Bændablaðið - 14.01.2016, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2016
„Ég opnaði formlega fyrstu
helgina í janúar og er kominn
á fullt að baka fyrir fólk hér á
Flúðum, sumarbústaðaeigendur
og aðra sem eru hér á ferðinni.
Viðtökurnar hafa verið frábærar
og það er búið að vera brjálað að
gera,“ segir Sindri Daði Rafnsson,
sem hefur opnað Sindra bakarí í
bílskúrnum við Ljónastíg 8. Sindri
lærði bakaraiðn í Danmörku þar
sem hann bjó í tólf ár.
„Gamla handverkið er í mínu
uppáhaldi, ég geri allt í höndunum
á gamla mátann og er með gömul
tæki sem virka eins og ný.
Mér finnst skemmtilegast að
baka vínarbrauð en síðan er ég
auðvitað með brauð, rúnstykki og
fjölbreytt bakkelsi,“ bætir Sindri
við.
/MHH
Alþingi beinir þeim tilmælum
til atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins að það taki
upp stjórnsýslukæru sauðfjár-
bænda á Jökuldal að nýju, komi
fram beiðni þess efnis frá þeim.
Úrskurðurinn var birtur 14. des-
ember 2015.
Sauðfjárbændur leituðu til
umboðsmanns Alþingis í mars
2015 og kvörtuðu yfir úrskurði
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins. Í úrskurðinum var vísað
frá stjórnsýslukæru þeirra vegna
þeirrar afstöðu Matvælastofnunar
að hafna beiðni þeirra um að stofn-
unin staðfesti eldri landbótaáætlanir
varðandi gæðastýringu í sauðfjár-
rækt. Ráðuneytið taldi að í afstöðu
Matvælastofnunar fælist ekki
stjórnvaldsákvörðun og því væri
hún ekki kæranleg til ráðuneytis-
ins. Umboðsmaður telur að erindi
sauðfjárbændanna til ráðuneytisins
verði ekki skilin með öðrum hætti
en að í þeim hafi verið farið fram á
að Matvælastofnun staðfesti gildi
landbótaáætlana sem þeir höfðu
gert í gildistíð eldri reglugerðar og
þar með teldust þeir áfram uppfylla
skilyrði fyrir þátttöku í gæðastýrðri
sauðfjárframleiðslu. Taldi umboðs-
maður ljóst að farið hefði verið
fram á að Matvælastofnun tæki
ákvörðun sem varðaði lagalegan rétt
landeigendanna og þar með stjórn-
valdsákvörðun í merkingu stjórn-
sýslulaga. Af þeim sökum hefði
Matvælastofnun borið að leggja
erindið í farveg stjórnsýslumáls.
Umboðsmaður telur að þar
sem það var mat ráðuneytisins að
Matvælastofnun hefði í reynd ekki
tekið stjórnvaldsákvörðun hefði
því borið sem æðra stjórnvaldi að
taka afstöðu til þess hvort stofnun-
in hefði lagt erindið í réttan farveg
að lögum. Þar sem ráðuneytið fór
ekki þá leið í úrskurði sínum var
það álit umboðsmanns að frávís-
un ráðuneytisins á stjórnsýslukæru
landeigendanna hefði ekki verið í
samræmi við lög.
Umboðsmaður beindi þeim til-
mælum til ráðuneytisins að það taki
upp mál landeigendanna að nýju,
kæmi fram beiðni þess efnis frá
þeim, og hagaði þá úrlausn sinni
í samræmi við þau sjónarmið sem
rakin væru í álitinu. /VH
Fréttir
Álit umboðsmanns Alþingis:
Stjórnsýslukæra sauðfjárbænda á
Jökuldal skal tekin upp að nýju
Nýtt hestamannafélag í Skagafirði:
Skagfirðingur skal það heita
Nýtt sameinað hestamanna-
félag í Skagafirði mun heita
Skagfirðingur. Þetta var ákveðið
á dögunum.
Félögin þrjú, sem áður störf-
uðu í Skagafirði, Svaði, Léttfeti og
Stígandi, sameinast brátt í eitt félag,
Skagfirðing, og eru miklar vonir
bundnar við hið nýja félag. Auglýst
var eftir tillögum að nýju nafni á
félagið, kosið á milli nokkurra þeirra
sem bárust, og varð nafnið Fluga
fyrir valinu. Síðar var ákveðið að
hafa nafnakosningu á ný og í þeirri
kosningu varð nafnið Skagfirðingur
fyrir valinu. /MÞÞ
Íbúum í Ölfusi, Hveragerði
og Árborg fjölgar hratt
Íbúum á Suðurlandi fjölgar stöð-
ugt, ekki síst á þeim stöðum sem
næstir eru höfuðborginni.
Árið 2015 fjölgaði íbúum í
Árborg t.d. um 150 sem þýðir
1,86% fjölgun, í Hveragerði fjölg-
aði íbúum um 75 sem þýðir 3,14%
fjölgun og í Ölfusi fjölgaði íbúum
líka mikið, eða um 3,7% og eru þeir
nú 1.954 talsins. Í Hveragerði búa
í dag 2.462 íbúar og í Árborg búa
8.202 íbúar. /MHH
Jökuldalur.
Sindri við bakstur í nýja bakaríinu sínu á Flúðum. Myndir /Ívar Sæland.
Fyrsta bakaríið opnað á Flúðum
nýja bakaríið.
Síldarminjasafnið á Siglufirði:
Aldrei fyrr fleiri gestir
Árið 2015 sóttu 22.090 gestir
Síldarminjasafnið heim, en aldrei
fyrr hefur gestatalan verið svo há.
Það er áhugavert að líta til fjölg-
unar erlendra ferðamanna milli
ára – þeir voru um 5.000 fleiri á
árinu 2015 en 2014 eða alls 52%
allra safngesta.
Fram kemur í frétt á heimasíðu
Síldarminjasafnsins að hæst hlut-
fall gesta á safninu á liðnu ári voru
þeir sem komu á eigin vegum, um
52%. Þá komu 38% með skipulögð-
um hópferðum og 10% gesta sóttu
ein staka viðburði, svo sem síldar-
saltanir eða tónleika í húsakynnum
safnsins.
Allt útlit er fyrir að árið 2016
verði safninu hagstætt en nú, fyrstu
vikuna í janúar, liggja fyrir um 150
bókanir fyrir árið auk þess sem 14
skemmtiferðaskip hafa boðað komu
sína til Siglufjarðar. /MÞÞ
22 þúsund manns. Myndir / Síldarminjasafnið
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
ÚTSALA
R E Y K J A V Í K - A K U R E Y R I