Umhverfið - 24.05.1979, Blaðsíða 2

Umhverfið - 24.05.1979, Blaðsíða 2
2 UMHVERFIÐ Fimmtudagur 24. maí 1979 Tilkynning um lóðahreinsun á Selfossi vorið 1979: Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar, ber umráðamönnum lóða að halda þeim hreinum og snyrtilegum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að flytja nú þegar burt af lóðum sínum allt sem veldur óþrifn- aði og óprýði og ljúka því fyrir 2. júní n.k. Fram til þess tíma veitir áhaldahús bæjarins að- stoð við að fjarlægja rusl endurgjaldslaust. Sími áhaldahússins er 1388. Úrgang og rusl skal flytja á sorphaugana á þeim tíma sem hér segir: Mánudaga — fimmtudaga kl. 9—17 Föstudaga kl. 9—22 Laugardaga kl. 9—17 Heilbrigðisnefnd Selfoss VSÐ SELJUM: Allar mjólkurvörur til hversdagsneyslu og hátíðabrigða. Jógurt og G-vörur eru í neysluumbúðum, þægilegt til framreiðslu. Hressandi, styrkjandi, nærandi. Mjólkurbú Flóamanna Rangæingar Höldum héraðinu okkar hreinu. Göngum vel um lönd og lóðir. Náttúruverndarnefnd. Tilkynning um lóðahreinsun í Vík og umferð hrossa um götur kauptúnsins. Hreppsnefnd Hvammshrepps vill að venju benda ljóðarhöfum á að þeim ber skylda til að halda lóðum hreinum og snyrtilegum. Lóðarhafar eru minntir á að flytja nú þegar burt af lóðum sínum allt sem veldur óþrifn- aði og er til lýta og ljúka því fyrir 2. júní n.k. Úrgang og rusl skal flytja í sorpgryfjur þorpsins eftir nánari fyrirmælum hreinsunarmanns, en hann mun einnig veita aðstoð við flutningana, ef óskað er. Hestaeigendur í Vík eru enn einu sinni minntir á það að samkvæmt samþykkt hreppsnefndar er öll umferð með hross um götur þorpsins stranglega bönnuð og bendir í því sambandi á þá hættu, sem bömum og öðrum er búin af reið og rekstri hrossanna um kauptúnið auk þeirra skemmda og óþrifa sem þau valda. Hreppsnefnd Hvammshrepps. Banki allra landsmanna Hellubúar Takið nú rösklega til eftir veturinn. Hreinsið og snyrtið vel lóðir ykkar og landsvæði. Fjarlægið allt rusl. Ljúkið þessu öllu fyrir 15. júní. Sveitarstjóri. Tilkynning um lóðahreinsun í Hveragerði Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar, ber umráðamönnum lóða að halda þeim hreinum og snyrtilegum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að flytja nú þegar burt af lóðum sínum allt, sem veldur óþrifn- aði og óprýði og ljúka því fyrir 2. júní n.k. Fram til þess tíma veitir áhaldahús hreppsins aðstoð við að fjarlægja rusl endurgjaldslaust. Sími áhaldahúss er 4337. Verði hreinsun ekki lokið fyrir 2. júní verður ruslið f jarlægt á kostnað lóðarhafa. Úrgang og rusl skal flytja á sorphaugana sem hér segir: Mánud. — föstud. kl. 16—18 og laugard. kl. 13—16. Á öðrum tímum er hægt að fá lykil að sorphaugunum í áhaldahúsi hreppsins. Heilbrigðisnefnd Hveragerðishrepps.

x

Umhverfið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Umhverfið
https://timarit.is/publication/1413

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.