Bæjarbót - 01.03.1982, Page 8
8
Bæjarbót
Körfuknattleikur í Grindavík
— stutt söguágrip
Saga körfuboltans í
Grindavík er ekki orðin
mjög löng. Hún hófst árið
1957, en þá smíðuðu Bogi
Hallgrímsson og Guð-
mundur Sigurðsson fyrstu
körfurnar sem skotið var á
hér í bæ. En áhuginn á
íþróttinni vaknaði fyrst
verulega þegar Halldór
Ingvason bauð körfubolta-
landsliðinu í heimsókn til
Grindavíkur, þar sem það
lék listir sínar árið 1963.
Eftir landsliðsheim-
sóknina fóru Grindvíkingar
að æfa og leika körfubolta
reglulega. Fyrstu bún-
ingana eignaðist liðið 1964.
Þeir voru heimasaumaðir,
ljósbláir að lit með gulum
stöfum.
A árunum milli 1964 og
1969 atti liðið kappi við
nágrannabyggðirnar og lið
af Vellinum, en tók ekki
þátt í Islandsmóti fyrr en
árið 1969. Þá voru deildirn-
ar tvær, fimm lið voru í
hvorri. Bardaginn í annarri
deildinni var oftast harður,
en UMFG var oftast í topp-
baráttunni og tvisvar var
skrefíð hálfstigið upp í
fyrstu deild, en í bæði
skiptin missteig liðið sig og
varð af fyrstu deildar
sætinu.
Það var svo árið 1978 að
deildarskipulaginu var
breytt og úrvalsdeildin
stofnuð. Fyrsta og önnur
deild komu þar á eftir.
UMFG lenti í þeirri fyrstu.
Um þetta leyti tíðkaðist
það að liðin réðu sér banda-
ríska þjálfara og leikmenn.
UMFG fékk einn slíkan,
Mark Holmes, sem reyndist
mjög góður leikmaður. Þeg-
ar keppnistímabilinu lauk
var liðið í öðru sæti og komst
í átta liða úrslit í bikar-
keppninni. Mark kom svo
aftur 1979, þá hafnaði liðið
í 2.-3. sæti og var slegið út í
átta liða úrslitum í bikarn-
um af þáverandi meisturum
KR.
Keppnistímabilið 1980-
1981 gekk ekki eins vel og
má þar mörgu um kenna.
Fiðið var óheppið með
„Kanann” sem kom og varð
að senda hann heim á miðju
keppnistímabili og fá
annan. En er upp var staðið
hafnaði liðið í 3. sæti.
I haust kom Mark Holm-
es svo í þriðja sinn.
Meistaraflokkur lenti í
þriðja sæti og árangur yngri
flokkanna var betri en
nokkru sinni áður.
Nú bendir margt til þess
að engir bandarískir
leikmenn verði hér á landi
næsta vetur. Því veldur aðal-
lega erfiður íjárhagur fé-
laganna.
Þrír leikmenn UMFG
voru í vetur valdir til æfinga
og keppni með landsliðum.
Þeir voru Hreinn Þorkels-
son, Jóhannes Sveinsson og
Hjálmar Hallgrímsson.
GÞÖ ogBB
Leikfélagið
Feikfélag Grindavíkur
hefur að undanförnu sýnt
gamanleikinn Grænu
lyftuna eftir A. Hopewood í
uppsetningu Þóris
Steingrímssonar. Er þetta
fyrsta verkefni sem hann
setur á svið fyrir L.G. Hann
hefur starfað að leikstjórn
og leikið síðastliðin 15 ár.
Samstarfið við hann var sér-
staklega ánægjulegt sem
aldrei hljóp snurða yfir all-
an æfíngartímann, en þær
byrjuðu um miðjan janúar.
Við hjá leikfélaginu getum
ekki verið annað en þakklát
yfir þeim undirtektum sem
leikritið hefur hlotið hjá
bæjarbúum og þó nokkrum
fjölda fólks úr nágranna-
byggðum. Það er margt sem
er þess valdandi að við för-
um ekki út fyrir plássið með
leikritið, fer þar saman lítill
tími fólks og svo hitt að sá
peningur sem kemur inn á
slíkar sýningar fer allur í
kostnað ef það nær því þá að
dekka hann. Víst væri gam-
an að fara út úr plássinu
með slíkt leikrit til að sýna
sig og sjá aðra eins og sagt
er, en því miður er fleira
sem kemur til, svo sem tím-
inn sem fer í þetta sem fyllir
tvo mánuði og 70% af þeim
tíma eru æfingar, en þær
fara fram 6 daga vikunnar
3-5 tíma á dag. Þá eru ótald-
ar þær vinnustundir sem
snerta beinlínis tekjur fólks,
þannig að okkur finnst við
hafa gildar ástæður fyrir því
að fara ekkert með leikritið
í þetta skipti, hvað svo sem
kann að snúa að þeim sem
starfa við næsta stykki.
Það hafa eftilvill ekki
margir leitt hugann að því
hve margir starfa að einu
leikriti, en það munu vera
35-40 manns. Kostnaður
við meðal leikrit fer nálægt
25 þús. krónum. Allir geta
séð að ekki nægir áhuga-
mennskan ein, okkur er því
nausynlegt að bæjarbúar
sýni okkur velvilja.
L.J.
Maðurinn
á bak við nafnið
Hver er Jóhannes Haralds-
son?
