Víkurfréttir - 06.02.2020, Qupperneq 18
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 6. febrúar 2020 // 6. tbl. // 41. árg.
Kristjón
Guðmannsson
Fæddur 26. mars 1953.
Látinn 17. janúar 2020.
Þegar endar æviskeið,
er sem vinur finni.
Það gerðist margt á lífsins leið
sem lifir í minningunni.
(Stefán Ragnar Björnsson)
Fallinn er frá góður vinur og ein-
stakt ljúfmenni, Kristjón Guð-
mannsson frá Lundi í Garði.
Góður vinskapur var á milli fjöl-
skyldu okkar og hans. Við systur
skiptum á jólapökkum við þá
bræður Þórð og Kristjón. Ég hlakk-
aði mjög mikið til að fá pakkann
frá Kristjóni sem var oftast bók,
burstasett eða stytta. Þóra systir
sá um að klippa Kristjón svo vin-
skapur þeirra var mikill í gegnum
tíðina. Kristjón hafði mjög góða
nærveru og fannst mér gott að fá
faðmlag og einn koss á kinn frá
honum.
Blessuð sé minning Kristjóns og
þökkum við honum góða samveru
og einstaka nærveru.
Systurnar frá Brautarholti,
Þóra og Veiga.
(Guðveig Sigurðardóttir)
Margir Grindvíkingar þáðu kaffiboð
í menningarmiðstöðina Kvikuna á
laugardaginn. Dagskrá var í boði
allan daginn en hugmyndin var að
fá bæjarbúa til að koma saman og hitt-
ast í öllu því umróti sem náttúruöflin
hafa staðið fyrir í og við Grindavík
síðustu sólarhringa.
Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur,
var á staðnum. Þá var dagskrá fyrir
börn eins og bíósýning og einnig var
opinn jógatími fyrir bæjarbúa á efri
hæð Kvikunnar.
Magnús Tumi Guðmundsson, jarð-
eðlisfræðingur, var einnig á staðnum.
Hann fór yfir jarðfræðina við Grindavík
Verði eldgos á Reykjanesi er fátt um
varalausnir varðandi heita vatnið.
Júlíus Jón Jónsson, framkvæmdastjóri
HS Veitna, segir engar áætlanir til
enn um hvernig leysa eigi vandann
ef heitavatnsdreifing frá orkuverinu í
Svartsengi stöðvast. Það er ein sviðs-
mynda sem gæti komið upp ef eldgos
yrði við Grindavík.
Aðalinntökusvæði HS Veitna er í
gjá í hrauninu Lágum sem er um þrjá
kílómetra norður af Svartsengi. Fersk-
vatninu er dælt til orkuversins í Svarts-
engi og þar er kalda vatnið hitað upp
með jarðhitagufu.
Í tilkynningu frá HS Veitum segir
að verið sé að skoða hvaða afleiðingar
þetta gæti haft á þjónustu fyrirtækisins.
„Í upphafi er rétt að geta þess að mjög
ólíklegt er að tjón verði á dreifikerfum
HS Veitna sem leiði til takmarkana á
þjónustu. HS Veitur treysta hins vegar
á afhendingu á heitu og köldu vatni frá
HS Orku og síðan raforku frá Landsneti
og þar eru stóru spurningarnar. Mögu-
leikarnir eru vissulega óteljandi, í allra
versta falli verður gos sem veldur (veru-
legu) tjóni á orkuveri HS Orku. Gerist
það, sem reyndar verður að teljast mjög
ólíklegt, verða óhjákvæmilega verulegir
erfiðleikar á orkuafhendingu á svæðinu.
Miklu líklegra er, ef yfirleitt verður gos,
að til einhverra skemmda gæti komið á
vatnslögnum og rafstrengjum en við-
gerðir á slíkum skemmdum ættu ekki
að vera stórmál.
