Þjóðólfur - 23.11.1942, Qupperneq 4
ÞítDIIFUR
Mánudaginn 23. nóv. 1942.
SKÝRSLA um Landspítalann fyrir árið 1941 er nýlega komin
út. Er þar að finna margháttaðan fróðleik um starfsemi
spítalans. — Hér fara á eftir nokkrar niðurstöður skýrslunnar.
Útvíræð nauðsyn
Framhald af 1. síðu.
embættisfærslu borgarstjórans
í Reykjavík er fullns^gt með
núverandi skipun embættis-
ins. Því er ráðstafað með al-
geru tilliti til flokkshagsmuna.
I embættið geta ekki valizt,
samkvæmt eðli hinnar pólitísku
baráttu hér á landi, aðrir en
þeir, sem fyrst og fremst er
trúað til að ganga manna öt-
ullegast fram í því að verja
flokkshagsmuni. Um aöra
hæfileika borgarstjóraeínisins
verður óhjákvæmiiega lítt
spurt. Slíkum borgarstjóra
eru önnur efni hugstæðari en
embættisstarfið. . .Hjaðninga-
víg hinnar pólitísku baráttu
ciga ríkari ítök í honum. Em-
bættið hlýtur að verða van-
rækt. Umhverfis það logar ó-
friðareldur hinnar pólitísku
baráttu. Borgarstjórinn mætir
óvild, tortryggni og vantrausti
hjá öllum öðrum cn sínum
eigin flokksmönnum.
* * *
Hér í blaðinu hefur verið
kvatt til hljóðs fyrir ákveð-
inni skipulagsbreytingu á
borgarstjóraembættinu í höf-
uðstað landsins. Nýmælin eru
í höfuðatriðum þessi: Að em-
bættið verði dregið út úr eldi
hins pólitíska ófriðar í land-
inu, að borgarstjóranum sé
beinlínis gert að skyldu sam-
kvæmt erindisbréfi hans að
vera afskiptalaus í stjórnmála-
deilum, að hann eigi ekki
sæti á þingi né fari með
flokksumboð í bæjarstjórn.
Með þessu á því að vera sleg-
ið föstu, að illdeilur stjórn-
málaflokkanna séu ekki í
verkahring borgarstjórans í
Reykjavík. Mætti ætla, að
brátt yrði það viðurkenndur
og ófrávíkjanlegur háttur um
borgastjóraembættið í Rvík að
skipa það hlutlausum, eið-
svörnum embættismönnum.
sem væru fullkomlega hæfir
til að fara með trúnað allra
borgaranna og hefðu óskorað
traust umbjóðenda sinna.
V J
Þrfátíu ár
Framhald af 1. síðu.
halda, og var einn ai: stofnendum
stúkunnar, ásamt frú sinni, Hinir
voru Jón Aðife prófessor, Henri-
ette Kær, yfirhjúkrunarkona við
Laugarnesspítala, Georgia Bjöms-
son ríkisstjórafrú, Sig. Kristófer
Pétursson rithöfundur og Þorkell
Þorláksson fyrrverandi stjómar-
ráðsritari. Bæði þessum mönnum
og ö&rum, er hér hafa bezt að
verki verið, munu allir góðir Guð-
spekinemar og þeir, er hlynntir
eru guðspekilegum fræðum á ís-
landi, senda þakkir og hlýjar
hugsanir á þessum tímamótum í
sögu stúkunnar og árna henni
allra heilla í framtíðinni
Síðastliðið þriðjudagskvöld
Lyflæknisdcildin. Yfirlæknir er
próf. Jón Hj. Sigurðsson. Á árinu
lágu alls 550 sjúklingar á deildinni.
Heim fóru 465, en 34 dóu, og er sér-
stök greinagerð um þá.
í skýrslunni eru sjúklingarnir
flokkaðir eftir sjúkdómum í öndun-
arfærum, hjarta-, æða- og efna-
skiptasjúkdómum, blóðsjúkdómum
og næmum sjúkdómum, kvillum i
meltingarfærum, þvagfæra- og tauga
sjúkdómum og sjúkdómum í beinum
og líðamótum.
