Feykir - 01.02.2017, Síða 8
Skipulagsmál
og fleira tengt
Frá Húnaþingi vestra
Lóðir fyrir verslun og
þjónustu
Farið var í skipulagsbreytingar
nyrst í kauptúninu Hvamms-
tanga, nánar tiltekið, fyrir
neðan sláturhúsið. Breytingin
fól í sér að hluti af landnotkun á
opnu svæði austan Norður-
brautar var breytt í verslun og
þjónustu. Tilgangur breyting-
arinnar var að auka framboð á
verslunar- og þjónustulóðum
en skortur var á slíkum lóðum á
Hvammstanga. Nýja svæðið
fyrir verslun og þjónustu er 1,2
ha að stærð.
Einni lóð hefur verið
úthlutað á svæðinu. Þar áætlar
fyrirtækið Reykjahöfði að setja
upp farfuglaheimili sem einn-
ig nýtist sem húsnæði fyrir
starfsmenn sláturhússins í
sláturtíð.
Ný göngu-og hjólabrú yfir
Syðri-Hvammsá
Nýja brúin kemur í stað eldri
brúar og er stór áfangi fyrir
öryggi og aðgengi almennings
og ekki síst barna og ungmenna
á þessu fjölfarna svæði. Frum-
tillaga að umhverfisskipulagi á
svæðinu hefur verið unnin og
var endurnýjun brúarinnar
mikilvægt atriði í þeirri vinnu.
Brúin tengir saman leik- og
grunnskóla og íþróttamiðstöð
og ekki síst nyrðri og syðri
hluta kauptúnsins sem er
mikilvægt fyrir allt samgöngu-
flæði. Nýja brúin verður
breiðari og með þaki og ætti því
að skapa skjól, betri lýsingu,
minni snjómokstur, fyrir utan
það að vera hlýleg viðbót fyrir
bæjarprýðina. Grunnskólinn
hefur sinnt úti- og náttúru-
kennslu á þessu svæði og nýtist
þá yfirbyggingin einkar vel til
að vinna að verkefnum í alls
kyns veðrum.
Eldri brúin er komin vel til
ára sinna og búin að þjóna sínu
hlutverki, upphaflega var brúin
steyptur stokkur fyrir vatnslögn
en á sjöunda áratugnum var
sett brúargólf ofan á, eftir að
kallað hafði verið eftir
samgöngubót á þessu svæði.
Brúarstólparnir eru orðnir
mjög lélegir sem og brúin sjálf.
Hafnarsvæðið á
Hvammstanga
Hafnir og hafnarsvæði hafa
almennt mikið aðdráttarafl.
Þær gegna iðulega stóru hlut-
verki í bæjarmynd heimamanna
og eru mikilvægir áningarstaðir
ferðamanna. Deiliskipulags-
vinna stendur nú yfir en
Skipulagið tekur mið af að-
stæðum á staðnum og verður
lögð áhersla á að bæta aðstöðu,
bæði þeirra sem nota höfnina
sem vinnusvæði en einnig
aðgengi og dvalarmöguleika
almennings. Markmiðið er að
bæta umhverfi hafnarsvæðisins
sem og fyrirkomulag bygginga,
gatna og umferðarflæðis sem
kemur til með að bæta ásýndina
og gefa heildstætt yfirbragð.
Deiliskipulagið verður auglýst
til umsagnar á næstu vikum.
Hótelbyggingar
Grunnskólinn á Laugarbakka
hefur nú fengið nýtt hlutverk,
en hann var seldur og er orðinn
að glæsilegu 56 herbergja
þriggja stjörnu hóteli. Minni-
háttar breytingu þurfti að gera á
gildandi aðalskipulagi með því
að skilgreina landnotkun reits
skólans úr samfélagsþjónustu í
reit fyrir verslun og þjónustu.
