Feykir - 04.10.2017, Blaðsíða 2
Þessa dagana hamast menn við að setja saman
framboðslista þeirra flokka sem ætla sér í kosn-
ingaslaginn og málefnin fara að rata til kjósenda líka.
Einhverjir eru þegar byrjaðir með loforðin og gagn-
rýni á fyrrverandi ríkisstjórnir. Gamlar fréttir eru
m.a. dregnar fram í dagsljósið ýmist til að ýta undir
ágæti viðkomandi eða sverta andstæðinginn og þykir
alveg sjálfsagt.
Það sem alltaf kemur upp í
umræðum, og það eðlilega,
eru heilbrigðismálin. Þau eru
sá málaflokkur sem ku vera
hvað erfiðastur við að eiga og,
að því er virðist, ætíð fjárvana.
Ég heyrði umræður um
daginn í einhverjum miðli þar
sem þeirri spurningu var
varpað fram af hverju málin
væru svona þar sem forfeður
og -mæður okkar gátu byggt
upp heilbrigðiskerfi og rekið það með sóma. Auðvitað
var það mikið verkefni og stórt en tímarnir eru ólíkir og
kröfurnar í dag langtum meiri en gerðist fyrir hálfri öld,
hvað þá fyrr.
Heilbrigðikerfið virðist mér vera botnlaus hít sem
endalaust væri hægt að dæla peningum í enda
óþrjótandi möguleikar að vinna bug á alls kyns
meinum. Sérfræðingahlutinn er líka ein hliðin sem
skekkir samanburðinn um tímana tvenna. Hver hefur
ekki heyrt sögur af lækninum sem fór ríðandi um allar
sveitir vopnaður alls kyns tólum og reyndi hvað hann
gat til að lina þjáningar fólks jafnvel dró skemmdar
tennur úr fólki í bakaleiðinni og af því það hafði haft
spurnir af ferðum hans. Eða bílstjóra læknisins sem
notaður var til að aðstoðar þegar svæfa þurfti sjúkling.
Þetta voru sérfræðingar þess tíma og gerðu hvað þeir
gátu.
Þessir tímar eru liðnir og nú þarf að reiða sig á hina
ýmsu sérfræðinga sem vita meira í dag en þeir gerðu í
gær. Þessi vitneskja er dýr og lækningin sömuleiðis og
við erum löngu komin frá þeim stað að hægt verði að
hafa heilbrigðiskerfið alveg ókeypis. En við gerum
kröfu um að kerfið virki fyrir landsmenn og að
kostnaðurinn sé sanngjarn og dragi okkur ekki út á guð
og gaddinn ef við veikjumst.
Kæri tilvonandi heilbrigðisráðherra. Gangi þér allt í
haginn.
Páll Friðriksson, ritstjóri.
LEIÐARI
Botnlausa hítin
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Hlaupið og safnað fyrir Jökul Mána
Króksbrautarhlaup
Hið árlega Króksbrautarhlaup fór fram sl.
laugardag þar sem þátttakendur fá far fram á
Sauðárkróksbraut, mislangt, og hlaupa, ganga
eða hjóla til baka og enda við Sundlaug
Sauðárkróks. Hlaupið er einnig styrktarhlaup og
var safnað fyrir hinn unga Jökul Mána.
Að sögn Árna Stefánssonar, skokkstjóra
Sauðárkróks, tókst hlaupið mjög vel, veðrið
frábært og allir glaðir en þátttakendur voru um
60 og lögðu samtals 1100 km að baki.
Árni er ánægður með hvernig söfnunin tókst
til og vonar að féð komi fjölskyldu Jökuls Mána
vel. Fjölskyldan er nú stödd í Svíþjóð þar sem
Jökull Máni gengst undir hjartaaðgerð.
