Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2020, Síða 8

Víkurfréttir - 06.02.2020, Síða 8
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 6. febrúar 2020 // 6. tbl. // 41. árg. Honda Civic árg. 2018, ekinn 5 þús., sjálfskiptur Lækkað verð 2.490.000 kr. Verð áður 2.990.000 kr. Honda Jazz árg. 2017, ekinn 31 þús., sjálfskiptur Lækkað verð 1.590.000 kr. Verð áður 1.790.000 kr. Honda Jazz árg. 2018, ekinn 30 þús., sjálfskiptur Lækkað verð 1.790.000 kr. Verð áður 2.290.000 kr. Honda Civic árg 2017, ekinn 23 þús., beinskiptur Lækkað verð 1.990.000 kr. Verð áður 2.490.000 kr. Honda CRV árg. 2017, ekinn 62 þús., sjálfskiptur Lækkað verð 3.390.000 kr. Verð áður 3.790.000 kr. Peugout árg. 2016 ekinn 79 þús., beinskiptur Lækkað verð 890.000 kr. Verð áður 950.000 kr. við gamla aðalhliðið á Ásbrú Sími 421 5444 Vantar þig sendibíl? sendibillinn.is Alvöru útsala á Honda bílum Loksins alvöru vertíðarbragur Nú er að koma alvöru vertíðarbragur. Veiði hjá bátunum hefur verið að aukast og þessar endalausu brælur eru vonandi búnar. Í gegnum árin hefur eitt veiðarfæri ein- kennt vetrarvertíðir, net. Það var oft á tíðum mikill fjöldi netabáta sem réru frá Grindavík, Sandgerði og Keflavík. En núna, árið 2020, eru netabátarnir aðeins átta talsins og allir eru þeir að róa núna frá Sandgerði. Þetta er frekar ótrúleg tala, aðeins átta bátar, því við erum að tala um að netabátarnir voru allt að 100 talsins í þessum höfnum á árum áður. Þessir átta bátar hafa náð að fiska nokkuð vel þegar þeir loks komust á sjóinn. Bergvík GK var með 9,3 tonn í sjö róðrum í janúar. Erling KE með 88 tonn í þrettán róðrum og mest 19,7 tonn. Hann landaði í Njarðvík, Grinda- vík og Sandgerði, mestu landað í Sand- gerði. Grímsnes GK var með 80 tonn í átján róðrum í janúar og hefur nú þegar byrjað febrúar vel, kom með 12,2 tonn í land í Sandgerði. Maron GK með 37 tonn í ellefu róðrum í janúar og hefur núna í febrúar landað 8,8 tonnum í einni löndun, öllu í Sandgerði. Hraunsvík GK er eini netabáturinn frá Grindavík. Hún byrjaði veiðar í Grindavík og færði sig síðan yfir til Sandgerðis, var með 27 tonn í níu róðrum og byrjar febrúar á 2,1 tonn í einum róðri. Halldór Afi GK 24 tonn í ellefu í janúar og byrjar febrúar á 3,3 tonna löndun. Sunna Líf GK 21 tonn í sjö veiðiferðum og mest 6,9 tonn í einni veiðiferð í janúar. Til viðbótar þessu þá er elsti bátur landsins kominn á veiðar, Þorsteinn ÞH frá Raufarhöfn, sem Suðurnesjamenn þekkja mjög vel, sérstaklega Grindavíkingar því bátur- inn var lengi gerður út frá Grindavík og var þá Þorsteinn GK. Annað sem hefur eða hafði einkennt vertíðir á Suðurnesjum, og þá aðal- lega seinni árin í Grindavík og Sand- gerði, var loðnan. Síðar tók reyndar Helguvík við. Það voru loðnuverk- smiðjur í Grindavík og í Sandgerði en þær lokuðu báðar, þó á sitthvoran hátt. Verksmiðjan í Grindavík lokaði endanlega eftir gríðarlega mikinn eld sem kom í verksmiðjunni árið 2005 og var verksmiðjan aldrei endurreist. Verksmiðjan í Sandgerði var endur- byggð og stækkuð í 600 tonn á sólar- hring en Snæfell ehf. keypti síðan Njörð ehf. og við það komst verksmiðjan í eigu Snæfells ehf. Síldarvinnslan á Nes- kaupstað keypti síðan Snæfell ehf. og lokaði verksmiðjunni í Sandgerði, enda var þá Síldarvinnslan líka komin með verksmiðjuna í Helguvík. Árið 2003 var síðasta árið sem að loðna var brædd í Sandgerði. Árið 2002 voru brædd í Sandgerði 27 þúsund tonn af loðnu. Mjög margir bátar lönduðu loðnu t.d. í Sandgerði. Einn bátur landaði þó þar allramest og landaði loðnu alveg fram á þessa öld. Það var Dagfari ÞH, sem sést á mynd með pistlinum sem faðir minn, Reynir Sveinsson, tók. Reyndar er það nú þannig að þótt margir bátar hafi t.d. landað loðnu í Grindavík þá var enginn bátur þar með jafn langa sögu í að landa loðnu á Suðurnesjum og einmitt Dagfari ÞH. Báturinn landaði loðnu að mestu í Sandgerði og gerði það frá því árið 1968 og fram yfir aldamótin, eða í yfir 30 ár. Vonandi kemur sú sjón aftur að við fáum að sjá loðnubáta með fullfermi koma til hafnar á Suðurnesjum og er þá ekki verið að tala um þessi risastóru skip sem eru í dag, heldur báta sem eru minni eins og t.d. Dagfari ÞH eða GK var. Draumsýn sem kannski aldrei verður að veruleika. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Aðalfundur Skátafélagsins Heiðabúa fer fram miðvikudaginn 19. febrúar kl 19:30 í skátaheimilinu, Hringbraut 101. Kosið verður um stjórn félagsins, lagabreytingar afgreiddar, farið yfir árskýrslu og ársreikninga. Lausar eru stöður félagsforingja, gjaldkera, ritara, meðstjórnanda og varamanna. Einnig er óskað eftir tillögum um breytingar á lögum félagsins. Áhugasamir hafi samband við Katrínu í síma 844-6991 eða í tölvupósti á katrin.adalsteinsdottir@gmail.com Umsóknarfrestur um stöður í stjórn og tillögur að lagabreytingum er til sunnudagsins 10. febrúar nk. Við bjóðum öllum virkum skátum og forráðamönnum þeirra, sem og öllum áhugasömum um skátahreyfinguna, velkomin á fundinn. Með skátakveðju, stjórn Heiðabúa. AÐALFUNDUR KONUR OG HÚSASMÍÐAR FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.