Bæjarbót - 05.01.1989, Side 8
8 Bæjarbót, óháð fréttablað
Janúar 1989
Holland:
Nýr fjölskyldustaður,
sannkölluð orlofsparadís
ORLOFSÞORPIÐ
LOOHORST
Dvöl í sunarhúsum og orlofs-
þorpum er orðinn ríkur þáttur í
ferðavenjum íslendinga á
síðustu árum.
í sumar býður Saga sannkall-
aða „orlofsparadís” í Hollandi,
en hér er um að ræða 500 húsa
orlofssvæðið LOOHORST
Það er staðsett í Limburg, einu
fallegasta héraði Hollands, um
tveggja klst. akstur frá Amster-
dam. Orlofsþorpið Loohorst
hentar sérlega vel fjölskyldum
með börn á öllum aldri því þar
er að finna stórt og gott sund-
laugasvæði, bæði inni og úti,
sem er sannkallaður miðpunkt-
ur þorpsins.
Saga mun hafa íslenskan far-
arstjóra í Loohorst í allt sumar.
Hann mun verða farþegum til
aðstoðar og einnig bjóða upp á
skoðunarferðir um Holland til
Amsterdam, og til annarra
landa. Sérstakar skemmtiferðir
fyrir börn og margt fleira.
Hér er um að ræða fyrsta
flokks orlofsþorp sem byggt
hefur verið á 125 hektara lands í
einu fallegasta héraði Hollands.
Hér er að finna allt það sem
nauðsynlegt er og meira til.
Staðsetning
Loohorst orlofsþorpið er í
Suð-austurhluta Hollands við
bæinn America, milli bæjanna
Venlo og Venray um tveggja
klst. akstur frá Amsterdam.
Örstutt er yfir til fegurstu svæða
Þýskalands, Mósel og Rín. Til
Dusseldorf er rúmlega 1 klst.
akstur og lítið eitt lengra til
Köln.
Aðbúnaður
í orlofsþorpinu eru 500 hús sem
á smekklegan hátt hefur verið
raðað niður umhverfis stóra og
fjölbreytta þjónustumiðstöð og
líkja má við lítið þorp. Hér er
um að ræða mismunandi
veitingastaði. Veitingastað og
kaffiteríu, pizzustað, buffet,
pönnukökuhús, smáréttastað
o.fl. Sérstakt spilahús þar sem
hægt er að spila á spil eða fara í
spil, t.d. matador, lúdó, millu
og fleira því um líkt eða tefla
skák. Gríðarstór kjörbúð með
glæsilegu kjöt- og ostaborði og
sérstakri grænmetisdeild og
áfengisverslun. Ekki má gleyma
hinu stórkostlega sundlaugar-
svæði sem segja má að sé mið-
punktur orlofsþorpsins. Hér er
einnig diskótek og nokkrir bar-
ir. í gestamóttöku er hægt að
leigja öryggishólf. Pósthús og
símstöð er á svæðinu.
Fyrir börn
Sérstakt hús er fyrir yngri börn-
in. Þar geta þau dvalið hluta úr
degi við leiki úti eða inni við
föndur og málun undir leiðsögn
þjálfaðs starfsfólks. Við hliðina
á veitingahúsinu er gott leik-
svæði fyrir börn með margs
konar tækjum. Á kvöldin er
hægt að fá barnapössun (gegn
gjaldi).
Skemmtanir
Við hliðina á keiluhúsinu er gott
diskotek með bar og á sumum
veitingastöðunum er spiluð
músík nokkrum sinnum í viku.
Einnig er sérstakur spilasalur
með mörgum tækjum m.a.
„jackpot” vélum.
Bónustilboð Sögu
Þeir farþegar sem dvelja í
Loohorst í apríl, mai og júní fá
svokallað „Bónustilboð Sögu”.
Það er þegar tveir fullorðnir eða
fleiri eru saman, þá fá þeir frí af-
not af bílaleigubíl (flokkar A, B,
C, og D eftir fjölskyldustærð) í
eina viku meðan dvalið er í or-
lofsþorpinu. Einungis þarf að
greiða kaskótryggingu og sölu-
skatt af verði einnar viku leigu.
Ef farþegar vilja svo framlengja
leigutímann greiða þeir leigu
samkvæmt sértilboði á bílaleigu-
bílum er Saga býður í Hollandi í
sumar.
Nánari upplýsingar fást hjá
Flakkaranum, umboðsaðila
Sögu í Grindavík.
