Bændablaðið - 14.01.2016, Side 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2016
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið
og því upplagt núna í upphafi nýs
árs að huga að sumarblómunum
og sáningu þeirra. Í grunninn
skiptir ekki máli hvort sá á fræj-
um af sumarblómum, krydd- og
matjurtum eða fjölæringum,
aðferðin er í megindráttum sú
sama.
Í daglegu tali er það sem við köll-
uð sumarblóm fljótvaxnar og ein-
ærar plöntur hér á landi sem vaxa
upp af fræi, blómstra um sumarið
og deyja að hausti. Flest sumarblóm,
eins og stjúpur, fagurfífill, ilmbaunir
og fiðrildablóm eru ræktuð vegna
blómfegurðar en önnur, til dæmis
silfurkambur og skrautkál, vegna
blaðanna.
Góður undirbúningur
nauðsynlegur
Yfirleitt er auðveldara en flesta
grunar að rækta plöntur af fræi.
Vanda þarf vel allan undirbúning,
gæta þess að verkfæri og pottar séu
hreinir og að moldin sé laus við
óæskilegar örverur. Allra best er
að nota sáðmold sem hægt er að
kaupa í gróðurvöruverslunum eða
svokallaðar sáðtöflur sem eru sér-
staklega ætlaðar fyrir fræ. Í töflun-
um er sáðmold sem lyftir sér þegar
hún blotnar og fræin skjóta rótum
í hana. Í moldinni eru öll næring-
arefni sem ungplönturnar þurfa og
töflunum fylgir sá kostur að hægt
er að planta moldarkögglinum í
stærri pott án þess að hreyfa við
plöntunni sjálfri.
Þegar sáð er í bakka eða potta
verður að þvo ílátin með heitu
sápuvatni og hreinsa vel svo engin
óhreinindi verði eftir og til að koma
í veg fyrir rótarhálsrotnum hjá ung-
plöntunum. Rótarhálsrotnun stafar
af sveppasýkingu sem lýsir sér í því
að plönturnar verða svartar við rót-
arhálsinn og drepast.
Sáning
Að loknum undirbúningi er komið
að sáningunni sjálfri. Gæta skal
þess að kaupa fræ af tegundum sem
dafna vel þar sem þeim er ætlað að
standa. Það fæst lítið með því að
rækta plöntur sem þurfa mikla sól og
setja þær síðan á skuggsælan stað.
Flestar plöntur þurfa birtu þrátt
fyrir að sumar tegundir standi sig
ótrúlega vel í skugga. Einnig verð-
ur að huga að hæð plantnanna og
muna að lágvaxnar plöntur henta
betur þar sem vindur blæs.
Þegar búið er að setja sáðmold-
ina í ræktunarílátið skal þjappa
henni lauslega og vökva þannig
að hún verði rök en ekki blaut
í gegn. Einnig er hægt að setja
venjulega gróðurmold í ílátið og
tommuþykkt lag af sáðmold ofan
á hana. Fræin spíra í sáðmoldinni
og rótin vex síðan niður í gróð-
urmoldina. Þannig má spara sér
að dreifplanta plöntunum í stærri
potta um tíma.
Fræjunum er sáldrað jafnt yfir
moldina og þess gætt að þau liggi
ekki of þétt. Að því loknu er þunnu
moldarlagi, tvöfaldri stærð fræj-
anna, stráð yfir. Séu fræin mjög
smá er nóg að þjappa þeim laus-
lega niður í moldina. Til að koma
í veg fyrir að moldin og fræin fari
af stað í bökkum við vökvun er
gott að leggja blað yfir moldina
og vökva varlega yfir það. Munið
að setja pinna með nafni tegundar-
innar og lit í ræktunarílátið til að
vita hvað er í hverju íláti.
Æskilegt hitastig við spírun er
18 til 20°C en gott er að lækka
hitann um nokkrar gráður eftir
að plönturnar koma upp. Annars
vaxa þær of hratt og verða renglu-
legar. Þar sem lítillar birtu gætir er
nauðsynlegt að notast við raflýs-
ingu til að koma í veg fyrir svo-
kallaðar myrkraspírur. Yfirleitt
nægir þó að láta ræktunarílátið á
bjartan stað því ekkert kemur í
stað góðrar dagsbirtu.
Spírunartími fræja er mis-
munandi og því nauðsynlegt að
hafa hann í huga þegar sáning er
undirbúin. Sumum sumarblómum,
eins og rauðum stjúpum, þarf að
sá inni í janúar vegna þess hversu
lengi þau eru að spíra, en fræi af
klettasalati er sáð beint í beð lok maí.
Dreifplöntun og hersla
Fyrstu blöðin koma yfirleitt upp
nokkrum dögum eftir sáningu og
eftir því sem plönturnar stækka
verða þær fyrirferðarmeiri og
þurfa meira rými til að vaxa og
dafna. Skömmu eftir að venjuleg
laufblöð taka við af kímblöðum, en
svo nefnast fyrstu blöðin sem koma
upp úr moldinni, er nauðsynlegt að
dreifplanta eða prikkla plöntun-
um út í stærri pott eða auka bilið
á milli þeirra í sáðbakkanum. Sé
plöntunum dreifplantað í bakka fer
bilið á milli þeirra eftir tegundum en
í flestum tilfellum er það haft um
fimm sentímetrar. Skyr- og jógúrt-
dósir henta vel til dreifsáningar sé
þess gætt að setja gat í botninn til að
koma í veg fyrir ofvökvun.
