Víkurfréttir - 06.02.2020, Qupperneq 8
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 6. febrúar 2020 // 6. tbl. // 41. árg.
Honda Civic
árg. 2018, ekinn 5 þús., sjálfskiptur
Lækkað verð 2.490.000 kr.
Verð áður 2.990.000 kr.
Honda Jazz
árg. 2017, ekinn 31 þús., sjálfskiptur
Lækkað verð 1.590.000 kr.
Verð áður 1.790.000 kr.
Honda Jazz
árg. 2018, ekinn 30 þús., sjálfskiptur
Lækkað verð 1.790.000 kr.
Verð áður 2.290.000 kr.
Honda Civic
árg 2017, ekinn 23 þús., beinskiptur
Lækkað verð 1.990.000 kr.
Verð áður 2.490.000 kr.
Honda CRV
árg. 2017, ekinn 62 þús., sjálfskiptur
Lækkað verð 3.390.000 kr.
Verð áður 3.790.000 kr.
Peugout
árg. 2016 ekinn 79 þús., beinskiptur
Lækkað verð 890.000 kr.
Verð áður 950.000 kr.
við gamla aðalhliðið á Ásbrú Sími 421 5444
Vantar þig sendibíl? sendibillinn.is
Alvöru útsala á Honda bílum
Loksins alvöru vertíðarbragur
Nú er að koma alvöru vertíðarbragur.
Veiði hjá bátunum hefur verið að
aukast og þessar endalausu brælur
eru vonandi búnar.
Í gegnum árin hefur eitt veiðarfæri ein-
kennt vetrarvertíðir, net. Það var oft á
tíðum mikill fjöldi netabáta sem réru
frá Grindavík, Sandgerði og Keflavík.
En núna, árið 2020, eru netabátarnir
aðeins átta talsins og allir eru þeir að
róa núna frá Sandgerði. Þetta er frekar
ótrúleg tala, aðeins átta bátar, því við
erum að tala um að netabátarnir voru
allt að 100 talsins í þessum höfnum á
árum áður.
Þessir átta bátar hafa náð að fiska
nokkuð vel þegar þeir loks komust á
sjóinn. Bergvík GK var með 9,3 tonn
í sjö róðrum í janúar. Erling KE með
88 tonn í þrettán róðrum og mest 19,7
tonn. Hann landaði í Njarðvík, Grinda-
vík og Sandgerði, mestu landað í Sand-
gerði. Grímsnes GK var með 80 tonn í
átján róðrum í janúar og hefur nú þegar
byrjað febrúar vel, kom með 12,2 tonn
í land í Sandgerði. Maron GK með 37
tonn í ellefu róðrum í janúar og hefur
núna í febrúar landað 8,8 tonnum í
einni löndun, öllu í Sandgerði.
Hraunsvík GK er eini netabáturinn
frá Grindavík. Hún byrjaði veiðar í
Grindavík og færði sig síðan yfir til
Sandgerðis, var með 27 tonn í níu
róðrum og byrjar febrúar á 2,1 tonn í
einum róðri. Halldór Afi GK 24 tonn
í ellefu í janúar og byrjar febrúar á 3,3
tonna löndun. Sunna Líf GK 21 tonn
í sjö veiðiferðum og mest 6,9 tonn í
einni veiðiferð í janúar. Til viðbótar
þessu þá er elsti bátur landsins kominn
á veiðar, Þorsteinn ÞH frá Raufarhöfn,
sem Suðurnesjamenn þekkja mjög vel,
sérstaklega Grindavíkingar því bátur-
inn var lengi gerður út frá Grindavík
og var þá Þorsteinn GK.
Annað sem hefur eða hafði einkennt
vertíðir á Suðurnesjum, og þá aðal-
lega seinni árin í Grindavík og Sand-
gerði, var loðnan. Síðar tók reyndar
Helguvík við. Það voru loðnuverk-
smiðjur í Grindavík og í Sandgerði
en þær lokuðu báðar, þó á sitthvoran
hátt. Verksmiðjan í Grindavík lokaði
endanlega eftir gríðarlega mikinn eld
sem kom í verksmiðjunni árið 2005
og var verksmiðjan aldrei endurreist.
Verksmiðjan í Sandgerði var endur-
byggð og stækkuð í 600 tonn á sólar-
hring en Snæfell ehf. keypti síðan Njörð
ehf. og við það komst verksmiðjan í
eigu Snæfells ehf. Síldarvinnslan á Nes-
kaupstað keypti síðan Snæfell ehf. og
lokaði verksmiðjunni í Sandgerði, enda
var þá Síldarvinnslan líka komin með
verksmiðjuna í Helguvík. Árið 2003 var
síðasta árið sem að loðna var brædd
í Sandgerði. Árið 2002 voru brædd í
Sandgerði 27 þúsund tonn af loðnu.
Mjög margir bátar lönduðu loðnu t.d.
í Sandgerði. Einn bátur landaði þó þar
allramest og landaði loðnu alveg fram
á þessa öld. Það var Dagfari ÞH, sem
sést á mynd með pistlinum sem faðir
minn, Reynir Sveinsson, tók.
Reyndar er það nú þannig að þótt
margir bátar hafi t.d. landað loðnu
í Grindavík þá var enginn bátur þar
með jafn langa sögu í að landa loðnu
á Suðurnesjum og einmitt Dagfari ÞH.
Báturinn landaði loðnu að mestu í
Sandgerði og gerði það frá því árið 1968
og fram yfir aldamótin, eða í yfir 30 ár.
Vonandi kemur sú sjón aftur að við
fáum að sjá loðnubáta með fullfermi
koma til hafnar á Suðurnesjum og er
þá ekki verið að tala um þessi risastóru
skip sem eru í dag, heldur báta sem
eru minni eins og t.d. Dagfari ÞH eða
GK var. Draumsýn sem kannski aldrei
verður að veruleika.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Aðalfundur Skátafélagsins Heiðabúa fer fram miðvikudaginn
19. febrúar kl 19:30 í skátaheimilinu, Hringbraut 101.
Kosið verður um stjórn félagsins, lagabreytingar afgreiddar,
farið yfir árskýrslu og ársreikninga.
Lausar eru stöður félagsforingja, gjaldkera, ritara,
meðstjórnanda og varamanna.
Einnig er óskað eftir tillögum um breytingar á lögum félagsins.
Áhugasamir hafi samband við Katrínu í síma 844-6991
eða í tölvupósti á katrin.adalsteinsdottir@gmail.com
Umsóknarfrestur um stöður í stjórn og tillögur
að lagabreytingum er til sunnudagsins 10. febrúar nk.
Við bjóðum öllum virkum skátum og forráðamönnum
þeirra, sem og öllum áhugasömum um
skátahreyfinguna, velkomin á fundinn.
Með skátakveðju,
stjórn Heiðabúa.
AÐALFUNDUR
KONUR
OG HÚSASMÍÐAR
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS