Umhverfið - 24.05.1979, Qupperneq 3
Fimmtudagur 24. maí 1979
UMH VERFIÐ
3
Verð á garðplöntum 1979
Tré:
Birki 120—140 cm pottar 1.600
100— 120 — — 1.300
— 75— 100 — — 1.100
limgerði beð 500
Reyniviður 100—125 — pottar 1.300
— 75— 100 — — 1.100
Gráreynir . . 125— 180 — — 2.500 — 3.500
Gráelri .... 90—140 — — 1.800 — 2.700
Alaskaösp 150— 200 — beð 1.500
— 125— 150 — — 1.200
— 100— 125 — — 1.000
— 75— 100 — — 800
Heggur .... 80— 125 — pottar 1.400 — 2.300
Sitkagreni 80— 125 — hnauspl. 6.400 — 10.000
Broddfura 50— 70 — * 4.000 — 7.000
Lindifura ■ ■ 40— 60 — — 3.000 — 5.000
Fjallaþinur 40— 50 — pottar 3.000 — 3.500
Sitkagreni 60— 75 — — 3.500
Síberíulerki 90— 125 — — 4.500 — 6.000
Stafafura . . 45— 60 — — 3.000
Runnar:
Alaskavíðir fl. 0/2 300 Skúfkvistur — 1.000
0/3 350 Snækvistur — 1.000
Brekkuvíðir 0/2 220 Sunnukvistur — 1.100
— fl. 0/2 250 Blátoppur — 1.100
— 0/2 — 0/3 300 Glæsitoppur — 1.200
Gljávíðir 0/2 400 Amursírena 2.000—3000
— fl. 0/2 - 0/3 500 Skriðmispill — 1.500
Loðvíðir 0/3 300 Blóðribs — 1.000
Viðja o. fl. 0/2 220 Fjallaribs — 800
— fl. 0/2 250 Ribs — 1.100
— 0/3 300 Sólber — 800
Birkikvistur pottar 900 Stikilsber — 1.000
Bjarkeyjarkvistur — 1.000 Ambra — 800
Bogakvistur — 1.000 Blásurunni — 1.100
Dögglingskvistur — 800 Einir — 3.000
Garðakvistur — 1.000 Fjalldrapi — 1.500
Glansmispill úr beði 700 Geitaskegg — 600
' pottar 800 Hunangsviður — 1.300
Kínakvistur •. ' 1.000 Reyniblaðka — 1.100
Loðkvistur . 1.000 Runnamura — 750
Perlukvistur — 1.000 Snjóber — 900
Ýmsar fleiri tegundir af trjám og runnum.
SKÖGRÆKT RÍKISINS
Tumastöðum, Fljótshlíð, Rangárvallasýslu.
Svarað í síma milli kl. 9 og 11 árdegis, sími 5341 og 5342.
ÚTSALA Á HLAÐAVÖLLUM 8, SELFOSSI, SÍMI 1271
bCnaðarbanki
“ ÍSLANDS
ÚTIBÚIÐ í IIVERAGEKÐI
Símar: 4215 — 4285 — 4245
Afgreiöslan á Selfossi:
Sími 1788
Afgreiðslan á Flúðum
Sími 6626
Afgreiðslan á Laugarvatni
Sími 6175
- Umhverfið
Framh. af bls. 1
það suður, einnig er sama fyrir-
tæki til umræðu að sækja járnið á
þessa staði.
Umhverfisnefnd Búnaðarsam-
bandsins hefur verið vakandi yfir
þessu á undanförnum árum. Um-
gengni á einstökum bæjum fer trú-
lega ekki framhjá þeim sem hafa
augu opin, hvort sem þar er góð
umgengni eða ekki. Þéttbýlisstað-
irnir eiga líka sínar dökku og ljósu
hliðar, en þar er oft meira aðhald
og harðara rekið á eftir, sbr. aug-
lýsingar frá heilbrigðisnefndum
viðkomandi staða.
