Bæjarbót - 01.03.1982, Síða 4
4
Bæjarbót
/^BÖT
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Lúðvík Jóelsson, Víkurbraut 11, sími 8106,
Björn Birgisson, Norðurvör 10, sími 8060,
Astbjörn Egilsson, Efstahrauni22, sími 8507.
Prentun: Prentiðn, Garðabæ.
N
Nýttblað - Bæjarbót
Bœjarbót skal vera frjálst óháðfrétta- og upplýs-
ingablað, sem þjónar Grindvíkingum fyrst og
fremst. Ollum einstaklingum er frjálst að tjá hug
sinn og skoðanir í blaðinu. Þannig hljóma einkunn-
arorð blaðsins. Tveir af þremur útgefendum blaðs-
ins eru flokksbundnir í stjórnmálaflokkum, en það
mun ekki hafa minnstu áhrif á skrif blaðsins. Ein-
lœg von okkar, sem að þessu stöndum, er sú að að-
sent efni verði í miklum meirihluta þess efnis, sem
birt verður í Bæjarbótinni. Hér er ekki um að rœða
leið útgefenda til auðsöfnunar. Það segja raunar
flestir að það sé enginn grundvöllur fyrir svona
blaði í ekki stærri bœ. Við viljum ekki láta segja okk-
ur slíkt, það verður einfaldlega að koma í Ijós.
Grindvíkingar! Þið eigið næsta leik.
Á ári aldraðra
Unglingar í Grindavík—
-------------- hvernigeyðaþeir tímanum?
Bæjarbót leitaði til Ósk-
ars Skúlasonar nemanda í
grunnskólanum og bað
hann að rita grein í blaðið
um unglinga í Grindavík
og viðhorf þeirra til bæjar-
lífsins. Grein Óskars fer
hér á eftir.
Það hefur lengi verið ósk
mín að fá að skrifa í frétta-
blað um viðhorf unglinga til
bæjarlífsins hér í bæ. Vegna
þess að mér hefur fundist
að skoðanir unglinga fái
ansi lélegar móttökur. En
nú, þegar tækifærið er feng-
ið, um hvað ætti ég að
skrifa? Já, af mörgu er að
taka, en fyrir valinu varð að-
gerðarleysi unglinga. Fátt
er eins leiðinlegt og að sitja
einn heima á dimmum
kvöldum, maður getur ekk-
ert gert nema þá horft á
sjónvarpið, en því miður er
ekki mikið í því fyrir ung-
linga. Þá fer maður út og
hvað sér maður? Ekki lif-
andi sálu. Þá neyðist maður
til að fara í sjoppu, en það
virðast vera einu staðirnir,
þar sem nokkrir unglingar
geta hist undir sama þaki,
án þess að þurfa að hlusta á
lciðinlegt nöldur foreldra
eða annarra. En ekki varir
sælan lengi, því að sjálfsagt
verður afgreiðslufólkið
þreytt á öllu þessu krakk-
astóði og við fljúgum út.
Þegar út er komið er ekkert
annað að gera, en labba af
stað í næstu sjoppu.
Eg gæti trúað að þegar
hér er komið sögu hugsi
margir með sér: Mikið
dæmalaust eru þcssir
krakkar vitlausir að geta
ekki fundið sér eitthvað að
gera, án þess að við
fullorðna fólkið komurii þar
nærri. En þannig er bara
mál með vexti að það verður
einhver fullorðinn að vera
með unglingum, því annars
er þeim ekki treyst. Það væri
strax spor í rétta átt ef það
kæmu saman nokkrir for-
eldrar og ræddu um mögu-
leika á meira og betra fé-
lagsstarfi fyrir unglinga.
Þó ég hafi hér á undan
bara talað um hvað farið
hefur miður í samstarfi
unglinga og fullorðinna eru
líka nokkrir ljósir punktar
sem vert er að minnast á.
Eins og til dæmis þeir hjá
UMFG hafa eflaust bjargað
mörgum unglingnum frá
því að brjálast úr aðgerða-
leysi. Því miður virðast
margir krakkar halda, að
ckki sé nógu fínt að æfa
íþróttir, eftir að í unglinga-
skóla er komið. Virðast þeir
hakla að reykingar séu
fínni. Þeir sem eldri eru
ættu að reyna að koma þeim
í skilning um að svo er alls
ekki. En þeir, sem ekki æfa
íþróttir, sem eru frekar
margir, verða að láta sér
nægja frekar lélegt félagslíf
skólans og sjoppurápið.
Er það von mín að sam-
starf ungra og fullorðinna
eigi eftir að breytast til hins
betra og aðeins til hins
betra.
Óskar Skúlason
ísland státar afhæstum meðalaldri þegna sinna. En
vandi fylgir vegsemd hverri. Fróðlegt getur verið að
skyggnast á bak við meðalaldurstölurnar háu. Hvað
blasir þá við? Það má segja að þessi mikla og hlut-
fallslega fjölgun aldraðra ásamt með geysimiklum
þjóðfélagsbreytingum, sem ekki eru öldruðum alltaf
til bóta, hafi beint athygli manna í vaxandi mæli að
þörf þessa fólks fyrir sérhannað húsnæði, félags-
starf og ýmiskonar aðstoð. I samfélagi eins og hinu
íslenska eru aldraðir orðnir áberandi hópur, sem á
við marvísleg vandamál að etja, félagsleg, efna-
hagsleg, heilsufarsleg o.sfrv. Þessi vandamál eru
ekkert öðruvísi hér í Grindavík en annars staðar á
landinu. fátt virðist hafa verið gert öldruðum í hag
hér í bæ. Þó verður að nefna að á þessu kjörtímabili
var komið á laggirnar heimilisaðstoð fyrir aldraða,
sem teljast verður mikilframför.
