Feykir - 05.12.2017, Blaðsíða 10
Ljós tendruð og meira til
Jólin nálgast óðfluga
LJÓS TENDRUÐ Á KIRKJUTORGI: Jólasveinarnir mættir á svæðið og allt í upplausn.
MYNDIR: ÓAB
Það var góður dagur á
laugardaginn (ef frá er
skilinn ósanngjarn sigur
Júnæted á Arsenal). Á
Króknum stóð mikið til og
margt um manninn.
Rótarýmenn voru með
árlegt jólahlaðborð fyrir alla,
sveitarfélagið bauð í köku af
tilefni 70 ára afmælis kaup-
staðarréttinda Króksins og ljós
voru tendruð á skagfirska trénu
á Kirkjutorginu. Og að sjálf-
sögðu var húllumhæ um alla
Aðalgötu og víðar. Hér fylgja
nokkrar myndir. /ÓAB
Verum snjöll
verZlum
heima
Vissir þú...?
Að kaupa jólagjafir og annað til jólanna hér heima
er stuðningur við samfélagið okkar.
Við getum öll haft áhrif til betri jóla.
Margir frumkvöðlar og sjálfstætt starfandi bjóða handverk sitt til
jólagjafa og leggja sig fram eins og kostur er. Fyrirtækin eru til staðar
fyrir okkur öll, bæði um hátíðir og aðra daga. Gjafir, matur og drykkur
er allt fáanlegt heima hjá okkur.
Njótum þess besta og jólahátíðarinnar saman.
Þannig njótum við öll gleðilegra jóla.
N
ÝPR
EN
T EH
F / M
YN
D
: Ú
R
EIN
KASAFN
I
Barnakór Varmahlíðarskóla söng jólalög af mikilli list.
Jólasveinarnir og allir dönsuðu í kringum skagfirska jólatréð.
Hljómsveit Stebba Gísla mætti á svið ásamt Pálma Gunn og Sigurlaugu Vordísi.
Kústurinn hennar Grýlu í bakgrunni?
Fjöldatölur voru nokkuð á reiki en skotið var á 500 manns. Ingunn Sig og Róbert bakari á spjalli.
FRÁ JÓLAHLAÐBORÐI RÓTARÝKLÚBSINS: Að sjálfsögðu var kaffi
á könnunni og ómissandi Makkintoss-molar fyrir þá sem þráðu
eitthvað sætt í kaupbæti.
Stefán Vagn Stefánsson hafði orð á því við Bjarna Har að Bjarni
hefði fengið sér grænar baunir. Bjarni var ekki lengi að kveikja
og bað um bláar baunir að ári.
10 46/2017