Að lokum skal vakin athygli á
starfsemi skógræktarfélaganna og
einstakra skógræktarmanna. Par
eru á ferðinni ræktun til yndis-
auka, til fegurðar, tl skjóls, til
umbóta á jarðvegi og til hindrunar
á uppblæstri. Því er það raunalegt,
þegar slíkt umbótastarf er á einni
stundu brennt upp vegna gáleysis
eins og dæmi eru um.
Pökk sé öllum er lögðu þessu
umhverfismáli lið.
Hjörtur Pórarinsson.
Hreint land,
fagurt land
Pað er sagt að landið hafi verið
að mestu grasi og viði vaxið, þeg-
ar það byggðist. Síðan hefur það
orðið fyrir mörgum áföllum, nátt-
úruhamförum, ofnotkun og jafnvel
eyðileggingu af manna völdum.
Stundum hefur það verið af þekk-
ingarleysi en oft til að halda líf-
inu í okkur. Sem betur fer er sá
tími liðinn, að lífsnauðsyn sé að
ganga of langt á hinn viðkvæma
gróður til þess að halda lífi í þjóð-
inni. Pess vegna þarf að snúa, fyrir
alvöru, sókn í vörn og græða upp
að nýju það sem eyðst hefur.
Landgræðslan og skógræktin
eiga þakkir skilið fyrir sitt fram-
lag í að græða upp og vemda land-
ið og vekja almennan áhuga. Síðan
hafa Náttúruverndarráð, Land-
vernd, einnig Lions- og Kiwanis-
klúbbar o. fl. lagt hönd á plóginn.
Til að bæta umhverfi okkar,
þarf í vaxandi mæli, með hjálp
félagssamtaka og almennings að
veita fræðsiu í umgengni við land-
ið svo að sem minnst fari tíl spill-
is. Taka þarf upp aukna fræðslu í
þessu efni í skólum landsins og
fjölmiðlum.
Par sem sumarferðalög eru fram-
undan, er rétt að minna fólk á að
skilja ekki eftir rusl á áningar-
stöðum, skaða ekki gróður, aka
ekki á grónu landi að óþörfu, fara
varlega með eld og fylgja settum
reglum. E. E.
lögmál
ferðamannsins
1. Göngum jafn vel frá áningarstað og við
komum að honum.
2. Hendum ekki rusli á víðavangi.
3. Spillum ekki vatni.
4. Sköðum ekki gróður eða dýralíf.
5. Skemmum ekki sérstæðar jarðmyndanir.
6. Förum varlega með eld.
7. Forðumst akstur utan vega.
8. Fylgjum merktum göngustígum,
þar sem þess er óskað.
9. Virðum friðlýsingarreglur
og tilmæli gæslumanna.
10. Hirðum vel eignir okkar og umhverfi,
svo ánægja og sómi sé að.
Þetta er boðskapur náttúruverndarlaganna um um-
gengni. En við vitum öll, að þetta er nauðsynlegt að
hafa hugfast, ef við viljum eiga áfram hre’int land og
fagurt.
Náttúruverndarráð
Yeslmannaeyingar
Sýnum landi voru virðingu. Munum hreint land er
fagurt land. Hugsum áöur en við hendum.
Heilbrigðis- og umhverfismálanefnd
Vestmannaeyja.
Frá Ferðamálaráði
Gangið vel og þrifalega um landið. Gætið þess að
landið og hin viðkvæma náttúra þess er sá arfur
sem vér eigum að skila næstu kynslóð óspilltri af
mannavöldum.
Ferðamálaráð íslands
Sunnlendingar!
Um leið og viö hvetjum ykkur til stórátaks í að
snyrta umhverfið, viljum við nota tækifærið og
þakka þær ágætu móttökur sem við höfum fengið í
fjáröflunarstarfi okkar.
Kiwanisklúbburinn ÖLVER
Þorlákshöfn