„Ég vil þakka öllum sem tóku þátt, og öllum
fyrirtækjum sem styrktu söfnunina. Skagfirð-
ingabúð fyrir ávaxtasalatið, Suðurleiðum fyrir
rútuferðina fram á Brautina, og sveitarfélaginu
fyrir sundlaugina,“ segir Árni. /PF
Í síðustu viku var 1.332.754 kílóum landað á
Norðurlandi vestra. Munaði þar mest um
rækjufarm sem norska flutningaskipið Silver
Fjord kom með til Sauðárkróks. Þar var alls
landað 1.099.706 kílóum úr 12 skipum og
bátum. Á Skagaströnd bárust rúm 193 tonn á
land með 20 bátum, á Hofsósi rúm 34 tonn af
fjórum bátum og á Hvammstanga landaði
Harpan fimm og hálfu tonni. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 24. – 30. september 2017
Tæplega 1,1 milljón kg landað á Króknum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 5.574
Alls á Hvammstanga 5.574
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 1.733
Álfur SH 414 Landbeitt lína 8.707
Daðey GK 777 Línutrekt 21.869
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 964
Dísa HU 91 Handfæri 1.365
Dúddi Gísla GK 48 Lína 18.226
Fengsæll HU 56 Handfæri 315
Guðmundur á Hópi HU 203Lína 14.206
Hafrún HU 12 Dragnót 25.214
Húni HU 62 Handfæri 2.329
Kambur HU 24 Handfæri 744
Kári SH 78 Landbeitt lína 4.079
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 20.512
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 1.987
Magnús HU 23 Handfæri 2.606
Mýrarfell SU 136 Handfæri 2.102
Onni HU 36 Dragnót 31.457
Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfiskinet 477
Stella GK 23 Landbeitt lína 18.426
Háþrýstiþvær götuna
Kattþrifinn húseigandi
Hann Aðalsteinn J. Maríusson, múrarameistari á
Sauðarkróki, tekur sig til tvisvar á ári og þvær
götuna fyrir framan heimili sitt í Víðihlíðinni á
Sauðarkróki með háþrýstidælu. Segir hann ekki
veita af þar sem götusópurinn nái ekki öllu þegar
hann er á ferðinni.
Aðalsteinn segir að nágranni hans hafi yfirleitt
tekið þátt í þvottinum með honum en ekki getað
það að þessu sinni. Gatan sem um ræðir er syðsti
botnlanginn í Víðihlíðinni og íbúar hans njóta
góðs af snyrtimennsku Aðalsteins. Hann segist
ekki hafa beðið fólk um að taka þátt en hann vill
samt hvetja alla til þess að athuga með
nærumhverfi sitt, tína rusl, þrífa götur og hafa
snyrtilegt í kringum sig. Einkum vill hann benda
fólki á að keyra bílum ekki upp á grasflatir sem
eru meðfram götum þar sem þær skemmast við
það og fara í svað. Telur hann það vera of algengt
Særif SH 25 Landbeitt lína 15.857
Alls á Skagaströnd 193.175
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 12.522
Fannar SK 11 Handfæri 2.848
Fjölnir GK 157 Lína 99.252
Gammur SK 12 Þorskfiskinet 2.480
Hafborg SK 54 Þorskfiskinet 6.051
Klakkur SK 5 Botnvarpa 106.620
Málmey SK 1 Botnvarpa 136.013
Már SK 90 Handfæri 1.497
Óskar SK 13 Handfæri 830
Sighvatur GK 57 Lína 67.485
Silver Fjord (3FWE9PA999 Rækjuvarpa 661.916
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.192
Alls á Sauðárkróki 1.099.706
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 4.559
Geisli SK 66 Línutrekt 2.642
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 3.087
Þorleifur EA 88 Dragnót 24.011
Alls á Hofsósi 34.299
Starfsfólk Byggðastofnunar lét sig ekki vanta í hlaupið en
þarna eru þau Magnús Helgason, Ingibjörg M. Valgeirsdóttir,
Sigríður Þorgrímsdóttir, Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir, Einar
Hreinsson, Snorri Björn Sigurðsson og Kristján Halldórsson
MYND: GUÐBJ. SIGURBJ.
í Hlíðarhverfinu. Feykir tekur undir með Aðal-
steini og hvetur alla til að fara út með slöngu,
kúst og skóflu og gera fínt. /PF
Aðalsteinn með háþrýstidæluna sem hjálpar til við að halda
götunni hreinni. MYND: PF
2 37/2017