Lyflækningsdeildin eignaðist ný
tæki til efnaskiptarannsókna 'og til
þess að gera rafmagnsrit af hjart.
anu.
*
Húð- og kynsjúkdómadeildin. Alls
lágu 114 sjúklingar á deildinni: 71
vegna kynsjúkdóma (21 útlending-
ur), 32 vegna húðsjúkdóma, en 11
vegna annara kvilla.
*
Ilandlæknisdeildin. Yfirlæknir er
próf. Guðm. Thoroddsen. í deildinni
eru venjulega 54—60 sjúklingar. Á
árinu komu 601 sjúkl., en 570 íóru
og 31 dóu. — Aðgerðir á skurðstofu
voru 489.
Við aðgerðir deildarsjúklinga voru
svæfingar notaðar 237 sinnum, en
202 sinnum voru aðgerðirnar gerðar
í deyfingu, eftir mænustungu eða
í staðdeyfingu.
103 sjúklingar voru lagðir inn
vegna slysa, langflestir vegna bein-
brota og heilahristings. 4 af þessum
slysum leiddu til dauða.
Á skurðstofunni var gert að 1285
slysum, auk þeirra, sem lagðir voru
í spítalann vegna slysfaranna.
46 sjúkl. höfðu illkynjaðar mein-
semdir, krabbamein eða sarkmein.
Af þeim dóu 10 og er það um þriðj-
ungur þeirra, sem dó,u í deildinni.
3 sjúklingar lágu vegna sullaveiki.
*
Fæðingadeildin. Yfirlæknir er
próf. Guðm. Thoroddsen. Á deildina
komu 525 fæðandi konur. Af þeim
fæddu 220 í fyrsta sinn. Fjölgunin
var 535 börn, 263 drengir, en 272
stúlkur. Tvíburar fæddust 11 sinn-
um.
Af mæðrunum voru 36 undir
tvítugsaldri, 315 á 3. og 151 á 4.
áratugnum. 23 voru yfir fertugt,
104 konum varð að vísa frá vegna
rúmleysis.
3 konur dóu á árinu, allar vegna
meðgöngueitrunar. — 497 konur
voru svæfðar. — Keisaraskurður
var gerður einu sinni, og lifði móðir
og barn.
*
Röntgeudcildin. Yfiriæknir er dr.
med. Gunnl. Claessen. Deildarinnar
leituðu 5180 sjúklingar.
Röntgenskoðanir voru 6361 og er
sundurliðuð skrá um algengustu
sjúkdóma, sem fundust, m. a. voru
athugaðir 323 beinbrotnir menn. Til
röntgenlækninga voru 293 sjúkl.,
aðallega vegna húðsjúkdóma, mein-
semda og kvensjúkdóma, en 399
voru í ljósböðum. Geitur í höfðinu
höfðu 8 sjúkl. Fimm þeirra voru
minntist stúkan afmælis síns í
húsi Guðspekifélagsins. Bárust
henni heillaóskaskeyti frá Akur-
eyri og Siglufirði og var afmælis-
fagnaðurinn allur hinn ánægjuleg-
asti.
Gretar Fells.
fullorðnir og höfðu aldrei leitað sér
lækninga áður. Þeir voru allir lækn-
aðri með röntgengeislum.
*
Radiumlækningar voru notaðar
yið 40 sjúklinga.
*
Háls-, nef- og eyrnalæknir spital-
: ans, Ól. Þorsteinsson, sinnti um allt
á Landspitalanum viðkomandi sinni
sérfræðigrein, og gerði m. a. 60 að-
j gerðir.
i
! Augnlæknirinn, Kristján Sveins-
son, athugaði augu og sjón eftir ósk-
um ýfirlæknanna, og gerði 20 augn-
; aðgerðir.
*
Kannsóknir banameina annaðist
próf. N. Dungal á Rannsóknastofu
Háskólans, sem stendur á lóð spítal-
ans, og voru gerðar þar 67 krufning-
ar fyrir Landspítalann. En alls voru
krufin þar 115 lík, sumpart frá öðr-
um sjúkrahúsum, sumpart frá lög-
reglunni.