Frumvarp, sem lagt var fram á nœstliðnu þingi
um öldrunarmálefni, gerir ráð fyrir skipulögðu
áætlunar- og þjónustustarfi sveitarfélaga á sviði
öldrunarmála, svo að búast má við að hentistefna
víkifyrir skynsamlegri og úthugsaðri áætlunargerð.
Grindavíkurbær hefur lagt fram nokkurt fjár-
magn til dvalarheimilis aldraðra í Hafnarfirði og
þannig tryggt nokkrum Grindvíkingum dvölþar. En
hver er raunverulegur vilji fólksins hér? Vilja
bæjarbúar eyða síðustu æviárum sínum á heima-
slóðum? Hvað hyggjast bæjarfulltrúarnir gera?
Hér vantar margt t.d. holræsi, stærri skóla, betri
götur, gangstéttir og þannig mætti margt upp telja.
Ætla bæjarfulltrúarnir að láta öldrunarmálin hafa
forgang nú á ári aldraðra? Bæjarbót vill hefja um-
ræðu um þessi mál og er reiðubúin að leggja til rými
undir greinar, sem kunna að berast.
BB
Annasamt hjá lögreglu
Á síðast liðnu ári voru út-
köll lögreglunnar í Grinda-
vík samtals 1544. Flest voru
þau í aprílmánuði eða 174.
30 ökumenn voru teknir
ölvaðir við akstur á árinu.
Árekstrar urðu alls 56 á
árinu. I janúar og febrúar á
þessu ári urðu 17 árekstrar
í bænum.
BB
Betra bókasafn - - meiri notkun
Bókasafn Grindavíkur
hefur tekið miklum stakka-
skiptum á síðustu árum.
Flúsrými þess í Festi hefur
verið aukið verulega og
endurbætt. Þar er nú mjög
vistlegt og fer vel um gesti
safnsins. Nýtt flokk-
unarkerfi er notað, svokall-
að Dewey kerfi, sem gerir
gestum mjög auðvelt að
finna þær bækur sem þeir
vilja fá.
Með aukinni sókn ungs
fólks héðan úr bænum í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
og aðra framhaldsskóla hef-
ur notkun á safninu breyst
og aukist. Þessir nemendur
eru gjarnan sendir í söfn til
gagnaöflunar. Við grunn-
skólann bér er ekkert skóla-
bókasafn þrátt fyrir skýr
ákvæði í grunnskólalögum
þar um. Vantar húsnæði í
skólanum, hann er fullnýtt-
ur og hvergi laus smuga.
Nokkurt samstarf hefur átt
sér stað milli bókasafnsins
og grunnskólans. Nemend-
ur hafa farið í safnið í efnis-
leit vegna heimildaritgerða
og annarra verkefna og not-
ið þar sérstaks velvilja for-
stöðumanns safnsins.
Samkvæmt bókatalningu
í árslok 1981 voru um 5100
eintök í safninu. Útlán á
síðasta ári voru 17105, en
notendur um 650. Það jafn-
gildir því að hver notandi
hefi fengið 26,3 bækur á
árinu. Notendur eru nú
680. Þess má geta að ekkert
kostar að ganga í safnið.
Núverandi forstöðumað-
ur safnsins er Valgerður M.
Guðjónsdóttir. gg
Óaldarlýður á ferð
Um næst síðustu helgi voru
unnin all mikil skemmdar-
verk hér í Grindavík. Brot-
ist var inn í Kaupfélagið, en
ekki var miklu stolið. Rúður
voru brotnar í tveimur bíl-
um og sá þriðji rispaður.
Einnig var segulbandi stolið
úr bíl. Tvær rúður voru
brotnar í Festi, ein í íbúðar-
húsi og tvær í skólanum.
Full ástæða er til að hvetja
menn til að læsa bílum sín-
um og skilja ekki eftir verð-
mæta hluti í þeim. Fyrr í
vetur bar nokkuð á hnupli
úr bílum, jafnvel framan
við verslanir.
BB
BÓKASAFN GRINDAVÍKUR
Félagsheimilinu Festi
240 Grindavík
Sími 92-8549
BÓKINHEIM
Þeir, sem vegna sjúkdóms eða annarra or-
saka, geta ekki komið í bókasafnið, fá
bækur sendar heim. Hafið samband við
bókavörðinn, sem gefur nánari upplýsing-
ar.
SKIPASÖFN
18-20
jg'^Q Áhafnir skipa fá lánaða bókakassa í lengri
jg 2() eða skemmri tíma, gegn ábyrgð útgerðar-
18-21 félags'
18-20
Sögustund fyrir börn á aldrinum 3ja til 6 ára á laugardögum kl. 14:00-15:00.
Opið:
Mánudag
Þriðjudag
Miðvikudag
Fimmtudag
Föstudag