Fréttablaðið - 14.04.2020, Page 2
Veður
Suðvestan 13-20 í dag, hvassast á
norðanverðu landinu. Skýjað með
köflum og dálitlar skúrir vestan-
lands, en þurrt og bjart austantil.
Hiti 2 til 8 stig að deginum.
SJÁ SÍÐU 16
Heilsubót á Helgafelli
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
VELFERÐARMÁL „Þetta fer rosalega
vel af stað og fólk er ánægt með
þetta. Þeir sem eru að prófa eru
mjög spenntir fyrir þessu,“ segir Sig-
þrúður Guðnadóttir, verkefnastjóri
Velferðartæknismiðju Reykjavíkur-
borgar, um skjáheimsóknir sem vel-
ferðarsvið býður nú upp á.
Verkefnið hefur verið í undir-
búningi í nokkurn tíma en vegna
COVID-19 faraldursins var ákveð-
ið að flýta innleiðingunni. Í byrjun
síðustu viku fengu fjórir notendur
félagslegrar heimaþjónustu spjald-
tölvu heim til sín sem þeir nota til
að vera í samskiptum við starfsfólk
heimaþjónustunnar.
Berglind Víðisdóttir, deildarstjóri
og hjúkrunarfræðingur á velferðar-
sviði, segir að í fyrsta fasa hafi sér-
staklega verið horft til hópa sem
hafi verið að af þakka þjónustu í
ljósi COVID-19.
„Við forgangsröðuðum því fólki
sem við töldum að væri jafnvel
kannski svolítið eitt á báti og væri
ekki með sterkt stuðningsnet í
kringum sig. Núna erum við að
bjóða upp á einfalda lausn fyrir
okkar skjólstæðinga sem tryggir
góð samskipti, öryggi og áfram-
haldandi góða þjónustu,“ segir
Berglind.
Nú í vikunni verður einnig farið
að bjóða upp á skjáheimsóknir fyrir
notendur heimahjúkrunar. „Við
erum tilbúin með 80 spjaldtölvur
þannig að við höfum gott svigrúm
til að veita þessa þjónustu. Það er
búið að setja upp fullkomið skjáver
með góðri myndavél og heyrnartól-
um þannig að það er hægt að veita
þessa þjónustu algjörlega þaðan,“
segir Sigþrúður.
„Við erum til dæmis með ein-
staklinga með langvinna sjúkdóma
sem þurfa mikið og gott eftirlit. Ég
sé mikil tækifæri þar til að bjóða
upp á þessa þjónustu. Þá sem við-
bót við aðra þjónustu eða hrein-
lega í staðinn fyrir vitjanir heim til
fólks,“ segir Berglind.
Hún segir að þótt nú sé verið að
bregðast við sérstökum aðstæðum
verði ávinningurinn enn víð-
tækari. „Reynslan af þessari krísu
mun nýtast okkur í áframhaldandi
þróun því við erum ekkert hætt. Við
erum rétt að byrja og ætlum að inn-
leiða vonandi f leiri tæknilausnir í
heimahjúkrun og heimaþjónustu,“
segir Berglind.
Kerfið sem notað er kemur frá
Memaxi sem er íslenskt hugbún-
aðarfyrirtæki í velferðarþjónustu.
Ingunn Ingimars, forstjóri fyrirtæk-
isins, segir að mikil áhersla sé lögð
á vellíðan, öryggi og ró notandans.
„Viðmótið þarf að vera mjög ein-
falt og við höfum alltaf lagt mikið
kapp á það. Notandinn sjálfur þarf
ekki að hafa neina tækniþekkingu,“
segir Ingunn.
Hún segir að það skipti starfs-
fólk miklu máli að geta séð hvernig
skjólstæðingnum líði, hvort hann sé
á fótum og hvernig hann sé áttaður.
