Þjóðólfur

Tölublað

Þjóðólfur - 18.09.1942, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 18.09.1942, Blaðsíða 4
NðB’OIFll Föstudagurinn 18. sept. 1942. Framboð landslista Landslistar, sem eiga að vera í kjöri við alþingiskosningar þær, sem fram eiga að fara 18. og 19. október þ. á., skulu til- kynntir landskjörstjóm eigi síðar en 27 dögum fyrir kjördag eða fyrir kl. 24 sunnudag 20. þ.m. Fyrir hönd landskjörstjórnar veitir ritari hennar, Þorsteinn Þorsteinsson hagstofustjóri, listunum viðtöku í skrifstofutíma Hagstofunnar, en auk þess verður lands- kjörstjómin stödd í Alþingishúsinu sunnudag 20. þ. m. kl. 21—24 til þess að taka á móti listum, sem þá kynnu að berast. Landskjörstjórnin 16. september 1942. Magnús Sigurðsson. Einar B. Guðmundsson. Ragnar Ólafsson. Vilm. Jónsson. Þorst. Þorsteinsson. Auglýsíng um kennslu og eínkaskóla Berklavarnalögin mæla þannig fyrir samkvæmt 9. gr. þeirra: „Enginn, sem hefur smitandi berklaveiki, má fást við kennslu í skólum, heimiliskennslu né einkakennslu. Engan nemanda með smitandi berklaveiki má taka í skóla, til kennslu á heimili eða til einkakennslu. Engan nemanda má taka til kennslu á heimili, þar sem sjúklingur með smitandi berklaveiki dvelur.“ Allir þeir, sem stunda ætla kennslu á komandi hausti og vetri eru því beðnir um að senda tilskilin vottorð fyrir sig og nemendur sína, í skrifstofu mína hið allra fyrsta, og mega þau ekki vera eldri en mánaðargömul. Þá er ennfremur svo fyrirmælt í ofangreindum lögum: „Enginn má halda einkaskóla nema hann hafi til þess skriflegt leyfi lögreglustjóra og skal Það leyfi eigi veitt, nema héraðslæknir telji húsnæði og aðbúnað fullnægja heilbrigðis- kröfum, enda liggi tilskilin læknisvottorð um að hvorki kenn- ari eða aðrir á heimilinu né neinn nemandanna sé haldinn smit- andi berklaveiki.“ Þeir, sem hafa í hyggju að halda einkaskóla, eru áminntir um að senda umsóknir sínar til lögreglustjórans í Reykjavík hið allra fyrsta, ásamt tilskildum vottorðum. Það skal tekið fram, að þetta gildir einnig um þá einka- skóla, smáa sem stóra, er áður hafa starfað í bænum. Umsóknir um slíka einkaskóla utan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur, en innan takmarka læknishéraðsins, má senda í skrifstofu mína. Héraðslæknirinn í Reykjavík, 11. sept. 1942. MAGNÚS PÉTURSSON. T i I k y n n i n g Vegna 65% hækkunar á skemmtanaskatti, sem gengur í gildi 16. Þ. m., og annars aukins kostnaðar, hækkar verð á að- göngumiðum á kvikmyndasýningar og verður frá sama tíma sem hér .segir: BARNASÆTI kr. 1.00 ALMENN SÆTI kr. 2.00 BETRI SÆTI kr. 3.00 BALKONSÆTI kr. 3.50 STÚKUSÆTI SVALIR kr. 4.00 Reykjavík, 15. september 1942. Gamla Bíó- Nýja Bíó, Tjarnarbíó verður til ábyrgra manna um Rabbað um .rosafrétt' Framhald af t. síðu. tók. Það var ekki heiglum hent að setjast í sæti þess manns, eetm stofnað hafði flokkinn og stjórnað frá öndveröu. Menn bjuggust ekki við því, að Ólaf- ur Thors yrði neitt réttlátari eða málefnalegri en fyrirrenn- ari hans. En það var bót í máli, að hann var svo „fjandi klókur”. Nú hafa menn notið klókinda þessa manns æði lengi, og alltaf fer honum fram. Undir bæjarstjórnarkosning- ar í vetur var hann nógu klók- ur að berja fram gerðardóm- inn. Og nú undir kosningarn- ar skellir hann afuröahækk- uninni á. Menn eiga að kunna að meta svona hugulsemi. Flóttinn úr Sjálfstæðis- flokknum verður ekki stöðvað- ur. En það má reyna að stöðva flóttann frá sjálfstæð- isstefnunni. Þessa tilraun er ég að gera. Kommúnistarnir hafa skilið þetta betru en yf- ir-ritstjóm Morgunblaðsins. Þjóðviljinn segir: ,,... .skriðan frá íhaldinu verður ekki stöðvuð og upp- reisnin gegn Thorsaravaldinu ekki leidd í falskan farveg, hvaða ráöum, sem beitt verð- ur. Þeir fyrrverandi kjósendur íhaldsins, sem nú yfirgefa það í hrönnum, munu ekki láta blekkjast til að kasta at- kvæðum sínum á glæ með því að kjósa Þjóðólfslista, jafnvel þótt tjaldað verði nú öllu sem til er, til þess að stöðva strauminn til vinstri”. A.