Þjóðólfur


Þjóðólfur - 22.03.1943, Side 4

Þjóðólfur - 22.03.1943, Side 4
ÞJÖÐÖLFUE Tryggingarbanki atvinnuveganna Framhald af 1. síðu. vinnuleysinu, hvað kaup á nauð- synjavöru hafa dregizt mikið saman nú upp á síðkastið, vegna þess að tiltölulega lítill hópur manna hefur misst atvinnu. Heimilisfeður launastéttanna, einkum þeir, sem ekki hafa fasta atvinnu, eru teknir að spara við sig. Það er ekki atvinnu- eða fé- leysi, sem er orsök þeirrar lægð- ar, er nú verður vart í viðskipta- lífinu, heldur óttinn við atvinnu- leysi. Sami óttinn hefur líka birzt í annarri og ólíkri mynd: hóflausri kaupgirni. En hvort- tveggja þetta sýnir, að atvinnan er í augum margra eins og hval- ur, sem rekið hefur á fjörur, en getur tekið út aftur með fyrsta stórstreymi. V. Allir vita, að verðmæti skapast ekki nema fyrir framleiðslu. Þjóð félagið getur aldrei tapað á því, að þegnarnir vinni, né grætt á því, að þeir sitji auðum höndum. Um þetta verður ekki deilt. Deilan getur snúizt um það eitt í hvaða atvinnurekstur hagnýta eigi vinnuaflið. íslenzki fiskiflotinn hefur fært þjóðinni mestan hlutann af tekjum hennar. Hann hefur beint og óbeint staðið undir flestum framkvæmdum til lands og sjávar. Fiskveiðarnar eru eini at- vinnuvegurinn okkar, sem öruggt má telja, að staðizt geti samkeppni annarra þjóða. Við verðum því að trygg'ja framtíð okkar á fiskveiðum öllu öðru fremur. Þegar lagt er til að komið verði upp tryggingar- banka atvinnuveganna, er vitan- lega ætlazt til að vinnuaflinu verði aðeins veitt í arðbæran at- vinnurekstur, og þá fyrst og fremst fiskveiðar, VI. Ef sendisveinn í búð verður fyrir því slysi að brjóta reiðhjól- ið sitt, lætur húsbóndinn hann tafarlaust hafa annað reiðhjól, svo engin stöðvun verði á at- vinnurekstrinum. En ef togari þarf að fara í slipp er skipshöfnin afskráð og fjöldi heimila á það á hættu að fyrirvinnan verði atvinnulaus mánuðum saman, jafnvel heil misseri. Er nokkurt vit í þessu? Er ekki auðsætt að þjóðfélaginu ber að leggja höfuð-áherzlu á það, að sú atvinnugreinin, sem stendur traustast undir tilveru þess, þurfi aldrei að stöðvast. Eða — svo annað dæmi sé nefnt. Það kemur fyrir á hverju ári um síldveiðitímann, að stöðva verður veiðar, þegar aflinn er mestur. Er hægt að hugsa sér meiri andhælishátt? Skipin eru kannske að leita viku eftir viku og afla ekki fyrir kostnaði. Svo loks þegar hleypur á snærið er til að vinna gullið úr hráefnun- um. Þetta, sem hér hefur verið sagt, er augljóst mál og alviður- kennt. Öllum er ljós þörfin á um- bótum. En við höfum haft gilda afsökun: fjárskortinn. Við verðum að treysta því, að ekki verði svo hörmulega á mál- um haldið, að við þurfum að bera fyrir okkur gjaldeyrisskort í náinni framtíð. íslenzku bönkunum berst nú svo mikið fé, að þeir eru hætt- ir að skila vöxtum. Þegar verð- bólgan hjaðnar svo um muni, má gera ráð fyrir, að f járstraum- urinn <til bankanna aukist um tugi milljóna, jafnframt því, sem lánsfjárþörfin fer ef til vill minnkandi. Hvað er nú eðlilegra en að minnsta kosti einhverj- um hluta þessa fjár verði varið til kaupa á nýjum skipum og öðrum arðbœrum og óhjákvœmilegum fram- leiðslutækjum? Hvað er verra að selja lands- mönnum ný skip með sæmileg- um kjörum en erlendan gjald- eyri? Hversvegna ætti að vera á- hættumeira fyrir bankann að einstaklingum eða hópum manna skip en lána þeim fé í vafasöm fyrirtæki eða til eyðslu? Hversvegna má bankinn ekki alveg eins liggja með nokkur góð fiskiskip og vaxtalaust fé í erlendum bönkum? VII. Vegna illinda og sundur- þykkju í stjórnmálalífinu hefur verið svikizt um þá skyldu að tryggja framtíðina. Núverandi stjórn er að hefjast handa í þess- um efnum, og hafi hún fyllstu þökk fyrir. En það er eitt dæm- ið enn um þegnskap Alþingis og þjóðhollustu, að nú er róið að því á bæði borð að losa þjóðina við þessa forustu. Andvaraleysi og skammsýni valdhafanna á síðastliðnu ári kemur meðal annars fram í því, hvernig gjaldeyrinum