Þjóðólfur - 04.05.1942, Page 3
1» 3 Ö.S ö L F,U B
Mismunandi sfyp&anir á rœ&u Hitlers. — 5íríðíð um
listina heldur áfram. — Þa& þyhjr e\kf sambœrilegt
að kvœnast á íslandi og berjast hinni góðu baráttu fyr-
ir málstað Bandamanna. — Bœndur vilja fá erlent
verkafólk — Slysahœttan á sjónum.
-------------- UMHORF ÞJÖÐÖLFS
í SUNNUDAGINN fyrir viku
f\ síðan kvaddi Hitler saman
þýzka ríkisþingið til þess að hlýða
á boðskap sinn. Hann talaði um
gang stríðsins og lýsti vetrar-
hörkunum í Rússlandi, sem verið
hefðu meiri en dæmi voru til síð-
ustu 40 árin. Taldi hann, að um
skeið hefði horft alvarlega fyrir
þýzka hernum á austurvígstöðv-
unum, sn fyrir frá-
Ræða Hitlers. bært þrek og
dugnað hersins,
einkum fótgönguliðsins, hefði
vandinn verið yfirstiginn og her-
inn haldið velli. — Hitler beindi
þeim orðum til þingsins, að þýzka
þjóðin hefði allt að vinna í þessu
stríði, en byði hún ósigur, væri
allt tapað. Þess vegna yrði hún
nú að leggja sig alla fram. Hér
eftir gæti þjóðin ekki búizt við
neinum réttindum, aðeins skyld-
um. öllu yrði að fóma fyrir sig-
urinn. Jafnframt fór Hitler fram
á það, að þingið legði öll völd
óskorað í sínar hendur. Sam-
þykkti þingið að fela honum öll
völd, sem hann teldi sig þurfa
með til þess að geta sigrað. Hef-
ur Hitler þannig vald til að
„refsa, vikja frá störfum eða
svipta réttindum, án tillits til
gildandi lagafyrirmæla”, ef hann
telur þess þörf. — Þinghald
þetta hefur að vonum vakið mik-
ið umtal. Á þessum tímum
vorsóknarundirbúningsins er hler-
að eftir minni tíðindum en þeim,
þegar þýzki ríkisleiðtogin flytur
þinginu boðskap sinn.
Frá fréttastofnunum í löndum
Bandamanna berast þær fregnir
hvaðanæva að þetta beri að skilja
sem merki um mikla innanlands-
örðugleika í Þýzkalandi. Tekið sé
að brydda veru-
„Ritskýringar’ ^ ^ óánægju
á ræðunni.
þýzku þjóðarinnar
og hafi Hitler beð-
ið um þessar heim
ildir til þess að geta kveðið nið-
ur allan mótþróa með harðri
hendi. Úr öðrum áttum láta þær
raddir til sín heyra, að þetta sé
aðeins tákn þess, að i vorsókn
Þjóðverja muni ríkja ósveigjanleg
festa, þar sem formsatriði friðar-
tímanna verði ekki látin standa
í vegi. Um réttmæti hvorttveggja
þessara skýringa verður vitanlega
ekkert fullyrt. Reynslan verður
að skera úr því. Enn bíða menn
í ofvæni þess, er koma mun. Eng-
in vorsókn er enn hafin, Hermála-
sérfræðingar í London hafa látið
í ijós, að skilyrðin í Rússlandi
geri enga sókn mögulega fyrr en
í júnímánuði. Er því enn tími til
stefnu að þreyta getgátur um á-
tökin í sumar.
MILLI Menntamálaráðs ann-
ars vegar og listamanna
hins vegar er enn stríðsástand
ríkjandi. Alþingi hefur ekki tekið
lil neinnar meðferðar kæruskjal
hinna 66 rtthöfunda, skálda, tón-
listarmanna og myndagerðar-
manna. Formaður ráðsins hefur
stofnað til sýn-
strisis vi«
Menntamálaráð. aðn 1 s ugg‘
um Gefjimar við
Aðalstræti. Er til
sýningarinnar stofnað í því skyni
að ófrægja þá listamenn, sem
myndimar hafa gert, En ekki eru
menn á einu máli um listgildi
þessara mynda. Telja sumir þær
bera- ótvíræðan vott um listgáfu
málaranna og hæfileika, en öðr-
um sýnist það gagnstæða. En all-
ir menn láta sér fátt um finnast
þá ofsóknarhneigð, sem stendur
að baki sýningarinnar.