*
Hjúkrunarnámið. Sú mikla umbót
varð á starfsliði Hjúkrunarkvenna-
skólans, að ráðin var sérstök kennslu
hjúkrunarkona, ungfrú Sigríður
Bachmann, og annast hún m. a. um
forskóla fyrir þá nema, sem sækja
um inntöku í skólann. Ýmsir af lækn
unum annast bóklega kennslu. í maí-
mánuði útskrifuðust 11 útlærðar
hjúkrunarkonur eftir 3 ára nám.
*
Úr Ljósmæðraskólanum útskrifuð-
ust 11 ljósmæður eftir eins árs nám.
*
í ársskýrslunni er skrá um 6 rit
og ritgerðir eftir lækna spítalans, m.
a. eitt doktorsrit eftir dr. Gísla Fr.
Petersen við Röngendeildina.
*
Um vetrarmisserið halda spítala-
læknamir mánaðarlega fundi til um-
ræðu á ýmsum læknisfræðilegum
efnum — svonefnd læknakveld — og
taka fyrrverandi aðstoðarlæknar
þátt í þeim samkomum. í skýrslunni
er gerð grein fyrir þeim verkefnum,
sem voru á dagskrá.
*
í Landspítalanum er svonefnd gisti
vist handa héraðslæknum, sem óska
að dvelja þar um tíma til þess að
kynna sér nýjungar í lækningum. Á
árinu 1941 var gistivistin sótt af
tveim héraðslæknum. Hvor þeirra
dvaldi þar í nokkrar vikur.
'Helgafell,
septemberheftið er nýlega kom-
; íj út. Hefur útgáfa þess dregizt
ailverulega vegna anna í prent-
I smiðjuimi og varð það því miklu
siðbúnara en ætlað var.
í þessu hefti er ekkert af veru-
lega rismiklu efni, nema þá helzt
| kvæði Arnulfs överlands, en
' margt er þar pryðilega ritað og
skemmtilegt aflestrar. — Sverrir
Kristjánsson ritar um vamir Ráð-
stjómarríkjanna, læsilega grein,
svo sem vænta mátti og þrungna
i af samúð — einnig að vonum.
Magnús Ásgeirsson þýðir kvæði
eftir Amulf Överland, Þú mátt
ekki sofa, og skilgreinir það með
orðunum ,,spámannlegur vamað-
aróður”. Kristmann Guðmundsson
segir frá bókasöfnun sinni og
bókaást, en Ihann hefur verið
mikill „safnari”. Kvæði birtir rit-
ið eftir Sigurjón Friðjónsson, lag-
lega ort, í tilefni af sjötíu og
fimm ára afmæli hans, stutta
sögu eftir Jón óskar og hugleið-
ingar eftir Jóhann lækni Sæ-
mundsson, sem nefnist Heilsufar
og hindurvitni. — í bókmennta-
dálki ritsins birtist grein eftir dr.
Símon Jóh. Ágústsson um bóká-
útgáfu Menningarsjóðs. Er það
hóflega rituð og rökstudd ádeila
á bókaútgáfu Menntamálaráðs. I
Jok greinarinnar er hreyft nokkr-
um tillögum til umbóta á útgáfu-
starfsemi ráðsins. Greinin er á-
I reitnislaus með öllu og líklegt,
' að ýmislegt af þvi, sem þar er
sagt, verði tekið til greina, enda
virðist það byggt á ömggum
rökum og fullkominni sanngimi.
— Enn em í þessu hefti Helga-
fells Iættara hjal og Bréf frá
lesendum. Bréf Helga Hjörvar.
Eru Passíusálmarnir ortir á hol-
lenzku ? og bréf Gylfa Þ. Gísla-
sonar, Ritfrelsið undir ráðstjórn.
munu einkum vera líkleg til að
vekja athygli.
Þrjú síðustu hefti Helgafells,
þ. e. a. s. október-, nóvember- og
desemberhefti, munu koma út í
einu lagi fyrir jólin.
V. J.
Leiðrétting.
