Feykir - 01.02.2017, Síða 6
annasamt starf að stýra tveim-
ur fyrirtækjum í nýsköpun.
Hólmfríður segist búa svo vel
að eiga skilningsríka fjölskyldu.
„Ég er ekki mikið heima og ég
er ekki fyrirmyndarhúsmóðir.
En ég á skilningsríkan mann
sem er líka í einkarekstri og veit
hvað þarf til og skilur það.
Strákarnir mínir eru orðnir
hálffullorðnir og svo eigum við
litla stelpu. Þetta er púsluspil,
sem gengur upp með hjálp vina
og vandamanna, pabba og
tengdaforeldra,“ segir hún. Í
frítímanum segist hún helst
kjósa að vera sem mest úti,
ganga, fara í sund, á skíði eða á
hestbak. Fjölskyldan á, ásamt
tengdaforeldrum Hólmfríðar,
jörðina Glæsibæ. Þar reka þau
hjónin dýraspítala og þangað er
gott að fara og hlaða batteríin
þegar tími gefst.
Breytingar hjá
Fisk Seafood kölluðu
á þróunarvinnu
Fyrirtækið Iceprotein var
stofnað árið 2005 í kringum
rannsóknir á fiskpróteinum
sem gerðar voru á Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Var það strax hugsað sem fram-
leiðslufyrirtæki sem myndi
framleiða fiskprótein og var
sett upp verksmiðja í húsnæði
HB Granda á Akranesi.
Verksmiðjan var síðan tekin
niður skömmu síðar og Fisk
Seafood bauð þá húsnæði
undir fyrirtækið og sýndi
áhuga á afurðinni, sem í
upphafi var blautprótein en
ekki þurrprótein eins og
framleitt er í dag. Til stóð að
einangra próteinið úr afskurð-
inum og sprauta því inn í
fiskflök, með það að markmiði
að auka próteininnihald fisks-
ins og nýtingu afurða.
Fisk Seafood keypti 64%
hlut í fyrirtækinu árið 2009. Þá
var Iceprotein komið inn í
Matís þar sem RF rann inn í
Matís skömmu áður. Starfsemin
lognaðist svo út af um tíma.
„Fisk Seafood fer svo í stefnu-
mótunarvinnu árið 2012, þar
sem stefnan er sett á aukna
vinnslu á fiski í landi á kostnað
sjófrystingar. Til þess að fylgja
þessari stefnu var frystitogurum
fækkað og Málmey var breytt í
ferskfisktogara. Þessi breyting,
að minnka vinnslu út á sjó og
auka hana í landi, þýddi að
miklu meira hráefni kom í
land, sem kallaði á miklar
breytingar í landi, sem aftur
kölluðu á aukna þróunar-
vinnu,“ útskýrir Hólmfríður.
Úr varð að Fisk Seafood
eignaðist 100% hlut í Iceprotein
Hólmfríður er fædd árið 1972
og uppalin á Sauðárkróki. Hún
er gift Stefáni Friðrikssyni
dýralækni og eiga þau þrjú
börn, Friðrik Þór, 21 árs, Her-
jólf Hrafn, 15 ára og Heiðrúnu
Erlu, 9 ára. Að barnaskóla
loknum fór Hólmfríður í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki, á náttúru-
fræði-braut. Átján ára fór hún
svo í eitt ár til Bandaríkjanna
sem skiptinemi og lauk svo
stúdentsprófi frá FNV árið
1993. Ári síðar lá leiðin til
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Þýskalands, þar sem Stefán fór
til náms í dýralækningum.
„Mig langaði rosalega mikið að
fara með. En til þess að komast
inn í þýskan háskóla þarf að
kunna þýsku. Þannig að ég fór
að skúra á morgnana og passaði
börn eftir hádegi og lærði
þýsku samhliða því. Síðan fór
ég í þýskupróf árið eftir og hóf
ég nám í næringarfræði að því
loknu,“ rifjar hún upp.
Áhuginn hefur alltaf legið
á því sviði sem Hólmfríður
starfar á í dag. Sem barn segist
hún raunar hafa ætlað að verða
bóndi. „Þegar ég fór í fjölbraut
var ég ákveðin í að verða
lyfjafræðingur, en það var ekki
kennt við háskólann þar sem
við bjuggum þannig að ég fór í
næringarfræði.“
Árið 2001 flutti fjölskyldan
aftur til Íslands og hafði Hólm-
fríður þá lokið meistaranámi í
næringarfræði. Ári síðar lá
leiðin í Háskóla Íslands. „Ég
byrjaði á að fara í sérverkefni
sem miðaði að því að auka
verðmæti loðnuhrogna, að
skima eftir verðmætum efnum
í þeim. Árið 2004 byrjaði ég
síðan í doktorsnámi í mat-
vælaefnafræði við Lífvísinda-
deild HÍ og útskrifaðist þaðan
2009,“ segir Hólmfríður um
Hólmfríður Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Iceprotein og Protis á Sauðárkróki
hlaut í síðustu viku hvatningarverðlaun Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA.
Hún er með meistarapróf í næringarfræði og doktorspróf í matvælaefnafræði og
er framkvæmdastjóri Iceprotein og Protis á Sauðárkróki. Hjá Iceprotein er unnið
að rannsóknum og þróun í matvælaframleiðslu, auk þjónustu við slíka framleiðslu
en Protis var á síðasta ári stofnað sérstaklega utan um framleiðslu á fiskprótein-
um. Blaðamaður Feykis kíkti á skrifstofu Hólmfríðar þegar hún var nýkomin heim
með þessi eftirsóttu verðlaun og spurði hana út í bakgrunninn, fyrirtækin og
starfsemi þeirra, sem og þýðingu verðlauna af þessu tagi.
Hólmfríður Sveinsdóttir á Sauðárkróki hlaut Hvatningarverðlaun FKA
„Mikilvæg viðurkenning
fyrir konur í nýsköpun“
doktorsnámið. Verklega hluta
þess tók hún í Aberdeen í
Skotlandi en heim komin
þaðan fluttist hún á Sauðárkrók,
árið 2006. Hún segir að
eiginmanninn hafi langað að
flytja á heimaslóðir en hann er
einnig fæddur og uppalinn í
Skagafirði, á bænum Glæsibæ í
fyrrum Staðarhreppi.
Þegar doktorsnáminu lauk
fór Hólmfríður á námskeiðið
Brautargengi hjá Impru og
segist þar hafa hlotið undir-
stöðu í rekstri fyrirtækja. „Ég
ákvað að hafa þetta í bak-
höndinni. Ég var ekki að fara að
flytja einu sinni enn og við
Stefán vorum búin að búa lengi
á sitt hvorum staðnum. Ég
hugsaði því með mér að ég
myndi búa mér til eitthvað að
gera hér á staðnum,“ segir hún.
Á það reyndi þó ekki því um
þetta leyti bauðst henni starf
hjá Matís og ákvað hún að ráða
sig þangað. Í framhaldinu
gerðist hún framkvæmdastjóri
Iceprotein og síðar einnig
Protis.
Það má nærri geta að það er
Hólmfríður á rannsóknarstofu Iceprotein. MYNDIR: ANTON BRINK
6 05/2017