Sótt hefur verið um leyfi
fyrir viðbyggingu við Hótel
Hvammstanga, 315 m2, níu
herbergi með sér inngangi. Þar
sem ekkert deiliskipulag liggur
fyrir á þessu svæði fór
grenndarkynning fram. Ná-
grönnum sem taldir voru geta
átt hagsmuna að gæta var kynnt
tillagan og þeim gefin kostur á
að tjá sig um hana innan
tilskilins frests. Verið er að
vinna úr athugasemdum.
Fjölfarnir
ferðamannastaðir
Minjastofnun Íslands hefur
unnið deiliskipulagstillögu
fyrir minjasvæðið í Borgarvirki
og nánasta umhverfi. Skipu-
laginu er ætlað að stuðla að
verndun og varðveislu minja á
svæðinu og gera þær að-
gengilegri fyrir ferðamenn.
Húnaþing vestra vinnur að
deiliskipulagi við Kolugljúfur í
Víðidal fyrir styrk frá Fram-
kvæmdasjóði ferðamanna.
Markmiðið með skipulaginu er
að bæta aðgengi, upplýsingar,
öryggi og umferð ferðamanna.
Skipulögin bæði eru unnin í
góðu samráði við hlutaðeigandi
landeigendur.
Umhverfisskipulag við
Hvítserk hefur verið unnið en í
því felst að stækka og betrum-
bæta bílaplan, dvalarsvæði og
upplýsingaskilti. Verkið er í
vinnslu og standa vonir til að
verkinu ljúki á þessu ári.
Afsláttur af
gatnagerðargjöldum
og lausar lóðir
Gott úrval er af skipulögðum
fallegum lóðum á Hvamms-
tanga fyrir einbýlis –, par- og
raðhús, sem og fjölbýlishús.
Vegna mikillar eftirspurnar
eftir húsnæði á Hvammstanga,
bæði til kaups og leigu, hefur
sveitarstjórn Húnaþings vestra
ákveðið að fella niður
gatnagerðagjöld af 17 lóðum
sem eru tilbúnar til úthlutunar.
Meðal annars er um er að ræða
sjávarlóðir með stórbrotnu
útsýni. Einni lóð hefur verið
úthlutað nýlega og hafa komið
fyrirspurnir um lóðir fyrir
einingahús og fjölbýlishús sem
verið er að vinna með.
Verndarsvæði í byggð
Styrkur fékkst úr Húsafrið-
unarsjóði 2016 til að vinna
tillögur um verndarsvæði í
byggð á Borðeyri. Sú vinna er
komin af stað. Um er að ræða
húsakönnun sem felst í
gagnaöflun, vinnslu korta og
ljósmynda, vettvangsskráningu
og skýrslugerð, ásamt forn-
leifaskráningu og greinargerð
með mati á varðveislugildi.
Reynt verður að hafa gott
samráð við íbúa.
Borgarvirki hefur mikið aðdráttarafl.
Göngu- og hjólabrú yfir Syðri-Hvammsá.
Hér er búið að setja brúna yfir Hvammsá með hjálp tölvutækninnar.
Kolugljúfur er vaxandi ferðamannastaður.
Fyrirhugaðar lóðir fyrir verslun og þjónustu.
Ýmislegt hefur verið í gangi í skipulagsmálum í Húnaþingi
vestra síðastliðið ár. Lóðir fyrir verslun og þjónustu, ný
göngu- og hjólabrú yfir Syðri-Hvammsá, hafnarsvæðið á
Hvammstanga, hótelbyggingar, afsláttur af gatnagerðar-
gjöldum, lausar lóðir og verndarsvæði í byggð eru verkefni
sem fegra munu umhverfi og auka lífsgæði íbúa og ferða-
manna. Ína Björk Ársælsdóttir Umhverfisstjóri Húnaþings
vestra sendi Feyki eftirfarandi upplýsingar og myndir en þar
má sjá nokkur mál á mismunandi vinnslustigum.
UMSJÓN
Páll Friðriksson
8 05/2017