Ef fyrst er litið til Grindavíkur þá
annast HS Veitur raforkudreifinguna,
sölu og dreifingu á heitu vatni og svo
afhendingu á köldu vatni til Vatns-
veitu Grindavíkur. Verði rafmagns-
laust þá eiga HS Veitur tvær dísilvélar
og síðan er verið að vinna að því að
varðskipið Þór kæmi til Grindavíkur
reynist það nauðsynlegt. Þá hefur verið
haft samband við bæði Rarik og Veitur
í Reykjavík og ljóst að þar er unnt að
fá lánaðar dísilvélar reynist það nauð-
synlegt. Álagið í Grindavík er nú um
6,5 MW en spurning hvað það verður
komi til eldgoss og (einhver) rýming
í bænum. Við miðum því á þessu stigi
við að þurfa að útvega allt að 4 MW og
þar af gætu 1,5 MW komið frá varð-
skipinu en annað yrði að koma frá dísil-
vélum og ekki unnt að útiloka einhverja
skömmtun. Varðandi heita vatnið þá
eru möguleikar á varalausnum mjög
takmarkaðir. Komist raforkukerfið
fljótt í lag eru einhverjir möguleikar
á rafhitun og síðan er verið að skoða
möguleika á kötlum, raf- eða olíu, til
að hita upp vatn en þær lausnir eru
bæði tímafrekar og kostnaðarsamar.
Varðandi kalda vatnið þá er ekki líklegt
að til langvarandi truflunar komi en
gerist eitthvað slíkt verður t.d. skoðað
að nýta tímabundið gömul og aflögð
vatnsból.
Varðandi norðanverðan skagann
svo sem Reykjanesbæ höfum við litlar
áhyggjur af rafmagninu, öflugar teng-
ingar við Hafnarfjörð og Reykjanes eiga
að tryggja að það gangi truflanalaust
eða -lítið. Ferskvatnið ætti líka að vera
í lagi, vatnsbólin eru nánast mitt á milli
Svartsengis og Fitja og ólíklegt annað en
að þau sleppi,“ segir í tilkynningunni.
„Enn sem komið er eru engar áætl-
anir uppi um hvernig við leysum vand-
ann ef framleiðsla í Svartsengi myndi
stöðvast,“ segir Júlíus en bætir því við
að rétt sé að halda ró sinni þar sem litlar
líkur séu á því að allt fari á versta veg.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitar-
félaginu Vogum, segir í pistli til bæjar-
búa að það sé full ástæða er fyrir íbúa
í Sveitarfélaginu Vogum að fylgjast
náið með þróun mála í tengslum við
landris nærri Grindavík, þar sem
óvissustigi almannavarna hefur verið
lýst yfir, og þar af leiðandi vera við-
búin því sem kann að gerast.
„Á fundi bæjarstjórnar nú í vikunni
var ákveðið að ræða þessi mál, ekki síst
í ljósi þeirrar staðreyndar hversu nálægt
við erum við óróleikasvæðið. Upplýst
hefur verið að ekki sé tilefni til að ætla
að hætta vegna hraunflæðis steðji að
Vogum, komi til þess að eldgos hefj-
ist. Vísindamennirnir gera einna helst
ráð fyrir komi til eldgoss verði það á
sprungu. Reikna megi með tiltölulega
stuttu gosi með frekar litlu hraunflæði.
Hættan sem steðjar að okkur beinist því
frekar að því hvort innviðir verði fyrir
skakkaföllum, þ.e. rafmagnframleiðsla
og rafmagnsdreifing; dreifing heita og
kalda vatnsins og fjarskipti.
Viðbragðsáætlanir okkar þurfa því
einkum að beinast að með hvaða hætti
við getum tekist á við slíka röskun.
Bæjarráð mun funda í næstu viku og
halda þar áfram umfjöllun um málið
og skoða vandlega til hvaða ráðstafana
skuli gripið. Þá er jafnframt fyrirhug-
aður fundur í Almannavarnanefnd en
nefndin er sameiginleg fyrir Reykja-
nesbæ, Suðurnesjabæ og Voga. Auk
fulltrúa sveitarfélaganna eiga sæti í
nefndinni lögreglustjórinn á Suður-
nesjum, slökkviliðsstjóri Brunavarna
Suðurnesja, fulltrúar Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja, Landhelgisgæslunnar,
ISAVIA og Landsbjargar. Grinda-
víkurbær starfrækir hins vegar eigin
almannavarnanefnd. Sú staðreynd að
lögreglustjórinn á Suðurnesjum situr
í báðum nefndunum tryggir samfellu
í störfum þeirra beggja.
Ég hvet alla til að fylgjast vel með
fréttaflutningi í fjölmiðlum. Einnig er
gagnlegt að fylgjast með vef Veður-
stofunnar (www.vedur.is) og vef al-
mannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra
(www.almannavarnir.is). Mikilvægt er
einnig að kynna sér viðbrögð komi til
rýmingar.
Loks bendi ég öllum á að Rauði
krossinn veitir dýrmæta þjónustu þegar
náttúruvá er annars vegar. Á vef þeirra
(www.redcross.is) má finna margvís-
legar og gagnlegar upplýsingar, einnig
er vert að benda á hjálparsímann 1717
sem alltaf er opinn og gott er að leita
til ef maður finnur fyrir áhyggjum,
hræðslu eða kvíða,“ segir í pistli Ásgeirs
Eiríkssonar, bæjarstjóra í Vogum.
„Meðan enn er óljóst hvert framhald
þeirra umbrota verður sem hafa verið
greind við Þorbjarnarfell er ekki talið
nauðsynlegt að grípa til sérstakra
aðgerða í Reykjanesbæ,“ segir í til-
kynningu frá lögreglustjóranum á
Suðurnesjum en mjög vel verður fylgst
með stöðu mála.
Ríkislögreglustjóri lýsti yfir óvissu-
stigi Almannavarna þann 26. janúar í
samráði við lögreglustjórann á Suður-
nesjum vegna landriss vestan við fjallið
Þorbjörn á Reykjanesi.
Á fundi sem haldinn var í gær með
bæjarstjóra, slökkviliðsstjóra, lögreglu-
stjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs
Reykjanesbæjar var farið yfir stöðuna
sem fylgir óvissustigi vegna landriss
við Þorbjörn og þau áhrif sem kunna
að fylgja því í Reykjanesbæ.
Hópurinn fylgist vel með þeim upp-
lýsingum sem berast reglulega frá al-
mannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
en þær byggjast á mati vísindaráðs
Almannavarna.
Ríkislögreglustjóri hefur einnig lýst
yfir óvissustigi Almannavarna, í sam-
ráði við sóttvarnalækni og embætti
landlæknis, vegna kórónaveiru (2019-
nCoV).
Ekkert smit hefur verið staðfest á
Íslandi. Sóttvarnalæknir leggur mikla
áherslu á smitgát en handþvottur er
mjög mikilvægur til þess að forðast
smit.
Fylgst er vel með þróun mála og er
almenningi bent á að fylgjast með henni
í báðum tilvikum á vef Almannavarna:
www.almannavarnir.is/
Orkuverið í Svartsengi. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fátt um varalausnir
varðandi heita vatnið
Ekki nauðsynlegt að grípa
til aðgerða í Reykjanesbæ
Íbúar í Vogum fylgist náið með
MINNING
ÓVISSUSTIG ALMANNAVARNA VEGNA LANDRISS VESTAN VIÐ ÞORBJÖRN Í GRINDAVÍK
Margir Grindvíkingar þáðu kaffiboð í Kvikunni
og svaraði fjölmörgum spurningum
sem hafa vaknað hjá Grindvíkingum
síðustu daga. Einnig gaf hann sér góðan
tíma til að ræða við pólska íbúa Grinda-
víkur og útskýrði vel það sem er að
gerast í náttúrunni en margir pólskir
íbúar Grindavíkur eru að upplifa jarð-
hræringar í fyrsta skipti á ævinni.