Ð er verið að „stöðva strauminn til „vinstri eins og Þjóðviljinn segir. Og Morg- unblaðið er svo gáfað, að það, telur mig andstæöing fyrir að reyna að stöðva þennan straum. Mér er vel kunnugt um upp- runa þessarar Morgunblaðs- klausu og vil fræða menn á því, að það er ekki rétt að kenna Valtý þetta. Hann varð að taka við þessu frá hærri stöðum. En við þá tvo menn, sem senda mér þessa vinar- kveðju, vil ég segja: Eg kemst fljótt að því, hvort þið álítið mig andstæðing eða ekki. Ef þið teljið mig andstæðing, líð- ur ekki á löngu, þangað til þið reynið að vingast við mig. Því ykkar náttúra er sú að elska óvini ykkar, hvað sem vinunum líður. Formaður Framsóknarflokksins er ykkar ástmögur og átrúnaðargoð. Þið ættuð að vera svo „klók- ir” að biðja mig ekki að svipta af ykkur grímunni! • Það eru engar ,,rosafréttir”, þótt ég segði mig úr Sjálf- stæðisflokknum og gengi í Þjóðveldisflokkinn. Það eru ekki öllu meiri tíðindi en það að segja sig úr þjóðkirkjunni og ganga i fríkirkju. Menn eru jafn kristnir eftir sem áður. Og hvaö sagði ekki Hermann þegar „frjálslyndi söfnuðru- nn“ var stofnaður: „ég tel það bara vott um aukinn trú- aráhuga”! Á. J. er mlðstöð verðbréfavið- skiptanna. — Sími 1710. Údýrar bækur Ýmsar bækur til fróðleiks cg skemmtunar. Talsvert úrval af skáldsögum. Bökabúðin Klapparstíg 17 (milli Hverfisg. og Lindarg.) Við skrifborðshornið Framhald af 2. síðu Eg mun væntanlega í áfram- haldandi köflum mínum hér við skrifborðhornið hugleiða það, hversu mjög síðustu atburðir og öfug þróun í íslenzkum stjórn- arháttum og stjórnmálalífi falla fjarri þeim kröfum, sem gera skilning á þessari þjónustu við skyldur framtíðarinnar og þarf- ir. Kennir margra grasa í Þeim urtagarði sem skylt er að lesa og skilgreina til glöggvunar um vaxandi ófarnað okkar og varn- aðar hverjum þeim manni sem er ant um málstað lífsins og gæða — farnaðar Islendinga á komandi árum. X. Bókaskrá Bókaútgáfu Guðjóns Ó. Guðjónssonar, Reykjavík ÍSLENZKIR HÖFUNDAR: Jón Trausti: Ritsafn I — H — III Dr. Helgi Péturss: Ennnýall ----- Framnýall ----- Viðnýall Sigurgeir Einarsson: Norður um höf Jónas Guðmundsson: Sdga og dulspeki (bók, sem segir yður hvernig stríðið fer) Ólafur við Faxafen: Upphaf Aradætra ------ Norðanveðrið Náttúrufræðingurinn frá byrjun, I—X árg. ÚTLENDIR HÖFÚNDAR: Spánskar smásögur. Urvalið úr spönskum bókmennt- um,þýtt af Þórh. Þorgilssyni. Við, sem vinnum eldhússtörfin, eftir Sigrid Boo. Englarnir, bók sjúkra og sorgmæddra. SKÁLDSÖGUR: Charles Gorvaese: Veronika Baroness Orcsy: Eiðurinn ----- Rauða akurliljan ----- Litli píslarvotturinn Niels Nielssen: Fólkið á Mýri M. Pedler: Dansmærin Anne Marre Selvike: Öfríða stúlkan. BARNABÆKUR: Börnin skrifa, bók, eingöngu skrifuð af börnum Samtöl eftir Hallgrím Jónsson skólastjóra mjög heppileg bók til kennslu í skólum. Mjaðveig Mánadóttir , Úr þjóðsögum Jóns Árna- Grámann I sonar með teikningum Hans Karlsson [ eftir ísl. listamenn Allar ofanritaðar bækur fást hjá bóksala yðar, bundnar yða óbundnar eða beint frá útgáfunni Bókaútg. Guðjón Ó. Guðjónsson. Reykjavík. Kjörskrá til alþingiskosniga í Reykjavík er gildir fyr- ir tímabilið 23. júní 1942 til 22. júní 1943, liggur frammi almenningi til sýnis í skrif- stofu bæjarins, Austustræti 16, frá degin- um á morgun til 26. þ. m. að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga frá kl. 9 f. h. til 6 e. h. v* Kærur yfir kjörskránni skulu komar til borgarstjóra eigi síðar en 26. þessa mán- 1 aðar. , Borgarstjórinn í Reykjavík 13. sept. 1942. BJARNI BENEDIKTSSON.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.