Bæjarbót - 05.01.1989, Qupperneq 5

Bæjarbót - 05.01.1989, Qupperneq 5
Janúar 1989 Bæjarbót, óháð fréttablað 5 Veitingastaðurinn í Báruhúsinu: „Ölkráarstemming og veitingar með austurlenskum hætti — undirbúningur er í fullum gangi — Nú er sólbaðsstofan Sólin hætt rekstri og undirbúningur ölstofunnar, sem Árni Björn Björnsson hyggst reka, í þeim hluta húsnæðis Bárunnar, sem Solin hafði, erí fullum gangi. Að sögn Árna Björns var ákveðið að kaupa hönnunar hugmynd bresks fyrirtækis, sem sérhæfir sig í ölstofum. „Hug- myndin er að þarna verði góð ölkráarstemming og veitingar með austurlenskum hætti, aðal- lega Thailenskum. Aðstaða verður fyrir pílukast, sem nýtur nú mikilla vinsælda. Við erum að vinna að undirbúningnum og ef ekkert óvænt kemur upp, gerum við ráð fyrir að opna 1. mars, þegar bjórbannið er á enda”. Samkvæmt heimildum blaðs- ins má gera ráð fyrir að um 50 einstaklingar í ýmsum nefndum, ráðum og embættum þurfi að fjalla um umsókn um leyfi til ölsölu og vinsölu. Sigurður Agústson er formaður Áfengis- varnarnefndar Grindavíkur. Hann var spurður um afstöðu nefndarinnar til umsóknar Árna. „Nefndin hefur ekki tekið endanlega afstöðu til málsins. Við fengum Árna Einarsson fulltrúa frá Heilbrigðisráðu- neytinu á fund hjá okkur og hann bauð að ráðuneytið kost- aði almenna skoðanakönnun meðal bæjarbúa 18 ára og eldri, þar sem m.a. verður spurt um afstöðu til ölstofu. Þegar sú nið- urstaða liggur fyrir mun nefndin móta sína afstöðu”. Bæjarstjórn hefur fyrir sitt leyti heimilað veitingarekstur í húsnæðinu. Þess má geta að gert er ráð fyrir 4-6 starfsmönn- um við veitingahúsið. Nýjar brautir í Fjölbrauta- skólanum Alls voru 577 nemendur í dagskóla í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á haustönn. í öldungadeildinni voru 140 nemendur og 160 nemendur sóttu ýmis námskeið á vegum skólans. Kennarar voru um 50 á önninni. í lok haustannar braut- skráðust 32 nemendur. Gert er ráð fyrir svipuðum nem- endafjölda á vorönn. Sjúkra- liðabraut verður opnuð og líklega netagerðarbraut. Ýmsir aðilar hafa verið að færa FS gjafir að undan- förnu. Hitaveita Suðurnesja og Rafverktakafélag Suður- nesja gáfu fjórar iðntölvur, Vélstjórafélag Suðurnesja gaf 75 þús. krónur, en það félag hefur ákveðið að verja ákveðnum hluta af félags- gjöldum til uppbyggingar á vélstjórnarbraut skólans. Svo gaf Útvegsmannafélag Suðurnesja myndbandsspól- ur, en á þeim er fræðsluefni varðandi sjósókn og notkun ýmissa veiðarfæra og fleira. TRYGGINGAR! íheimi yfirborðsmennskunnar og gylliboðanna er gott að standa á traustum grunni — og hafa allt sitt á hreinu. # Tryggingamiðstöðin er traustur bakhjarl fyrir þig! FLAKKARINN Sími 68060 Húseignir til sölu í Grindavík Stórt einbýUshús við Leynisbraut. Ca 225 ferm. Utið áhvilandi. Verð: 6.200.000.- Austnrvegur 48. Litið einbýUsbús. Hagstætt verð. 110 ferm rúmgóð efri hæð við Viknrbrant. Verð: 3.500.000.- 126fermetraneðrihæðviðViknrbrant. Verð: 2.700.000.- Hafnargata 2. Bdra einbýUshús, úsamt 52 ferm. bflskúr. Hagstæð kjör Verð: 2.600.000.- Túngata 2. Hdra einbýUshús, kjaUari hæð og ris. Mikið endurnýjað Verð: 1.900.000.- Hólaveflir 1. 137 ferm. einbýUsbús úsamt 42 ferm. bflskúr. Góðar innrétt- ingar. Verð: Tflboð Hciðarhraun 39.117 ferm. raðhús, úsamt 27 ferm. bflskúr. Verð: Tflboð Efstahraun 10. Ca. 135 ferm. raðhús, úsamt 27 ferm. bflskúr. Verð: 4.400.000.- Austurvegur 14. Fullgerð eign i sérlega góðu ústandi 4 herb. og stofa. Verð: 5.000.000.- Vesturbraut 17. Nýlegt einbýUsbús. Verð:TDboð Múnagerði 2. Glæsilegt einbýUshús ú góðum stað. Möguleiki ú ibúð i kjaflara. Verð: Tilboð FASTEIGNAÞJONUSTA SUÐURNESJA Hafnargötu 31 - Keflavík - Símar 13722 - 15722 Elías Guðmundsson, sölustjóri Ásbjörn Jónsson, lögfræöingur Eignamiðlun Suðurnesja Húseignir í Grindavík Gott 3ja herb. raðhús við Heiðarhraun. Verð:3.100.000.- 120 ferm. einbýlishús við Túngötu, ásamt 60 ferm. bílskúr. Skipti á stærri eign möguleg. Verð: 3.400.000.- 160 ferm. einbýlishús við Arnarhraun, ásamt 30 ferm. bíl- skúr. Mikið endurnýjuð eign. Verð: 4.500.000,- Vandað 130 ferm. steinsteypt einbýlishús við Hvassahraun, ásamt 70 ferm. bílskúr. Verð: 5.000.000.- Glæsileg einbýlishús í smíðum við Ásvelli. Skil- ast fullgerð að utan og fokheld að innan. Verktaki er Grindin sf. Nánari uppl. á skrifstofunni. Eignamiðlun Suðurnesja Ballskák: Jóhanná uppleið Á jólamóti Knattborðs- stofu Suðurnesja var mjög góð þátttaka. 48 keppendur mættu til leiks í keppni með forgjöf. í þeim hópi var einn Grindvíkingur, Jóhann Dal- berg Sverrisson. Hann spil- aði af miklu öryggi, vann hvern keppinautinn af öðrum og komst alla leið í úrslitaleikinn, en tapaði fyrir Halldóri Ma. Þetta er góður árangur hjá Jóhanni, þar sem hann taldist í 3. styrk- leikaflokki, en flyst nú í 2. flokk. Hljómplötur! * Erum með gott úrval af plötum, nýjum sem gömlum. — Tónlist er lifandi og langlíf! — — Hún fæst í Braut! — "a •vn -a ■a ■Q "C3 *V3 T3 T3 T3 X3 BRAUT SIMINNER 68722 Þú getur gengið að úrvalsmyndbandaefni hjá okkur! Góð skemmtun ! — Á vægu verði ! Gos Léttöl Samlokur Snakk Sælgæti Dagblöð

x

Bæjarbót

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarbót
https://timarit.is/publication/1421

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.