Þegar hér er komið sögu eru ung-
plönturnar í miklum vexti og gott
að vökva þær með áburðarblöndu
að minnsta kosti einu sinni í viku.
Plantað í garðinn
Áður en plönturnar eru settar út í garð
er nauðsynlegt að venja þær við hita-
stigið utandyra til að koma í veg fyrir
sjokk þegar þeim er plantað út. Þetta
er gert með því að flytja plönturnar
í vermireit eða með því að láta þær
standa úti hluta dags, en verja fyrir
næturfrosti og lengja útivistartím-
ann eftir því sem hlýnar í veðri. Séu
plönturnar hertar of hratt fá blöðin
á sig bláan lit og vöxtur stöðvast.
Stjúpur, fagurfífill og fjólur þola
vel kulda og hægt að setja í útireit
með yfirbreiðslu í byrjun apríl en
flauels- og klæðisblóm þola kulda
aftur á móti afar illa.
Útplöntun ræðst af tíðafari en
yfirleitt má setja harðgerðustu
tegundirnar í beð í lok maí og þær
allra viðkvæmustu kringum miðjan
júní. Ungplönturnar þola ekki frost
og því getur reynst nauðsynlegt að
skýla þeim þar til hætta á næturfrosti
er liðin hjá. Til að plönturnar dafni
vel þurfa þær jarðveg sem hentar
hverri tegund fyrir sig. Bilið á milli
plantna fer svo að sjálfsögðu eftir
fyrirferð þeirra.
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Hugað að sáningu
Paradísarblóm.
Klæðisblóm.
• Hnúðskáblað
Begonia tuberhybrida
janúar
• Blóðdropar
Kr. Fuchsia x hybrida
jan.–feb.
• Fagur fíflill
Bellis perennis
jan.-feb.
• Fjallafjóla
Viola cornuta & V. x williamsii
jan.–feb.
• Silfurkambur
Senecio cineraria
jan.–feb.
• Sólboði
Osteospermum-blendingar
jan.-feb.
• Sólbrúður
Pericallis x hybrida
jan.–feb
• Stjúpublóm
Viola x wittrockiana
Rauðar í jan. aðrar í feb
• Tóbakshorn Petunia x atkinsiana
jan.–feb.
• Drottningarfífill
• Zinnia elegans
febrúar
• Ljónsmunnur
Antirrhinum majus
febrúar
• Mánafífill
Gazania x hybrida
febrúar
• Stjörnuklukka
Campanula poscharskyana
febrúar
• Brúðarauga
Lobelia erinus
feb.–mars
• Frúarhattur
Rudbeckia fulgida var. speciosa
Feb.-
mars
• Meyjarblóm
Clarkia amoena
feb.–mars
• Svartauga
Thunbergia alata
feb.–mars
• Apablóm
Mimulus cupreus
mars
• Bláhnoða
Ageratum houstonianum
mars
• Brúðarstjarna
Cosmos bipinnatus
mars
• Daggarbrá
Leucanthemum paludosum
mars
• Fiðrildablóm
Nemesia strumosa
mars
• Garðajárnurt
Verbena x hybrida
mars
• Hádegisblóm
Dorotheanthus bellidiformis
mars
• Hengijárnurt
Verbena tenuisecta
mars
• Héraskott
Lagurus ovatus
mars
• Ilmskúfur
Matthiola incana
mars
• Skógarmalva
Malva sylvestris
mars
• Skrautkál
Brassica oleracea var. acephala
mars
• Sólblóm
Helianthus annuus
mars
• Sumarljómi
Phlox drummondii
mars
• Tígurblóm
Mimulus luteus
mars
• Aftanroðablóm
Lavatera trimestris
mars–apríl
• Dalía Dahlia
x hortensis
mars–apríl
• Flauelisblóm
Tagetes patula
mars–apríl
• Friggjarbrá
Ismelia carinata
apríl
• Garðakornblóm
Centaurea cyanus
mars–apríl
• Klæðisblóm
Tagetes erecta
mars–apríl
• Morgunfrú
Calendula officinalis
mars–apríl
• Möggubrá
Argyranthemum frutescens
mars–apríl
• Paradísarblóm
Schizanthus x wisetonensis
mars–apríl
• Skrautnál
Lobularia maritima var. maritima
mars–apríl
• Sólbrá
Coleostephus multicaulis
mars–apríl
• Skjaldflétta
Tropaeolum majus
mars–apríl
• Þorskagin
Linaria maroccana
mars–apríl
• Njarðarbrá
Xanthophthalmum segetum
apríl
• Vinablóm
Nemophila menziesii
apríl
Sáning sumarblóma