Morgunblaðið - 30.12.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
ICQC 2020-2022
Líklega er óhætt að kalla Leonardo
da Vinci myndlistarmann ársins
sem er að líða. Sem er vissulega
sérkennilegt þar sem listamað-
urinn lést fyrir fimm hundruð ár-
um. En 2. maí síðastliðinn voru ein-
mitt fimm aldir síðan endurreisnar-
meistarinn fjölhæfi skildi við, og
þess hefur verið minnst á árinu
með einstökum sýningum í virtum
söfnum, sem mikið hefur verið
fjallað um, og gríðarlega fjölbreyti-
legri útgáfu bóka og fræðirita af
ýmsu tagi.
Leonardo da Vinci kom víða við á
þeim 67 árum sem hann lifði og
hafði áhuga á mörgu. Hann er
vissulega einn dáðasti myndlist-
armaður sögunnar, þekktur fyrir
rómuð málverk, freskur, teikn-
ingar og skissubækur. En hann var
einnig fjölhæfur uppfinninga-
maður, herfræðingur, arkitekt,
kortagerðarmaður, verkfræðingur,
jurtafræðingur og stjörnufræð-
ingur – svo eitthvað af þeim áhuga-
málum þar sem hann lét til sín taka
sé nefnt. Og alls þessa hefur verið
minnst á árinu, þar sem fræði-
mennska tengd verkum Da Vincis
hefur blómstrað sem aldrei fyrr.
Allrahanda rannsóknir
Að minnsta kosti 250 bækur og
sýningarskrár þar sem fjallað er um
Da Vinci komu út á Vesturlöndum á
árinu sem er að líða. Samkvæmt út-
tekt í The Art Newspaper hefur síð-
ustu fjórar aldir komið út ótölulegur
fjöldi rita um lista- og uppfinninga-
manninn en þetta síðasta ár er þó
einstakt hvað það varðar og tengjast
langflestar þessar útgáfur ártíðinni.
Meðal þessara bóka og rita má
nefna um fimmtíu ævisögur Da Vinc-
is, þar sem nálgunin við líf hans og
list er með ýmsum hætti. Þá komu
einnig út fleiri en fimmtíu fræðilegar
bækur um verk hans, í sumum til-
vikum greinasöfn, þar sem kynntar
eru allrahanda rannsóknir um verk-
in, manninn og þá sem hann þekkti
og vann með. Varðveittar eru um
6.000 teikningar og minnisþankar Da
Vincis og eru umfjöllunarefnið í ein-
um fimmtíu bókum til sem komu út,
þar sem einkum er rýnt í nálgun
hans við vísindi, tækni og líffæra-
fræði, en í einum fjörutíu bókum er
aðeins fjallað um málverkin og í átta
til er bara litið til teikninganna. Ekki
er allt upp talið, því einar fimmtán
bækur og rit eru helguð bókum sem
Da Vinci hafði áhuga á að gefa út, um
jafn fjölbreytileg efni og myndlist,
verkfræði, líffærafræði, flug, vatn og
geómetríu.
Sýningar standa enn
Samkvæmt The Art Newspaper
eru útgáfurnar enn fleiri, til að
mynda sýningaskrár gefnar út í ein-
um tuttugu söfnum vegna sýninga
sem tengjast ýmsum hliðum verka
Da Vincis, og í þessum skrám eru
alltaf vel unnar fræðilegar greinar.
Svo fjalla einar 25 bækur um við-
tökusögu verka hans og hugmynda,
allt frá því Giorgi Vasari ritaði fyrstu
bókina um meistarann um miðja 16.
öld og til dagsins í dag.
Meðal markverðustu útgáfanna
eru doðrantar þar sem tekin eru
saman öll þau myndverk sem talið er
víst að Da Vinci hafi skapað, sem og
þau sem sumir vilja eigna honum.
Enn gefst áhgasömum færi á að
sjá rómaðar sýningar með helstu
lykilverkum Da Vincis sem settar
voru upp á árinu, til 24. janúar í Nat-
ional Gallery í London og til 20. febr-
úar í Louvre í París.
AFP
Einstakt Gestur mænir á eitt dáðasta málverk Da Vincis, Meyna á klettinum, á sýningunni
Leonardo: Experience a Masterpiece, sem sett var upp í National Gallery í Lundúnum í haust.
AFP
Ný sýn Á sýningunni í National Gallery var ímynduð vinnustofa Da Vincis sett upp og verkum
hans, meðal annrs Meynni á klettinum, varpað upp á skjái með allrahanda upplýsingum.
Um 250 nýjar bækur um Da Vinci
Metár í útgáfu verka um Leonardo da Vinci Í maí voru 500 ár frá andláti lista- og fræðimannsins
Bækurnar fjalla um ævi hans, list og hugmyndir frá öllum hugsanlegum útgangspunktum
AFP
Flugvélar Í einni hinna frægu myndskreyttu minnisbóka listamannsins, sem
sýndar voru í Louvre-safninu, má sjá teikningar hans af flugvélum.
AFP
Skírarinn Gestur í Louvre myndar
málverk Da Vincis af Jóhannesi.
AFP
Snilldarverk Gestir skoða eina þekktustu teikningu sögunnar, Vitrúvíusar-
manninn, í Accademia-safninu í Feneyjum í sumar. Í haust var teikningin
lánuð til Parísar og sýnd í Louvre-safninu og vakti verðskuldaða athygli.
Allt um sjávarútveg