I síðustu viku voru birtar í
dagblöðunum tvær fregnir varð-
andi hervemd íslands. önnur var
sú, að ameríski hershöfðinginn,
Charies H. Bonesteel, tæki við
yfirstjóm herliðs Bandamanna á
íslandi af brezka hershöfðingjan-
um Henry O. Curtis. Og sam-
dægurs var frá því skýrt, að her-
stjóm Bandaríkjanna á íslandi
bannaði hermönnum sínum að
kvænast hér með-
TT , an á stríðinu stæði.
Hervernd og . , .
... , Astæður voru til-
njonabond. . ,
gremdar þær, að
skyldur hermanns-
ins og eiginmannsins fæm ekki
saman, að hermaðurinn réði ekki
sínum næturstað og að hemaðar-
yfirvöldin hefðu ekki vald til að
knýja hermann til að framfæra
skyldulið sitt.
Næstu tvo daga eftir að þessi
„aðvörun” var birt, skýrði Morg-
unblaðið frá einni íslenzk-amer-
ískri trúlofun hvom dag. Má
sennilega gera ráð fyrir, að slíkar
trúlofanir séu einskonar ,,hjóna-
bönd”, sem baki dátunum engar
skyldur.
SETT hefur verið á stofn
Ráðningarskrifstofa landbún-
aðarins. Verkafólkseklan sverfur
mjög að bændum. Á Búnaðarþingi
var rætt um þann möguleika að
flytja inn verkafólk og samþykkt
svohljóðandi þingsályktunartil-
laga þar að lútandi
,,Búnaðarþing ályktar að skora
á ríkisstjómina að taka til athug-
unar nú þegar, hvort framkvæm-
anlegt sé að flytja úrn
færeyskt verkafólk eða
annað erlent verkafólk
til iandbúnaðarstarfa.
Reynist að það sé
unnt meci viðráðanlegum kjörum,
þá verði innflutningur þess fram-
kvæmdur”.
Þá vill Búnaðarþ. að rikið verji
nokkru fé til stuðnings því að
ungmenni úr kaupstöðum og
kauptúnum venjist
Verðlaim hollri vinnu í sveit-
ungmenna. um landsins. Sam-
þykkti það svohjóð-
andi tillögu:
„Búnaðarþing ályktar að skora
á Alþingi að leggja fram úr ríkis-
sjóði allt að 100 þúsund krónur
til verðlauna handa ungmennum
14—18 ára, úr kaupstöðum og
kauptúnum, sem vinna í sveitum
landsins að landbúnaði næsta
sumar, gegn því að hlutaðeigandi
bæjarsjóður greiði % verðlaun-
anna. Upphæð verðlauna sé 100
til 200 krónur til ungmcnnis. —
Skulu ungmennin hafa vinnubók,
sem húsbændur þeirra rita í álit
sitt um verkhæfni þeirra og hegð-
un. Ráðningarstofa landbúnaðar-
ins veitir verðlaunin. Ríkisstjóm-
in setji reglur fyrir verðlauna-
veitingum”.
Erlent
verkafólk.
NÁLEGA á hverjum degi má
heyra útvarpstilkynningar
um siglingahættu. Tundurdufl eru
á reki um allan sjó. Siglingaleiðir
kringum landið eru ótryggar. Á
fiskislóðun-
Dauðinn við um getur
strendur iandsins. dauðinn beð-
ið fiskimann-
anna á næsta öldukambi í líki
þessara óboðnu gesta upp að
ströndum landsins. Þessi hætta
virðist sízt fara minnkandi. Þann-
ig var frá því skýrt í síðustu
viku, að dufla hefði aldrei orð-
ið vart jafn innarlega á Faxaflóa
og þá. Og sjófarendum einum
stafar ekki hætta úr þessari átt.
