Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2020, Síða 19
Fyrirtækjalausnir
24. janúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
EPASSI –
Markaðssetning og greiðsluleiðir
sem henta kínverskum ferðamönnum
EPassi er leiðandi snjallsímagreiðslufyrirtæki á Norðurlöndunum og eitt
af hraðast vaxandi fyrirtækjum í
Evrópu. Í dag telja viðskiptavinir
ePassa yfir 30.000 og er fyrirtækið
með yfir 900.000 notendur.
Samhliða vaxandi fjölda
kínverskra ferðamanna í Evrópu
2016 hóf AliPay að leita leiða til þess
að bjóða upp á greiðsluþjónustu
sína í Evrópu. Innan við þremur
mánuðum eftir að AliPay fór í
samstarf við ePassi voru fyrirtæki
loks farin að bjóða viðskiptavinum
sínum upp á greiðsluþjónustu AliPay.
Finnair var t.d. eitt fyrsta flugfélagið
í heiminum til þess að bjóða upp
á AliPay sem greiðslumöguleika í
flugvélum sínum árið 2017. Nú bjóða
yfir 2.000 viðskiptavinir ePassi
bæði upp á AliPay og WeChat sem
greiðsluleiðir.
Af hverju AliPay og WeChat?
Kínverjar eru langt á undan sinni
samtíð þegar kemur að rafrænum
viðskiptum en meira en 90% af
öllum greiðslum í Kína fara fram
í gegnum snjallsíma. WeChat
og AliPay eru tvö- stærstu
snjallsímagreiðslufyrirtækin í
Kína, samtals með yfir 90% af
markaðshlutdeild.
EPassi á Íslandi
Árið 2019 var fjöldi kínverskra
ferðamanna um 99.000 eða um
4,5% allra ferðamanna á Íslandi,
sem er gífurlega stórt hlutfall.
Það er því full ástæða til þess að
sinna betur þessum hratt vaxandi
ferðamannahóp sem leggur leið sína
til Íslands. Rétt fyrir fyrirhugaðan
ferðamannastraum kínverskra
ferðamanna, þann 1. október 2018,
hófu ePassi og Isavia samstarf um
að bjóða upp á greiðsluleiðir ePassa
fyrir Blue Lagoon, 66°Norður,
Rammagerðina, Pennann og
Optical Studio. Viðbrögðin létu ekki
á sér standa og var mikil ánægja
með þessa nýju greiðsluleið. Í dag
bjóða flestir söluaðilar í Leifsstöð
upp á AliPay og WeChat og í
samstarfi við ePassi og Kultur
elle skipulagði Isavia sérstakt
menningarþjálfunarnámskeið fyrir
starfsmenn flugvallarins sem hefur
aukið mjög ánægju kínverskra
ferðamanna á Íslandi.
Hvernig er hægt
að ná til kínverskra
samfélagsmiðlanotenda?
Kínverjar nota ekki hefðbundna,
vestræna samfélagsmiðla sem
gerir vestrænum fyrirtækjum og
söluaðilum erfitt um vik að ná til
kínverskra samfélagsmiðlanotenda.
Fyrirtæki sem bjóða upp á AliPay-
greiðslumöguleika fá einnig
fyrirtækjaprófíl á AliPay-appinu.
EPassi býður viðskiptavinum sínum
upp á aðstoð varðandi þýðingar
á markaðsefni til þess að setja á
prófílana. Þegar notendur AliPay eru
staddir á Íslandi geta þeir skoðað
þau fyrirtæki og söluaðila sem
staðsettir eru í næsta nágrenni.
Einnig nota Kínverjar WeChat
(svipar til Facebook) og aðra
samfélagsmiðla mikið, til þess
að fletta upp upplýsingum
og notendaumsögnum um
veitingastaði, verslanir og
áhugaverða ferðamannastaði. Að
meðaltali eyða Kínverjar um 3.500
Bandaríkjadollurum á ferðalögum
sínum, en um 90% af eyðslufé þeirra
hafa þeir eyrnamerkt fyrirfram
ákveðnum vinsælum vörum. Í
París kaupa Kínverjar Luis Vuitton.
Í Finnlandi kaupa þeir Moomin
og Iittala. Á Íslandi kaupa þeir
Bioefffect, Blue Lagoon, Sóley og
66°Norður. Kínverjar vilja kaupa
vörur sem þeir þekkja.
Ef verslanir bjóða ekki upp á
AliPay eða WeChat er líklegt að
kínverski ferðamaðurinn hætti við að
kaupa. Að sama skapi eykst salan
töluvert til kínverskra ferðamanna
þegar fyrirtæki af þessari
stærðargráðu taka inn hinar nýju
greiðsluleiðir sem henta kínverskum
neytendum. Rétt greiðsluleið gerir
kínverskum neytendum einnig
auðveldara með að kaupa vörur sem
þeim hugnast þá og þegar og hafa
ekki endilega kynnt sér áður.
Nýjar leiðir í markaðssetningu
EPassi hefur unnið að nýjum
möguleikum í markaðssetningu
íslenskra fyritækja. Til dæmis
var sett upp sérstök auglýsing í
Leifsstöð með AliPay QR-kóða.
Kínverskir ferðamenn geta skannað
kóðann og séð þannig hvað er í
boði á flugvellinum. The Icelandic
Times er eina íslenska tímaritið sem
gefið er út á kínversku. Frá upphafi
hefur ePassi verið í góðu samstarfi
við tímaritið við að kynna íslensk
fyrirtæki betur fyrir kínverskum
lesendum og ferðamönnum. Þau
fyrirtæki sem auglýsa í blaðinu fá
sérstakan QR-kóða með sem gerir
kínverskum lesendum kleift að fletta
upp prófílum fyrirtækjanna og lesa
um þau á kínversku.
Í dag bjóða 175 íslensk fyrirtæki,
allt frá tískuvöruverslunum og
veitingastöðum til hótela og
rútufyrirtækja, upp á AliPAy
og WeChat í gegnum þjónustu
ePassi. Það er mikilvægt að íslensk
fyrirtæki fari að planta fræjum hjá
ferðamönnum framtíðarinnar til
þess að kynna og selja þær vörur og
þjónustu sem þau bjóða upp á.
Skoðaðu málið nánar á epassi.is
Facebook: Epassi Ísland
Nánari upplýsingar um ePassi á
Íslandi veitir Danielle Pamela Neben
danielle.neben@epassi.is
Sími: 852-4588