í grein Gretar Fells í síðasta blaði
hafa á einum stað fallið úr nokkur
orð. Setningin, sem um er að ræða,
á að vera á þessa leið: „Hér er og
verið að benda í áttina til þess sann-
leika, að það er ekki unnt að vera
verulega góður og nýtur þjóðfélags-'
þegn eða borgari síns eigin lands
nema vcra um leið alheiin.sborgari,
alveg eins og það er heldur ekki
hægt að vera góður alheimsborgari
án þess að vera góður sonur sinnar
eigin þjóðar."
Ný sendtntf er komín af
Amerfskar og enskar gertir f mðrgum litum
^ökaupíélaqid
V efnaðarvörudeild.
> A érAtti lik,fr ,fr ,f, Ár-é, A ,^-,4, ArA AA A
Barnabækur
H.f. Leíffurs:
j
Alfinnur álfakóngur.
Æfintýri með 120 myndum.
Kr. 2,50 ib.
Blómálfabókin.
Falleg litmyndabók handa yngstu
lesendunum. Freysteinn Gunnars-
son íslenzkaði textann. Kr. 6,00.
Búri bragðarefur.
Með 32 myndum eftir Walt
Disney. Kr. 2,00.
Dísin bjarta
og blökkustúlkan.
Æfintýri með myndum. Kr. 2,00
Dæmisögur Esóps.
I. hefti, þýðing Stgr. Thorsteinss.
Með myndum. Kr. 8,00 ib.
II. hefti, þýðing Freysteins Gunn-
arssonar. Með 65 myndum.
Kr. 10 ib.
Ford,
drengurinn, sem varð bílakóngur,
Freysteinn Gunnarsson þýddi.
Kr. 3,75.
Grims æfintýri
i 5 heftum. Theódór Árnason
þýddi. Með fjölda mynda.
Kr. 3,00 hvert hefti ib.
Hans og Gréta.
Æfintýri með lrtmyndum.
Kr. 3,50 ib.
Hrói höttur.
Ný þýðing eftir Freystein Gunn-
arsson. Með myndum. Kr. 10,00 ib.
Kóngurinn í Gullá.
Æfintýri efttr John Ruskin. Þýð-
ing Einars H. Kvarans.
Með myndum. Kr. 6,50 ib
Kötturinn, sem fór
sinna eigin ferða.
Æfintýri eftir Kipling. Með mynd-
um. Kr. 2,50 ib.
Leggur og skel.
Æfintýri eftir Jónas HaLlgrímsson.
Með skreytingum eftir frú Bar-
böru W. Árnason. Kr. 2,50.
Litla drottningin.
Sænsk barnasaga með myndum.
Kr. 2,50 ib.
Mjallhvít.
Æfintýri með mörgum myndum.
Kr. 2,50.
Margt býr í sjónum.
Frásagnir um íbúa hafsins eftir
Árna Friðriksson. Með myndum.
Kr. 3,50 ib.
Mikki Mús og Mína
lenda í æfintýrum.
Með 150 myndum.
Nasreddin.
Tyrkneskar kímnisögur. Þorst.
Gíslason íslenzkaði. Með mynd-
um. Kr. 6,50 ib.
Rauðhetta.
Æfintýri með mörgum litmynd-
um kr. 4,00.
Tarzan sterki,
eftir E. R. Burrough, með 384
myndum. Hersteinn Pálsson ís-
lenzkaði. Kemur fyrir jól.
Tóta.
Saga um litla stúlku. Hersteinn
Pálsson þýddi. Kr. 10,00 ib.
Tritill.
Æfintýri með myndum. Kr. 2,00.
Um sumarkvöld.
Bamasögur eftir Ólaf Jóh. Sig-
urðsson. Með myndum.
Kr. 4,50 ib.
Þymirós.
Æfintýri með myndum. Kr. 3,00.
Ösknbuska.
Æfintýri með myndum. Kr. 3,00.
Af eldri bókunum er lítið óselt.
Notið tækifærið og kaupið ódýru
bækurnar meðan þær fást.
H. f. Leiftur.