„Velferðartækni er eitthvað sem
þarf að taka fastari tökum og núna
sjáum við að fólk er að einangrast út
af COVID-19. Nú skilur fólk betur
þörfina og sér hve mikilvægt það er
að geta verið í samskiptum við fólk
inni á heimilum í gegnum skjáheim-
sóknir,“ segir Ingunn.
sighvatur@frettabladid.is
Skjáheimsóknir nýtast
vel á tímum COVID-19
Notendur félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar hjá Reykjavíkur-
borg geta nú fengið skjáheimsóknir þar sem samskipti við starfsfólk eru í
gegnum spjaldtölvu. Verkefninu var flýtt vegna COVID-19 faraldursins.
Halldór Stefánsson fékk afhenta fyrstu spjaldtölvuna. MYND/REYKJAVÍKURBORG
Núna erum við að
bjóða upp á ein-
falda lausn fyrir okkar skjól-
stæðinga sem tryggir góð
samskipti.
Berglind Víðisdóttir, deildarstjóri og
hjúkrunarfræðingur á velferðarsviði
COVID-19 Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir sagði á upplýsinga-
fundi almannavarna í gær að þrátt
fyrir að COVID-19 faraldurinn væri
á niðurleið hér á landi yrði þeim
aðgerðum sem hér eru í gangi ekki
aflétt fyrr en eftir 4. maí, en einung-
is tíu greindust með COVID-19 smit
hér sólarhringinn á undan.
Þá sagði Þórólfur óhætt að fullyrða
að kórónaveirufaraldurinn væri á
niðurleið á Íslandi og að lítið væri
um samfélagssmit, Ísland væri með
þriðju lægstu tölu sýktra af COVID-
19 af öllum löndum Evrópu miðað
við höfðatölu. Sóttvarnalæknir
hefur skilað minnisblaðið til heil-
brigðisráðherra um það hvernig eigi
að aflétta aðgerðum vegna farald-
ursins og segir hann nauðsynlegt að
gera það í litlum skrefum. Vænta má
ákvörðunar ráðherra síðar í vikunni.
Af þeim tíu sem greindir voru
með COVID-19 smit hér á landi
í fyrradag voru fimm greindir á
höfuðborgarsvæðinu, fjórir á Vest-
fjörðum og einn á Suðurnesjum.
39 lágu á sjúkrahúsi og þar af voru
níu á gjörgæslu. Frá upphafi farald-
ursins hér á landi hafa 1.711 tilfelli
verið staðfest og 933 smitaðra hafa
náði bata. Þá hafa 15.978 manns
lokið sóttkví og tekin hafa verið
35.788 sýni. – bdj
Aðgerðum
verður ekki
aflétt fyrr
en í maí
Þórólfur segir óhætt að fullyrða að
faraldurinn sé á niðurleið á Íslandi.
Fjöldi fólks sækir sér heilsubót í útivist nú þegar líkamsræktarstöðvar eru lokaðar og ilmur af vori hefur borist að vitum landsmanna. Nokkur hópur
viðraði sig á og við Helgafell í Hafnarfirði, eitt vinsælasta göngufjall á höfuðborgarsvæðinu, þegar ljósmyndara bar að garði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
LÖGREGLUMÁL Leit að Söndru Líf
Long Þórarinsdóttir var hætt klukk-
an 17.30 í gær en hún hefst að nýju í
dag og fer fram með sama hætti og
í gær. Þá leitaði þyrla Landhelgis-
gæslunnar eftir strandlengjunni
frá Seltjarnarnesi suður fyrir Álfta-
nes. Einnig voru fjörur vaktaðar í
háfjöru, bæði úr landi og frá sjó. Við
leitina í dag verða drónar notaðir ef
veður leyfir.
Síðast sást til Söndru Lífar á skír-
dag en bíll hennar fannst á Álftanesi
á laugardag. Sandra Líf er 27 ára,
grannvaxin og um 172 sentímetrar
á hæð. Hún er með rauðleitt hár og
var klædd í svartar buxur, svartan
leðurjakka og hvíta strigaskó þegar
hún sást síðast. Þeir sem hafa upp-
lýsingar um ferðir Söndru eru beðn-
ir að hafa samband við lögreglu. – bdj
Halda leitinni
áfram í dag
Ef veður leyfir verða
drónar notaðir við leitina í
dag.
1 4 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð