Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1988, Blaðsíða 10
Hvert hafa ræðarar
róið?
Kristín Jónsdóttir.
Eftir að félagsleg framkvæmdaáætlun Ör-
yrkjabandalags íslands og Landssamtak-
anna Þroskahjálpar hafði verið kynnt á
sameiginlegum fundi samtakanna á Hótel
Sögu í haust og landsfundir beggja samtak-
anna höfðu samþykkt ályktunina, var haf-
ist handa við undirbúning að framkvæmd
hennar.
Skömmu fyrir áramótin var skipað í
ræðarahópinn og hófu ræðarar þegar
undirbúning. þeir fengu það nesti að
byggja starf sitt á áætluninni og hefja
róðurinn af fullum krafti. Það gerðu þeir
og héldu 15 vinnufundi í iotunni þar sem
byrjað var á að útfæra ýmsa þætti fram-
kvæmdaáætlunarinnar. Þessi fyrstu áratog
liggja nú fyrir og þriðjudaginn 14.mars
kom stýrimaðurinn um borð, Helgi
Hróðmarsson, 27 ára gamall viðskipta-
fræðingur sem kom um borð í því sögulega
hlutverki að vera fyrsti starfsmaður sem
ÖBÍ og ÞH ráða sameiginlega.
I þeim fyrstu áratogum sem ræðarar
hafa tekið eru mörg verkefni. Fyrsta verk-
efnið sem stýrimaður og ræðarar byrja að
vinna að er Vorblót. Þetta Vorblót verður
haldið 14. maí í íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi. Jafnhliða þessu og í framhaldi
verður svo haldið áfram og verkefnin
tekin fyrir eftir því sem orka leyfir. Vor-
blótið verður eins og blóm sem springur út
og þar koma íslendingar — allur almenn-
ingur — saman til að vera viðstaddir
upphaf ferðarinnar.
Á öðrum stað í blaðinu verður einnig
sagt frá undirbúningi Vorblótsins. Hér
verður hins vegar í örstuttu máli greint frá
þeim breytingum sem starf ræðara og stýri-
manns og framkvæmdaáætlunin hefur á
starf heildarsamtakanna.
Hér er raunverulega verið að gera tvo
hluti. Annars vegar hafa heildarsamtökin
náð saman í starfi og hins vegar byggir
framkvæmdaáætlunin á því að ræðarar og
stýrimaður snúi sér meira að mannlega og
félagslega þættinum. Auðvitað skarast
þetta og hver félagsleg aðgerð snertir
einnig hagsmunamálin. En með þessu er
orðin viss verkaskipting og sá möguleiki er
einnig fyrir hendi og verður nýttur, að öllu
aflinu verði beitt sameiginlega. Og
reynslan hefur sýnt það nú þegar að þegar
heildarsamtök fatlaðra beita sameigin-
legu afli þá stenst ekkert fyrir þeim.
Það er vor í loftinu og við erum að leggja
af stað í spennandi ferðalag. Þetta ferðalag
er farið út í þjóðfélagið. Við vonum að
eftir tvö ár sem hin félagslega fram-
kvæmdaáætlun spannar, verðum við nær
því takmarki að fatlaðir verði ekki á sér
básum í þjóðfélaginu, heldur eðlilegur
þáttur í þjóðlífinu.
F.h. ræðarahópsins,
Kristín Jónsdóttir.
Vorblótin
Nú hafa Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands sett á stofn Fé-
lagslega framkvæmdaáætlun samtakanna
beggja. „Ræðarar“ hafa verið skipaðir og
hafa þeir unnið ötullega frá síðusíu ára-
mótum við að hrinda í framkvæmd þeim
hugmyndum sem samþykktar hafa verið.
„Stýrimaður“ hefur einnig verið ráðinn og
hóf hann störf 22. mars síðastliðinn. Starf
„stýrimanns“ er meðal annars að hrinda í
framkvæmd málum sem „ræðarar" gera
tillögur um.
Ein af þeim hugmyndum sem settar hafa
verið fram og er nú orðin að veruleika er
svokallað VORBLÓT. Hér er átt við sam-
komu sem haldin verður 14. maí næst-
komandi í íþróttahúsinu við Digranes í
Kópavogi og vorblót á þrem öðrum stöð-
um á landinu: ísafirði, Akureyri og Egils-
stöðum á sama degi. Undirbúningur er í
fullum gangi nú þegar þetta er ritað.
Gott VORBLÓT á hverjum stað veltur
að miklu leyti á góðri þátttöku. Þess
vegna, lesandi góður, hvetjum við þig til
að mæta í góðu formi þann 14. maí.
Ræðarar og Stýrimaður.
Stýrimaður og hluti ræðara huga að vorblótshaldi.
10