Hrappur - 01.04.1932, Qupperneq 1
HRAPPUR
I. árg. | isafjörður, í april 1932. || I. tbl.
Ávarp á alþýöu.
„Hrappur" er opinbert mál-
gagn hins nýstofnaða .Féiags
ungra óregiumanna á ísafirði“.
Þar sem okkur hefir sýnst hin
ýmsu pólitísku félög, sem eiga að
heita lifandi og starfandi hér f
bænum, til dæmis stúkurnar, vera
fremur dauf í dálkinn og fáskift-
in um hagi almennings, höfum
við nokkrir ungir menn tekið
okkur saman, og stofnað nýtt fé-
lag, sem á að ganga á undan
öðrum stúkum með góðu eftir-
dæmi.
íslenska vikan.
Nú er íslenska vikan um garð
gengin, sællar minningar, og má
yfirleitt segja að hún hafi vei
tekist. Þó viljum viö vekja athygli
á cinu atriði, sem mjög virðist
hafa farið i handaskolum. Er það
þvi ieiðinlegra sem hið opinbera
— bæjarfélagið, á f hlut.
Kvikmyndahús bæjarins hefir
sem sé sýnt útlendar myndir I
þessari al fslensku viku, — t. d.
þessar:
1. Afrika talar.
2. Trojka (lússnesk mynd).
3. Litli og stóri.
Það er hverju orði sannara, að
Fyrsta markmið félagsins er:
Aldrei að gleyma sannleikanum.
—- Vitaskuld er hægt að muna
eftir sannleikanum þótt frá honum
sé vikið.
Sfðar skal, hér i blaðinu, getiö
nánar um pólitiska stefnu féiags-
ins, og ef til vill verða lög þess
birt, þegar búið er að semja þau.
Auk árása á menn og málefni
mun blaðið flytja ýmislegt, al-
menningi til skemtunar og upp-
byggingar.
Ritráðið.
islensk kvikmyndalist er enn á
bernsku skeiði, en hins vegar
höfum vér þó ýmislegt annað
— engu verra — tii að skemta
okkur við, að minnsta kosti i
eina íslenska viku. Við viijum
benda á eftirfarandi:
1. í staðinn fyrir myndina Afrika
talar, hefði mátt fá ritstjóra Vest-
urlands til að flytja fyrirlestur um
þá heimsálfu, þvi hann er þar
allra manna kunnugastur, — að
þvf er Skutull segir.
2. hannibal hefði getað flutt
erindi um ágæti hins istenska
fornmannabúnings*) og yfirburði
hans yfir nútlma klæðnað. —
*
) hannibal hefir sést i slfkum búningi.