Eg er fæddur þann 14.
júní 1942 í Fjarðarseli við
Seyðisfjörð. Faðir minn var
rafstöðvarstjóri þar. Flutti
þriggja ára til Kópavogs.
Sótti þar skóla en fór síðan í
skóla til Sigurðar Greips-
sonar í Haukadal. Því næst
lá leiðin í millilandasiglingar
en í þeim var ég frá sextán
ára aldri til tvítugs. Var
reyndar að hugsa um að
fara í Stýrimannaskólann,
en hraus hugur við hinum
löngu ijarvistum farmanns-
ins. Að lokum ákvað ég að
fara í land og byrjaði mitt
nám í trésmíði í Kópavogin-
um.
Hvað hefur þú byggt margar
íbúðir hér í Grindavík?
Þær eru orðnar 53 bygg-
ingarnar sem ég hef reist og
búið er í. Auk þess hefi ég
reist mannvirki í Svartsengi
og líka fiskverkunarhús hér
á Staðnum.
Hvernig er verðið á þínum
húsum t.d. miðað við Reykja-
vík?
Mín hús hafa oft verið
rúmlega 50% ódýrari en
sambærileg hús þar.
Sú gagnrýni hefur heyrst að
þú eigir stóran þátt í að
halda almennu fast-
eignaverði niðri hér í bœnum
með því að selja ódýrt.
Já, ég hef heyrt þetta.
Menn hafa jafnvel komið til
mín og hundskammað mig
vegna þessa. En er ekki allt-
af verið að tala um að lækka
byggingarkostnaðinn? Þetta
er mjög ánægjulegt fyrir
íbúðarkaupendur, en veld-
ur þeim erfiðleikum sem
selja hús sín eða íbúðir hér
og ætla að flytja til Stór
Reykjavíkursvæðisins.
Telur þú að hús, sem þú bygg-
ir og selur jafnvel 50% ódýr-
ar en hús í Reykjavík, séu
nógu vönduð?
Það er erfitt fyrir mig að
svara þessu. Ég held að mín
hús standi fyllilega fyrir
sínu, annars verða aðrir að
dæmaum það.
Er dýrara að byggja í dag, en
þegar þú varst að byrja?
Já, það er erfiðara núna
m.a. vegna dýrari lána.
Kaupgetan finnst mér vera
minni svo hefur allt efni
hækkað verulega miðað við
laun, t.d. steypan.
Fylgir því mikið álag að reka
byggingafyrirtœki ?
Já það gerir það. Akaf-
lega sjaldan frí. Vinnudag-
urinn langur, fólk kemur
gjarnan á kvöldin og um
helgar til að ræða málin,
skoða teikningar og þess
háttar. Svo er það öll papp-
írsvinnan, en hana annast
ég sjálfur. Þá má nefna
óþægindi, sem geta fylgt því
ef fólk er óskilvíst, en sem
betur fer er það sjaldgæft.
Sýnir þú sömu hörku í við-
skiptum og íjúdóinu?
Nei, en allt þarf hugsun
og yfirvegun. Ég er ekki að
reyna að koma neinum á
kné í viðskiptum, en vil helst
sjá andstæðinginn á bakinu
íjúdóinu.
Hvað hefur þú unnið marga
titla á þínum keppnisferli?
Ég hef rúmlega ijörutíu
sinnum náð verðlaunasæti á
stórmótum. Þar af hef ég
unnið tíu sinnum til verð-
launa erlendis á Norður-
landamótum og Opna
Skandínavíska mótinu. Sex
sinnum hef ég orðið Is-
landsmeistari.. Ég hóf
keppni árið 1971, en er nú
farinn að íhuga að hætta
áður en langt um líður.
Ertu ríkur maður á okkar
mœlikvarða?
Kannski aðeins hug-
myndaríkur. Þegar ég flutti
til Grindavíkur átti ég tvær
íbúðir á Reykjavíkur-
svæðinu. Seldi þær og hóf
mína starfsem hér. Ég stend
svipað fjárhagslega nú og
þá, heldur verr ef eitthvað
er.
Hvernig sérðu þína eigin
framtíð og framtíð Grinda-
víkur?
Mér virðist framtíð
Grindavíkur vera nokkuð
björt, hér býr duglegt fólk.
Þó finnst mér vinnudagur
hér allt of langur og bitnar
það á félagslífinu. Ef menn
ætla að ná árangri í íþrótt-
um verða þeir að muna að-
hvíldin er jafn mikilvæg og
æfingarnar. Hvað mig
snertir hef ég mestan áhuga
á að hægja á mér við bygg-
ingarnar og eiga meiri frí-
tíma. Hafa tíma til að njóta
lífsins. Það dugar ekki að
drepa sig á allt of mikilli
vinnu.
BB
Vorið kemur
Vaknar þá af vetrarblund,
veröld, öll í blóma.
Vorsól fögur vermir grund
vorsins raddir hljóma.
Styttist vetur léttist lund,
tengjast birtustundir.
Þó föliS hylji freðna grund,
frjó er moldin undir.
Senn á himni hœkkar sól,
hressist andans kraftur.
Veröld skrýÖist vorsins kjól,
vakna grösin aftur.
(Álfur úrHól)
Álfur úr Hól er búsettur í Grindavík. En eru ekki fleiri hagyrðingar hér?
Bæjarbót vill gjarnan birta frumort kvæði og vísur. Látið skáldskapargáfuna
blómstra og sendið okkur árangurinn.