býli lögð-
ust í eyði. Landgræðsla ríkisins er
í stöðugu landnámi og beitir nýj-
ustu tækni í sáningu og áburðar-
dreifingu. Pegar þetta allt er haft
í huga eru það smámunir einir sem
við erum að minna á, að hver og
einn hreinsi, snyrti og gangi þrifa-
lega um sitt eigið land og lóð.
Heilbrigðisnefndir viðkomandi
staða eru að bjóða fram aðstoð við
að fjarlægja rusl og óþrifnað. Hlut-
verk þitt, vegfarandi góður og íbúi
þessa fagra lands, er að hugsa þig
um áður en þú fleygir frá þér
rusli og órotnandi úrgangi.
Gryfjur og brennsluofnar eru
víða til taks. Erfitt er með járna-
rusl, bílhræ og þ. u. 1. Benda má á
í því sambandi, að ef shku járna-
rusli er komið fyrir á afmörkuð
svæði í hverri sveit, þá er Vél-
stniðjan Sindri í Reykjavík tilbúin
að kaupa þetta, ef einhver flytur
Framh. á bls. 3