var varið. Það er flutt til landsins alger- lega fánýtt skran fyrir marga tugi milljóna. Samtímis því sem aðrar ríkisstjórnir leggja fast að girni fólksins á allskonar rusl. Þjóðin hefur fengið steina fyrir brauð, án þess að hugleiða, að hún var kannske að sólunda andvirði 10 síldarverksmiðja, eða 20 togara eða 100 smærri veiðiskipa. Samtímis því sem gengdar- leysið og glerkýrnar hafa oi'ðið þau tákn íslenzkrar nýmenn- ingar, sem mest stinga í augun, hefur íslenzki flotinn mink- að um 3000 smálestir. Það er kominn tími til að sjá að sér. Okkur vantar skip og sí ldarver ksmiðj ur, ] ýsisherzlu- stöðvar, áburðarvei’ksmiðjur og ótal, ótal margt fleira. Við höf- um aldrei í okkar sögu haft eins góð skilyrði og nú til að bæta úr brýnum þörfum. Við verðum að hætta að kaupa steina fyrir brauð. Við þurfum að einbeita hugan- um að því að tryggja framtíð- ina framtíð frjáls menningar- lífs í einu minnsta og afskekkt- asta þjóðfélagi jarðarinnar. Við eigum að setja okkur það mark, að vera fyrsta þjóðin, sem bylt- ingarlaust vísar á dyr fyrir fullt og allt þeim vágesti, sem öll- um þjóðum er hvimleiðastur og hættulegastur: atvinnuleysinu. Hér hefur lauslega og í stuttu máli verið bent á eina leið að því marki, tryggingarbanka at- vinnuveganna, fyrst og fremst þess atvinnuvegar, sem mest veltur á um framtíð þjóðarinnar, afkomu og menningu alla. ---- ♦;»♦> lf>^>«^>«^.>4*4«*»4*««*44*4«*»4*»4^ »*«^44*44**4*4»’« Hríngíð í síma 2923 og gcrizt áskríf* cndur ad Þfóðólfi Grænmetisfræið er komið Gulrætur — salt — næpur — spínat — græn kál — blómkál — gulrófur. Afgreiðum ekki minna en I 00 grömm. GRÆNMETISVERZLUN RÍKISINS TILKYNNING frá skrifstofu leigumáladeildar Bandaríkjahersins. Bandaríkj aherinn mun hafa fulltrúa í Hafnarstræti 21 Reykjavík, til aðstoðar islendingum í málum, sem lúta að ieigu á fasteignum til Bandaríkjahcrsins. Kemur þetta til framkvæmda mánudaginn 15. marz 1943, og verður síðan alla virka daga frá kl. 9 til 16. Símanúmerið er 5937. allt „stopp“ af því ekki eru nein varaframleiðslutæki fyrir hendi þegnum sínum að velta hverj- um eyri í lófa sér, eru lúðrar þeyttir á íslandi til að æsa kaup- TILKYNNING frá ríkísstjórnínní I Brezka sjóliðið hefur ákveðið að breyta áður auglýstum ’ bannsvæðum á Seyðisfirði og Eyjafirði, sem hér segir: Seyðisfjörður: Eftirfarandi bannsvæði eru afnumin: JBannsvæði (b), auglýst í Lögbirtingablaði nr. 71, hinn 27. des- ember 1940, Bannsvæði auglýst í Lögbirtingablaði nr. 16, hinn 14. apríl 1942, Bannsvæði auglýst 1 Lögbirtingablaði nr. 52, hinn 25. september 1942. , í stað þessara svæða kemur nýtt svæði, þar sem bannaðar i eru veiðar og akkerislegur skipa, og afmarkast það á eftirfar- andi hátt: a. Austurtakmörk: Bein lína dregin 7,25 sjómílur í 351° stefnu frá Dalatangavita, og bein lína frá þeim stað í 270° stefnu í skerið við Álftanes (sömu austurtakmörk og á bannsvæði auglýsingar 14. apríl 1942). b. Vesturtakmörk: Bein lína dregin yfir fjörðinn í 327“ stefnu frá stað, sem er 3,02 sjómílur í 247° stefnu frá Brimnesvita. Eyjafjörður: Bannsvæði það, sem auglýst er í Lögbirt- ingablaðinu nr. 71, hinn 27. desember 1940 stækkar þannig, að norðurtakmörk þess færast 1,5 sjómílur til norðurs. í tilkynningu ríkisstjórnarinnar frá 10. ágúst 1942, sem birt er í 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins frá 14. s. m., breytast ákvæði 1. töluliðs a, b og b og 2. töluliðs III. kafla samkvæmt framansögðu. Uppdrættir af bannsvæðunum á Seyðisfirði og Eyjafirði verða birtir í Lögbirtingablaðinu nr. 13, hinn 12. marz 1943. i Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 9. marz 1943. FLIK-FLAK ER BEZT Hið fljótvirka FLIK-FLAK sápu- löður leysir og fjarlægir öll ó- hreinindi á stuttri stundu. Fínasta silki og óhreinustu verka- mannaföt. — FLIK-FLAK þvær allt með sama góða árangri. Látið FLIK-FLAK þvo fyrir yður. PLII F/ik-. F/ak FLÁK

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.