I sumum sjávarþorpum landsins
hefur lífi og eignum borgaranna
stafað hætta af þessum vágest-
um. Fyrir nokkru síðan rak eitt
þessara dufla á land í þorpi einu
norðanlands. Það velktist í fjöru-
borðinu dögum saman. 'Þegar loks
var búið að eyðileggja það, var
frá því skýrt, að ef það hefði
sprungið þama í flæðarmálinu,
mundi meiri hluti þorpsins hafa
hrunið í rústir af völdum spreng-
ingarinnar.
Það er lítill vafi á því, að ýms-
ir friðsamir sjófarendur láti h'f-
ið fyrir tilverknað þessara dufla
áður en yfir lýkur. Dularfullra
siysa, sem ástæða virðist til að
rekja til þeirra, er þegar farið
að gæta. Þannig skýrir blaðið
Skutull á ísafirði frá því 18. f.
m., að erlent skip
Skiptapi fyrir hafi týnzt, er það
Vestfjörðum. var á leið frá
Bíldudal með salt
farm til ísafjarðar. Rekduflum
er kennt um.
Látinn maður hefur fundizt á
bjarghring. Annar bjarghringur
hefur fundizt með nafni skipsins.
Við hann var fest karbitbox. Var
það svart og sótað og ljós aug-
sjáanlega verið látið loga á kar-
bítnum. Er því álitið, að maður
hafi verið í bjarghringnum
og hafi hann losað sig úr honum,
er hann sá, að einskis var að
bíða. Rétt hjá þessum hring var
sundurtættur þilfarsplanki, Á
skipinu voru tveir Islendingar.
Annar þeirra var Sigurður Odds-
son, gamall skipstjóri og hafn-
sögumaður.
Það virðist einsætt, að á eyð-
ingu rekduflanna beri að leggja
mikið kapp, hvort sem þau velkj-
ast um úti fyrir ströndum lands-
ins eða berast upp í flæðarmálið.
Til stjórnarvaldanna verður að
gera þá kröfu, að þessi mál séu
tekin föstum og ákveðnum tök-
um. t.
er miðstöð verðbréfaviðskiptanna.
Sími 1710.
Hárdukur
fyfírli$$jandí
TVær gcrdír
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON&CO.
Ausfurstraefí 14 — Reykjavífc
Sími 5904
Tlikynnlng
ffl bífreíðaeígenda
Hér með er lagt fyrir alla eigendur fólksflutn-
ingsbifreiða hér í umdæminu og ennfremur eig-
endur vörubifreiða, sem hafa föst sæti fyrir 6 eða
fleiri farþega, að sækja á lögregluvarðstofuna,
Pósthússtræti 3, fyrir 8. þ. m. prentuð fyrirmæli,
sem fest skulu á nefndar bifreiðar nú þegar og
koma til framkvæmda, ef auglýstur verður
skyndibrottflutningur úr bænum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 1. maí 1 942.
Agnar Kofoed-Hanscn
Ráðningarstofa
landbánaðarins
tekur til starfa þriðjudaginn 28. þ. m. og verður opin fyrst um
sinn kl. 9—12 f. h. og 12%—6 e. h. í húsi Búnaðarfélags Is-
lands, Lækjargötu 14 B, sími 2718. —
VERKAFÓLK, konur, karlar og uuglingar, sem vilja vinna
ao landbúnaðarstöríum, ættu að snúa sér tíl skrifstofunnar sem
allra fyrst.
RÁÐNIN G ARSTOF A LANDBCNAÐARINS.
Smásðluverð
á neftóbaki frá tóbaksgerð vorri má eigi vera hærra en hér segir:
í Reykjavík Annars staðar
og Hafnarfirði á landinu
Skorið neftóbak 40 gramma blikkdósin ... Kr. 1,94 Kr. 2,00
——» 60 2,91 — 3,00
100 — glerkrukkan 3,00 — 5,15
200 -— .... 9,40 — 9,70
1000 — blikkdósin — 43,20 — 44,50
Óskorið — 300 — — ... — 20,70 — 21,35 Tóbakseínkasala ríkísíns
\