Bætt þjón-
usta við
barnafólkið
í apríl 1985 samþykkti bæjar-
stjórnin að endurgreiða foreldr-
um þeirra barna, sem ekki nutu
leikskólavistar, hluta af því
gjaldi, sem var greitt fyrir þau
hjá dagmæðrum.
Frá þeim tíma hefur starf dag-
mæðra eflst talsvert og eru nú
starfandi 6 dagmæður, sem
veita almenningi í bænum þjón-
ustu.
Nokkuð hefur vantað á, að
yngstu börnin hafi komist í
gæslu og einnig hefur starf dag-
mæðra að mestu legið niðri á
sumrum.
Til þess að bæta þjónustu við
þá, sem þurfa á gæslu yngri
bama að halda meginhluta árs-
ins, var gamla kirkjan útbúin
fyrir þá þjónustu og auglýst eftir
rekstraraðila, sem vildi taka að
sér verkefnið með þeim kvöðum
og hlunnindum sem tilgreind
voru í auglýsingu.
Ein umsókn barst. Var hún
frá konu, sem skömmu áður
hafði fengið viðurkenningu til
að starfa sem dagmóðir. Var
samið við hana og hófst starf-
ræksla í gömlu kirkjunni 16.
janúar s.l.
(Fréttatilkynning)
AUGNLÆKNIR
í KEFLAVÍK
•
Hef tekið til starfa á stofu í
húsnæði Gleraugnaverslunar Keflavíkur
að Hafnargötu 17 í Keflavík.
Tímapantanir teknar í síma 13811
Haraldur Sigurðsson
augnlæknir
Frá Námsflokkum
Grindavíkur
Námskeið á vorönn hefjast
mánudaginn 6. febrúar
ENSKA: Kennari Óli Þór Kjartansson, kennsludagar: Þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 20.00-21.20. 6 vikur. Hefst 7. feb.
Verð kr. 4.000.-
SILKIMÁLUN: Kennari Elín Magnúsdóttir, kennsludagar:
Sunnudagur 12. feb. kl. 15.00-18.00, föstudagur 17. feb. kl.
19.00-22.00, sunnudagur 19. feb. kl. 15.00-18.00. Verð kr.
2.000.-. Efnisgjald kr. 1.000.-1.200.-
MYNDLIST FYRIR BÖRN: Kennari Sigríður J. Bjarnadótt-
ir, kennsludagar: Mánudagar kl. 17.00-18.30 yngri
nemendur, þriðjudaga kl. 17.00-18.30 eldri nemendur. Hefst
6. feb. 6 vikur. Verð kr. 2.700.-
BRIDS: Kennari, kemur frá Bridsfélagi Suðurnesja, miðviku-
daga kl. 20.00-22.30. Hefst 8. feb. 6 vikur. Verð kr. 3.700.-
FATASAUMUR: Kennari Signý Ormarsdóttir, kennsludag-
ar: Mánudagar 20.00-22.30 framhaldshópur, þriðjudaga kl.
20.00-22.30 byrjendahópur. Hefst 6. feb. 6 vikur. Verð kr.
3.500. -. í byrjendahópnum verður fyrstu tvö kvöldin farið í
grunnatriði varðandi fatasaum, þ.e., val á sniði, málltöku,
taka upp snið, sníða o.fl. Kennd verða þrjú atriði í prufum,
hliðar vasi, einfaldur kragi og rennilás í gallabuxur. Frjálst
verkefni eftir það. Framhaldshópur, ætlað þeim sem hafaein-
hverja þjálfun í saumaskap.
GARÐYRKJA: Kennari, Hafberg Þórisson, kennsludagar:
Mánudaginn 13. feb. kl 20.00-22.00, þriðjudaginn 14. feb. kl
20.00-22.00, fimmtudaginn 16. feb. kl. 20.00-22.00. Verð kr.
2.500. - ATH kennt verður um pottaplöntur, vorsáningar o.fl.
VÉLRITUN: Kennari, Björg Barðadóttir, kennsludagar:
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 20.00-21.30. Hefst 7. feb. 4
vikur. Verð kr. 2.500,-
Allar nánari upplýsingar og innritun hjá Magnúsi í síma 68443
í hádeginu kl. 12.30-13.00, og á kvöldin, einnig laugardaga og
sunnudaga.
Dragið ekki að innrita ykkur.
Forstöðumaður.